Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Miðstöð fyrir fólk frá Úkraínu opnuð við KR völlinn: „Mér leið ekki vel í vinnunni þessa daga“

Mynd. Skjáskot/Reykjavíkurborg
Mynd. Skjáskot/Reykja­vík­ur­borg

Hentugt húsnæði var tryggt í byrjun vikunnar og mætti starfs­fólkið næsta dag til að hefja undir­búning. Allt hefur þurft að gerast hratt og allir í hópnum sáttir og ánægðir með að taka þátt í verk­efninu. Það gerir þeim kleift að einbeita sér að því að hjálpa fólki frá sínu gamla heima­landi en mörg höfðu reynt að svara símtölum og skila­boðum samhliða sinni vinnu. Ein úr hópnum lýsir því hvernig hún mætti til dæmis eftir vinnu alla daga til að sinna hjálpar­starfi.

„Ég var að frá átta á morgnana til níu eða tíu á kvöldin. Á vinnutíma var ég með heilan bekk af börnum sem ég gat varla stjórnað og fannst frábært að geta einbeitt mér að þessu,“ segir Oksana Shabatura í samtali við Hrund Þórs­dóttur, upplýsinga­fulltrúa Ráðhúss Reykja­víkur hjá Reykja­víkurborg. Oksana er umsjónar­kennari 2. bekkjar í Fella­skóla og hefur búið á Íslandi í 18 ár. Hún lýstir því hvað það hefur reynst erfitt að halda áfram með daglegt líf á sama tíma og stríðs­ástand er í heima­landinu vegna innrásar Rússa.

„Mér leið ekki vel í vinnunni þessa daga. Ég kom á kaffi­stofuna, þar var fólk að hlæja, tala, undirbúa árshátíð og lifa eðlilegu lífi og ég var vön að vera alltaf með. Svo opna ég símann og sé hús í rúst og börn drepin. Hjarta mitt springur en ég heyri hlátur í kringum mig. Þannig að ég er rosalega ánægð að fara í þetta og vera með fólki sem skilur mig og er í sama gír og ég. Við skiptumst á upplýsingum og getum þannig hjálpað enn meira,“ segir Oksana.

Mikilvægi fjöl­breytts starfs­mannahóps með ólíkan bakgrunn sannast nú við opnun Skóla- og fjölskyldu­miðstöðvar fyrir úkraínsk börn og fjöl­skyldur þeirra. Miðstöðin verður opnuð í dag, fimmtudag, í frístunda­miðstöðinni Tjörninni við KR völlinn. Sex úkraínsku­mælandi starfs­menn úr skólum borgarinnar halda utan um starfsemina þar sem þátttaka foreldra verður nauðsyn­legur þáttur.

Skóla- og fjölskyldumiðstöð fyrir flóttafólk frá Úkraínu opnuð

Fannst erfitt að taka þátt í gleðinni á kaffistofunni

Árni Valdason er sérkennari í Kletta­skóla og hefur búið á Íslandi í átta ár. „Ég var líka upptekinn í vinnunni því allir voru að hringja. Ég skrifaði bréf til Helga [Gríms­sonar, sviðs­stjóra skóla- og frístunda­sviðs] og hann svaraði og sagði að það væri hópur til að hjálpa flótta­mönnum og nú er ég í honum,“ segir Árni sem fór skömmu eftir innrásina ásamt manni sínum til Póllands til að sækja foreldra hans sem þá voru að reyna að komast að pólsku landa­mærunum.

Bæði segja þau Oksana og Árni mikilvægt að úkraínsku foreldarnir taki þátt í starfsemi fjölskyldu­miðstöðvarinnar og sjái um umönnun ungra barna. Þau vonast til að í hópnum leynist kannski mynd­listar- og tónlistar­fólk, og jafnvel íþrótta­kennarar. Enn er óvíst hversu mörg börn og foreldar munu sækja Skóla- og fjölskyldu­miðstöðina og hvort opna þurfi á fleiri stöðum. Um 200 börn hafa komið til Reykja­víkur frá því innrásin hófst.

HÉR má lesa viðtal Reykja­víkurborgar við Oksönu í heild sinni og fræðast um þetta nýja spennandi verkefni.

Í þessu verkefni sannast hversu mikilvægt það er fyrir vinnu­staði að hafa starfs­fólk með ólíkan bakgrunn í starfs­liði sínu. Ásamt þeim Árna og Oksönu munu starfa Luba frá leik­skólanum Miðborg (22 ár á Íslandi), Alina sem vinnur í leik­skólanum Björtuhlíð (rúm 8 ár á Íslandi), Katarina sem vinnur á frístunda­heimilinu Guluhlíð við Kletta­skóla (5 ár á Íslandi) og Tetiana frá leik­skólanum Hlíð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá