Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Sigga, Beta og Elín sigruðu Reykjavíkurdætur með rúmlega 8.000 atkvæðum

Myndir/skjáskot RÚV
Myndir/skjá­skot RÚV

Stiga­fjöldi þeirra atriða sem kepptu til sigurs í Söngva­keppni sjón­varpsins hefur nú verið opinberaður á vef RÚV. Bæði er hægt að sjá dreifingu atkvæða úr síma­kosningum, sem og atkvæði frá alþjóðlegri dómnefnd.

Systurnar Sigga, Beta og Elín sigruðu Reykja­víkurdætur með 8.153 fleiri heildar­atkvæðum í úrslitum Söngva­keppninnar á laugar­daginn.

Heildar­fjöldi atkvæða systranna var 77.380 á móti 69.227 atkvæðum Reykja­víkurdætra.

Reykjavíkurdætur efstar hjá dómnefnd og í fyrri kosningu

Lagið Turn This Around með Reykja­víkurdætrum var þó efst á blaði hjá bæði dómnefnd og í síma­kosningunni eftir fyrri umferð kvöldsins. Þannig voru þær með 26.320 atkvæði eftir fyrri síma­kosningu kvöldsins. Lagið Með hækkandi sól var þar í öðru sæti með 24.083 atkvæði.

Atkvæði alþjóð­legu dómnefndarinnar, sem hafði 50 prósenta vægi á móti síma­kosningunni, voru á þann veg að Reykja­víkurdætur hlutu 19.437 atkvæði á móti 18.141 atkvæði Siggu, Betu og Elínar.

Þannig urðu heildar­úrslit fyrri síma­kosningar og atkvæða dómnefndar þannig að Reykja­víkurdætur voru í fyrsta sæti með 45.757 atkvæði og þær Sigga, Beta og Elín í öðru sæti með 42.224 atkvæði. Bæði lögin fóru með atkvæðin úr fyrri umferðinni með sér í einvígið.

Systurnar sigruðu seinni kosningu með yfirburðum

Í seinni síma­kosningunni, í einvígi milli efstu laganna tveggja, fengu þær Sigga, Beta og Elín 35.156 atkvæði á móti 23.470 atkvæðum Reykja­víkurdætra. Þar munaði því 11.686 atkvæðum á atriðunum.

Líkt og fyrr segir voru samanlögð atkvæði laganna tveggja, úr báðum síma­kosningum og frá dómnefnd, þannig að Sigga, Beta og Elín sigruðu með 8.153 atkvæða forystu.

Hér fyrir neðan má sjá atkvæða­fjölda hvers lags á úrslita­kvöldinu.

Niðurstaða fyrri símakosningar í úrslitum:

  1. Reykja­víkurdætur – Turn This around: 26.320 atkvæði
  2. Sigga, Beta & Elín – Með hækkandi sól: 24.083 atkvæði
  3. Amarosis – Don’t you know: 12.506 atkvæði
  4. Stefán Óli – Ljósið: 9.126 atkvæði
  5. Katla – Þaðan af: 5.972 atkvæði

Niðurstaða dómnefndar í úrslitum:

  1. Reykja­víkurdætur – Turn This around: 19.437 atkvæði
  2. Sigga, Beta & Elín – Með hækkandi sól: 18.141 atkvæði
  3. Katla – Þaðan af: 15.031 atkvæði
  4. Stefán Óli – Ljósið: 13.476 atkvæði
  5. Amarosis – Don’t you know: 11.921 atkvæði

Niðurstaða seinni símakosningar í einvígi:

  1. Sigga, Beta & Elín – Með hækkandi sól: 35.156 atkvæði
  2. Reykja­víkurdætur – Turn this around: 23.470 atkvæði

Heildarniðurstaða í úrslitum:

  1. Sigga, Beta og Elín – Með hækkandi sól: 77.380 atkvæði
  2. Reykja­víkurdætur – Turn This Around: 69.227 atkvæði
Sigga, Beta og Elín sigr­uðu Söngvakeppni sjón­varps­ins. Mynd/skjá­skot RÚV.

Í undan­úrslitum kepptu lögin á sitthvoru kvöldinu. Þær Sigga, Beta og Elín unnu öruggan sigur í sínum undan­úrslitum, með 10.788 atkvæði. Næsta lag á eftir hlaut 7.017 atkvæði.

Reykja­víkurdætur unnu afgerandi sigur á seinna undan­úrslita­kvöldinu, með 13.137 atkvæði á móti 5.251 atkvæði lagsins sem var í öðru sæti.

Sjö dómarar skipuðu hina alþjóð­legu dómnefnd sem hafði 50 prósenta vægi á móti fyrri síma­kosningu úrslita­kvöldsins. Hver og einn þeirra átti að raða lögunum upp eftir gæðum, að eigin mati.

Atkvæði þeirra féllu með eftir­farandi hætti:

Dómari 1

  1. Sigga, Beta & Elín – Með hækkandi sól
  2. Katla – Þaðan af
  3. Stefán Óli – Ljósið
  4. Reykja­víkurdætur – Tökum af stað
  5. Amarosis – Don’t You Know

Dómari 2

  1. Reykja­víkurdætur – Turn this around
  2. Sigga, Beta & Elín – Með hækkandi sól
  3. Amarosis – Don’t you know
  4. Katla – Þaðan af
  5. Stefán Óli – Ljósið

Dómari 3

  1. Reykja­víkurdætur – Turn this around
  2. Sigga, Beta & Elín – Með hækkandi sól
  3. Stefán Óli – Ljósið
  4. Katla – Þaðan af
  5. Amarosis – Don’t you know

Dómari 4

  1. Sigga, Beta & Elín – Með hækkandi sól
  2. Katla – Þaðan af
  3. Reykja­víkurdætur – Turn this around
  4. Stefán Óli – Ljósið
  5. Amarosis – Don’t you know

Dómari 5

  1. Reykja­víkurdætur – Turn this around
  2. Stefán Óli – Ljósið
  3. Sigga, Beta & Elín – Með hækkandi sól
  4. Amarosis – Don’t you know
  5. Katla – Þaðan af

Dómari 6

  1. Reykja­víkurdætur – Turn this around
  2. Sigga, Beta & Elín – Með hækkandi Sól
  3. Katla – Þaðan af
  4. Amarosis – Don’t you know
  5. Stefán Óli – Ljósið

Dómari 7

  1. Reykja­víkurdætur – Turn this around
  2. Katla – Þaðan af
  3. Sigga, Beta & Elín – Með hækkandi sól
  4. Stefán Óli – Ljósið
  5. Amarosis – Don’t you know

Hér fyrir neðan má svo sjá hvernig atkvæði síma­kosninga röðuðust á hvoru undan­úrslita­kvöldinu fyrir sig.

Fyrri undanúrslit – 26. febrúar

Sigga, Beta& Elín – Með hækkandi sól: 10.788 akvæði
Stefán Óli – Ljósið: 7.017 atkvæði
Amarosis – Don’t you know (íslenska útgáfan): 7.006 atkvæði
Stefanía Svavars­dóttir – Hjartað mitt: 5613 atkvæði
Haffi Haff – Gía: 4.828 atkvæði

Seinni undanúrslit 5. mars

Reykja­víkurdætur – Tökum af stað: 13.137 atkvæði
Katla – Þaðan af: 5251 atkvæði
Suncity & Sanna Martinez – Hækkum í botn: 4.170 atkvæði
Markéta – Mögulegt: 3.251 atkvæði
Hanna Mia and the Astrotourists – Séns með þér: 3.197 atkvæði

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá