Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Jasmina er þreytt á rasískum skilaboðum: „Var sagt að ég væri að ala upp Breivik heima hjá mér“

Jasmina Vajzovic Crnac
Jasmina Vajzovic Crnac Mynd: Facebooksíða Reykjavíkurborgar

Leiðtogi alþjóða­teymis velferðar­sviðs Reykja­víkurborgar hefur í gegnum árin orðið fyrir fordómum á samfélags­miðlum en hún er fædd í Bosníu og Hersegóvínu.

Jasmina Vajzović Crnac kom til landsins 16 ára gömul sem flótta­maður frá Bosníu og Hersegóvínu en hún upplifði stríðs­átök í Bosníu­stríðinu á tíunda áratug síðustu aldrar. Á þessu ári var hún ráðin sem leiðtogi alþjóða­teymis velferðar­sviðs Reykja­víkurborgar og hefur hún meðal annars verið að hjálpa Úkraínskum flótta­mönnum sem hingað flýja vegna stríðsins sem þar geisar nú um mundir. Hún hefur um langt skeið hjálpað flótta­fólki sem hingað hefur flúið og kennt þeim á kerfið og fleira sem nauðsynlegt er að kunna til að geta sest að í nýju landi. Hún hefur sem sagt mikla reynslu í þessum málum.

Alltaf til rotin epli

Þó að langflestir séu hæstánægðir með hennar störf og skoðanir í þessum mála­flokki eru alltaf einhverjir sem eru það ekki og senda henni fordóma­fullt og ljót skilaboð. „Ég hef verið nokkuð áberandi síðustu ár í umræðunni um flótta­fólk, sem innflytjandi sjálf og mér er mjög annt um öll þessi mál og hef alveg tekið mitt pláss í fjöl­miðlum í þessum mála­flokki. Þá hef ég alltaf fengið skilaboð frá skemmdum eplum. Til dæmis þegar stríðið í Sýrlandi stóð sem hæst, þá var mikið verið að tala um múslima og þar sem ég er Bosníu­múslimi þá fékk ég skilaboð þegar ég var að tjá mig um stríðið, þar sem var sagt að ég væri að ala upp Breivik heima hjá mér, að ég væri að ala börnin mín upp sem Breivik. Mér hefur líka verið sagt að drulla mér heim, að ég sé ekki velkomin á Íslandi. Það gerist nánast alltaf þegar ég er með aðrar skoðanir en sumir Íslendingar og tjái mig um það, að þá fæ ég skilaboð þar sem mér er sagt að fara bara heim til mín. En ég segir bara að ég sé heima hjá mér, ég geti ekkert farið heim því ég er þar nú þegar.“

Jasmina segir að sér finnist þetta áhugavert og að hún velti því fyrir sér hvað fólki fái eiginlega út úr þessu. „Það að fólk þurfi endilega að senda mér skilaboð og tjá mér sínar skoðanir á mér og mínum málefnum án þess að vita og skilja hvað ég er að tala um, að senda mér skilaboð á Messenger til dæmis, ég skil ekki tilganginn með þessu. Ég þekki þau ekki neitt og þau vita ekkert hvað ég hef verið að skrifa um og tala fyrir.“

Aðspurð hvort um sé að ræða alltaf sama fólkið segir Jasmina svo ekki vera. Þetta séu mismun­andi einstaklingar en stundum fái hún það á tilfinningunni að um gervi­persónur séu að ræða, þ.e.a.s. að fólk sé að skrifa undir dulnefni, gervi aðgangi á Facebook.

Óþolinmæði gagnvart skoðunum innflytjenda

Jasmina segir að þetta fari lítið fyrir brjóstið á henni en að hún sé orðin frekar þreytt á þessu. „Það virðist vera svo lítil þolinmæði fyrir því að fólk af erlendum uppruna sé að hafa skoðanir á hlutunum og ef það hefur skoðanir að þá eru það ekki réttu skoðanirnar,“ segir Jasmina en tekur fram að hún sé ekki bara að tala um sjálfa sig því margir fái enn grófari skilaboð en hún og það er sett út á staf­setningu viðkomandi og farið í persónuna, frekar en málefnin. „Ég er aðallega að tala um þetta núna því ég veit að vinir mínir hafa verið að fá ógeðslegustu skila­boðin, ég er að fá mun vægari skilaboð og kippi mér lítið upp við það. Ég á vini sem eru dökkir á hörund og hafa verið að kvarta undan þessu en fá ekki sömu umfjöllun og ég. Þess vegna finnst mér mikilvægt að tala almennt um þetta, að það virðist vera fólk í samfélaginu sem hefur minni þolinmæði gagnvart fólki af erlendum uppruna sem er að tjá sig á opinberum vettvangi. Ef við ætlum að búa til fjöl­menningar­samfélag þar sem allir fái að vera með, þá þarf að vera hægt að taka gagnrýni um eitthvað sem betur má fara, svo að samfélagið verði betra fyrir okkur öll. Ég held að við á Íslandi þurfum að geta tekið umræðuna án þess að einhver móðgist þó einhver hafi öðruvísi skoðun en aðrir og að við þurfum ekki alltaf að skipta okkur í dilka, eins og það sé aðal­atriðið. Við þurfum bara að stefna á það að búa til betra samfélag.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá