Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Tíu algengar fóbíur: Ótti sem getur jafnvel hamlað fólki í daglegu lífi

Margir eru hræddir við Lóa.
Margir eru hræddir við Lóa.

Afmörkuð fælni (e. phobia) er „ofsalegur ótti við tiltekin fyrirbæri eða aðstæður eins og dýr, lokuð rými eða sprautur. Fólk finnur fyrir skyndilegri skelfingu þegar það mætir því sem það óttast, þótt það geri sér grein fyrir að óttinn er meiri en eðlilegt er.“ Þetta segir á vef Kvíða­meðferðar­stöðvarinnar.

Afmörkuð fælni er oft kölluð fóbía í daglegu tali, eftir enska heitinu. Fóbíur geta valdið fólki talsverðu álagi og kvíða. Þær geta með tímanum hugsanlega skert lífsgæði þess sem þjáist af þeim, þegar viðkomandi er jafnvel farinn að forðast ákveðnar aðstæður í lengstu lög vegna þeirra.

Hér á eftir verða taldar upp tíu af algengustu fóbíunum sem fólk þjáist af í dag, miðað við lista ABC News.

Félagsfælni

Hér er um að ræða ótta við félagslegar aðstæður. Þessi fælni tilheyrir flokki kvíðaraskana en vegna algengni og þess hve margt hún á sameiginlegt með öðrum fóbíum, fær hún að vera á listanum. Félags­fælni getur verið afar hamlandi og komið í veg fyrir að fólk sæki ýmiss konar félagslegar aðstæður. Þetta getur líka valdið öðrum faldari einkennum, eins og ótta við að borða fyrir framan aðra.

Agoraphobia – Víðáttufælni

Ótti við opin svæði. Þetta er alvarleg fælni sem getur gert fólk að föngum á eigin heimili og komið í veg fyrir að það lifi eðlilegu lífi.

Acrophobia – Lofthræðsla

Þótt nokkuð margir þjáist af dálítilli loft­hræðslu má segja að það sé bara hluti af eðli okkar, að óttast aðstæður þar sem við gætum verið í hættu. Hins vegar getur sumt fólk óttast hæð svo mikið að til dæmis rúllu­stigar í verslunar­miðstöðvum eru þeim ofviða. Aðrir fá svima og kvíða­viðbrögð bara við það að vera statt inni í hárri byggingu, þótt viðkomandi sé innandyra. Margir sem glíma við þessa fælni fá mikinn svima og ónota­tilfinningu við það að vera statt á útsýnis­stað, eins og háum kletti, þótt þeir séu langa vegu frá brúninni.

Pteromerhanophobia – Flughræðsla

Það eru meiri líkur á því að verða fyrir eldingu en að deyja í flugslysi. Þrátt fyrir það þjást margir af alvarlegri flug­hræðslu. Fyrir suma kemur það hreinlega í veg fyrir ferðalög.

Claustrophobia – Innilokunarkennd/Hræðsla við lokuð rými

Sumir eru haldnir óstjórn­legum ótta við lokuð rými, að lokast inni einhversstaðar eða að festast í þröngum rýmum. Fólk lýsir því gjarnan að því finnist eins og veggirnir séu að þrengja að þeim og rýmið sífellt að minnka.

Entomophobia – Ótti við skordýr

Það þarf líklega ekki að útskýra þessa frekar. Margt fólk óttast hinar ýmsu tegundir af skordýrum. Algeng fóbía skyld þessari, er Arachnophobia, eða ótti við kóngulær. Þessar fóbíur geta gengið svo langt að fólk fyllist kvíða þegar fer að vora og forðast ákveðna staði eða aðstæður þar sem meiri líkur eru á að hitta þessa smáu óvini.

Ophidiophobia – Ótti við snáka

Þarna er um að ræða algenga fóbíu sem í sjálfu sér er ekki óskynsamleg í grunninn. Frum­maðurinn þurfti jú að vara sig á biti eitraðra snáka. Það er áhugavert að þessi ótti virðist ekki háður búsetu. Þannig má auðveldlega finna Íslendinga sem eru haldnir fóbíunni, jafnvel þótt snákar finnist ekki úti í nátt­úrunni hér á landi.

Cynophobia – Ótti við hunda

Þessi kemur kannski sumum á óvart, en sjúklegur ótti við hunda er algengari en margan myndi gruna. Oft verður þessi fóbía til eftir neikvætt atvik tengt hundi, sem á sér oftar en ekki stað þegar einstaklingurinn er barn. Það getur verið afar erfitt að eiga við fóbíuna og vinna bug á henni. Hundar eru næm dýr og skynja það gjarnan þegar fólk er óöruggt eða hrætt, sem aftur gerir þá óörugga og stundum óútreiknanlegri í samskiptum við viðkomandi aðila.

Astraphobia – Ótti við óveður

Þarna er helst um að ræða þrumur og eldingar, sem er manninum eðlislægt að vera á varðbergi gagnvart. Harkaleg óveður eins og fellibylir geta líka orðið að miklum ógnvaldi í lífi fólks. Þessa fóbíu er líklega erfitt fyrir fólk að tengja við sem búsett er hér á landi.

Trypanophobia – Ótti við nálar

Þessa þekkja flestir. Sprautu­nálar vekja ugg hjá mörgum. Sumir óttast þær svo mjög að bólu­setningar og blóð­prufur verða nánast óyfirstíganlegar. Sumir verða jafnvel fyrir því að falla í yfirlið eða kasta upp þegar sprautu­nálar eru nálægt þeim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt