Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Tilraunaleiðangur við Íslandsstrendur: „Ísland varð fyrir valinu fyrir prufuverkefnið“

Þau Eiríkur Steingrímsson, prófessor í sameindalíffræði við Læknadeild Háskóla Íslands og formaður stjórnar EMBL, Valerie Maier, verkefnisstjóri við Lífvísindasetur HÍ, og Zophonías Jónsson, prófessor í sameindaerfðafræði við Líf- og umhverfisvísindadeild hafa öll unnið að undirbúningi TREC-verkefnisins hér á landi í samvinnu við stóran hóp íslenskra líf- og vistfræðinga.
Þau Eiríkur Stein­gríms­son, pró­fessor í sam­einda­líf­fræði við Lækna­deild Háskóla Íslands og for­maður stjórnar EMBL, Valerie Maier, verk­efn­is­stjóri við Líf­vís­inda­setur HÍ, og Zophonías Jónsson, pró­fessor í sam­einda­erfða­fræði við Líf- og umhverf­is­vís­inda­deild hafa öll unnið að und­ir­bún­ingi TREC-verk­efn­is­ins hér á landi í sam­vinnu við stóran hóp íslenskra líf- og vist­fræð­inga.

Hópur vísinda­manna við fjölmargar stofnanir á sviði vistfræði á Íslandi tekur þátt í viðamiklu samstarfs­verkefni með European Molecular Biology Laboratory (EMBL), samevrópskrar stofnunar á sviði sameinda­líffræði, þar sem markmiðið er m.a. varpa nýju ljósi á samspil smæstu og stærstu lífvera og viðbrögðum þeirra við umhverfis­breytingum. Sjónum verður m.a. beint að lífríkinu við strendur Íslands í tilrauna­verkefni sem fara mun fram í sumar.

„Áætlunin var kynnt fyrir íslenskum vísinda­mönnum og þeir sýndu rannsókna­þemanu Planetary Biology sérstakan áhuga þar sem það snýst um að skilja betur samskipti örvera, þörunga, plantna og dýra í sínu nátt­úrlegu umhverfi og hvernig þau bregðast við breytingum í umhverfi sínu,“ segir Eiríkur Steingrímsson, prófessor í sameinda­líffræði við Lækna­deild Háskóla Íslands. Hann bætir við að ætlunin sé skoða þessa þætti bæði á sameinda-, frumu-, einstaklings- og stofn­stigi.

Verkefnið sem um ræðir ber heitið TREC og er hluti af heildar­stefnu­mörkun stofnunarinnar til næstu fimm ára, sem nefnist „Molecules to Ecosystems“.  Rannsóknar­þemað í verk­efninu tengist líffræði plánetunnar (e. Planetary Biology) en markmiðið er m.a. að nýta nýjustu sameinda­líffræðilegar aðferðir og tækni til að varpa ljósi á stöðu einstakra vistkerfa og heil­brigði plánetunnar.

Eiríkur hefur verið formaður stjórnar EMBL frá árinu 2020 og undir hans forystu hefur stjórnin unnið að áður­nefndri heildar­stefnu­mörkun. Auk hans hefur Zophonías Jónsson, prófessor í sameinda­erfðafræði við Líf- og umhverfis­vísinda­deild skólans, setið í stjórn EMBL og þá hefur Valerie Maier, verkefnis­stjóri við Lífvísinda­setur HÍ, unnið að því að tengja áætlunina við Ísland.

Heilbrigði vistkerfa jarðar er undirstaða fyrir líf á jörðinni

„Ávinnningur verk­efnisins er ekki síst sá að með þeim aðferðum og tækjum sem EMBL býr yfir verður hægt að skoða lífverur í sínu nærumhverfi frekar en á rannsóknar­stofu. Þetta var ekki hægt áður vegna tæknilegra þröskulda,“ segir Zophonías og bætir við.

„Heil­brigði vistkerfa jarðar er undir­staða fyrir líf á jörðinni en loftslags­breytingar, mengun og skógar­eyðing hefur mikið áhrif á vist­kerfin og dregur m.a. úr líffræðilegri fjöl­breytni. Í verk­efninu er verið að varpa nýju ljósi á vistkerfi á sameinda­fræðilegu stigi og það getur vonandi hjálpað okkur enn betur að bregðast við þeim miklu umhverfis­breytingum sem eru að verða í heiminum.“

Ávinningur TREC-verkefnsisins er líka margþættur fyrir íslenskt vísinda­fólk. „Niður­stöður úr leiðangrinum í sumar verða opnar öllum þannig íslenskir vísinda­menn geta nýtt þau gögn sem aflað verður til frekari rannsókna eða til að varpa frekara ljósi á rann­sóknir sínar. Enn fremur er lítið vitað um samsetningu og hlutverk örvera í íslensku vistkerfi og því væntum við þess að rann­sóknirnar verði mikilvægt skref í átt að auknum skilningi á þessum kerfum og viðbrögðum þeirra við umhverfis­breytingum,“ segir Eiríkur.

EMBL mun senda um 15 manna hóp til Íslands til að taka þátt í leiðangrinum. Þetta skapar að sögn Eiríks möguleika á auknu erlendu rannsókna­samstarfi fyrir íslenskt vísinda­fólk og sameiginlegum styrk­umsóknum í fram­tíðinni. Vísinda­menn EMBL verða einnig með námskeið og fyrir­lestra á meðan á dvöl þeirra stendur hér á landi og hluti hópsins tekur þátt í stórri alþjóðlegri ráðstefnu á sviði smásjár­rannsókna sem Eiríkur og samstarfs­félagar standa að í ágúst.

Tilraunaleiðangur við Íslandsstrendur í sumar

Í leiðangrinum við Íslands­strendur í sumar verður sýnum safnað og aðferðir, sem beita á í rannsóknar­verkefninu, prófaðar. Að því kemur m.a. 15-20 manna hópur vísinda­manna við íslenska háskóla og stofnanir sem allir eiga það sameiginlegt að vinna að rann­sóknum og vöktun sem tengist vistfræði. Þessar stofnanir eru Hafrannsókna­stofnun, Matís, Náttúru­fræði­stofnun Íslands, Náttúru­minjasafn Íslands, Háskólinn á Akureyri, Háskólinn á Hólum, Náttúru­stofa Suðvestur­lands, auk Háskóla Íslands og rannsókna­setra skólans á Vestfjörðum og Suðurnesjum.

Þessi hópur hefur m.a. rannsakað með ýmsum hætti vistkerfis­breytingar á og við Ísland en myndar jafnframt nýjan samstarfs­vettvang vísinda­fólks sem nefnist BIODICE og vinnur að því að efla vitund og skilning þjóðarinnar og rann­sóknir á líffræðilegri fjöl­breytni á Íslandi. Hugmyndin að samstarfs­vettvanginum kviknaði einmitt á fundi líffræðinga með fulltrúum EMBL.

„Ísland þykir henta vel þegar kemur að vistfræði og líffræðilegri fjöl­breytni hér við land,“ segir Valerie enn fremur um ástæður þess að Ísland varð fyrir valinu fyrir prufu­verkefnið.

Tækni sameindalíffræðinnar nýtt í náttúrunni

Sameinda­líffræðilegar rann­sóknir fara oftast fram í tilrauna­stofum við mjög skýrt afmarkaðar reglur og aðstæður. Með framþróun í tækni og vísindum búa vísinda­menn nú hins vegar yfir tækjum til rannsókna í sameinda­líffræði sem hægt er að nota í náttúru­legu umhverfi lífvera. Það er ekki síst þessi breytti veruleiki sem vísinda­mennirnir vonast til að geti hjálpað þeim að öðlast betri skilning á samspili lífvera og almennt á lífinu á jörðinni.

Nánari upplýsingar um TREC-verkefnið má finna á vefsíðu EMBL.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá