Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Lotta: „Aðferð til að greina fyrr – Heilabilun sjúkdómur sem dregur úr samfélagslegri virkni“

©Kristinn Ingvarsson Verkfræði- og Náttúruvísindasvið
©Kristinn Ingv­ars­son Verk­fræði- og Nátt­úru­vís­inda­svið Mynd: Kristinn Ingvarsson – KRI / Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson

„Með hækkandi aldri þjóðarinnar er búist við því að heila­bilun verði okkar stærsti langvinni sjúkdómur, sem dregur úr samfélagslegri virkni og kostar fjöl­skyldur og samfélag gríðarlegar upphæðir. Greining sjúkdóma er fyrsta skrefið í átt að lækningu eða meðferð og leitast rann­sóknin við að hjálpa til við það.“

Þetta segir Lotta María Ellingsen, dósent við Rafmagns- og tölvu­verkfræði­deild við Háskóla Íslands. Hún hefur lagt ofurkapp á rann­sóknir sem snúa að læknis­fræðilegri mynd­greiningu til að finna fyrr merki um alvarlega heila­sjúkdóma.

„Rann­sóknin sem ég vinn að núna,“ segir hún, „snýst um þróun sjálf­virkra mynd­greiningar­aðferða til að finna lífmerki í byggingu heilans sem leitt gætu til betri og fyrri greiningar á tauga­hrörnunar­sjúkdómum, sem m.a. valda heila­bilun.“

Mynd­greiningin byggist á sérhæfðum hugbúnaði og er smíði fyrstu frum­gerðarinnar lokið. Hugbúnaðurinn merkir undir­svæði heila­stofnsins á sjálf­virkan hátt. Lotta María segir að fyrstu niður­stöður bendi til þess að aðferðin sé afar nákvæm en vissulega sé nauðsynlegt að framkvæma frekari prófanir. Þess má geta að hugbúnaðurinn hlaut fyrstu verðlaun í Vísinda- og nýsköpunar­keppni Háskóla Íslands fyrr á árinu. Hér að neðan ræðir Lotta um möguleika hugbúnaðarins í stuttu myndbandi.

„Við þróuðum nýja mynd­greiningar­aðferð sem skilgreinir betur lífmerki í heilanum sem einkenna sjúk­dóminn. Þetta kveikti áhuga minn á lífmerkjum í heilanum, sem mögulega gætu hjálpað til við greiningu annarra heila­bilunar­sjúkdóma á fyrri stigum en hægt er í dag. Snemm­greining er forsenda nýrra meðferðar­möguleika og lyfja­þróunar.“

Lotta María segir að rann­sóknir hafi sýnt að sjúk­dómarnir sem hún einbeitir sér að í rann­sókninni valdi einkennum í byggingu heilans sem röntgen­læknar geti oft greint. Á meðal þessara sjúdóma eru PSP, sem er ólæknandi tauga­hrörnunar­sjúkdómur í mið- og framheila, og hrörnunar­sjúk­dómurinn MSA, en báðir þessir sjúkdómar flokkast til Parkison-plús sjúkdóma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá