Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Hildur Björnsdóttir: „Maður er nefnilega svo óskaplega heppinn að fá að vera lifandi“

Hildur Björnsdóttir
Hildur Björns­dóttir

„Sem oddviti Sjálfstæðis­flokksins sækist ég eftir því að verða borgar­stjóri í Reykjavík. Ég elska borgina okkar og brenn fyrir því að gera hana betri fyrir okkur öll. Það vantar aukna væntumþykju fyrir fólkinu og fram­takinu sem býr í Reykjavík. Borginni ber fyrst og fremst að auðvelda íbúunum daglegt líf, veita öfluga grunn­þjónustu og tryggja sterka innviði. Lausn leikskóla­vandans, húsnæðis­vandans og samgöngu­vandans eru mér líka ofarlega í huga og eru raunar sérleg forgangsmál okkar sjálfstæðis­manna.“

Hildur Björns­dóttir hefur verið borgar­fulltrúi síðastliðin fjögur ár. „Í störfum mínum hef ég lagt ríka áherslu á öfluga leik­skóla­þjónustu, fjöl­breyttar greiðar samgöngur, aukinn stuðning við sjálfstætt starfandi skóla og fjölskyldu­vænni borg. Heil­brigður fjárhagur og lægri álögur eru mér líka alltaf hugleiknar. Mér finnst ekki síst mikilvægt að Reykjavík fái að þróast sem græn framfara­borg í lifandi samkeppni við erlendar borgir um fólk og atgervi. Það á að vera eftirsóknar­vert að búa í Reykjavík fyrir fólk á öllum æviskeiðum.“

Neikvæða og ómál­efna­lega umræðan þykir mér svo sér­kenni­leg­ust.

Hildur er spurð hvernig þessi heimur stjórn­málanna sé. Hvað gefur hann henni og hvað tekur hann frá henni? Hvað er erfiðast við þetta starf?

„Þetta er auðvitað svolítið sérkenni­legur heimur. Margt í umhverfinu þykir mér gamaldags. Langir fundir fram á nætur og langar umræður sem gjarnan skila engum ávinningi. Neikvæða og ómálefnalega umræðan þykir mér svo sérkennilegust. En ég er almennt meira gefin fyrir allt það jákvæða sem fylgir starfinu. Allt frábæra fólkið sem maður kynnist, hlutirnir sem maður lærir og tækifærin sem maður fær til að hafa jákvæð áhrif á samfélagið.“

Baráttukona

Hildur er lögfræðingur og segir að ástæðan fyrir því að hún fór svo út í stjórnmál tengist því að hún hafi alltaf verið ákveðin í því að vilja vinna fyrir fólk. „Af þeirri ástæðu fór ég í lögfræðina þar sem almennt gefst tækifæri til að aðstoða fólk við úrlausn flókinna mála. Stjórn­málin kölluðu þó alltaf á mig, ekki síst borgar­málin, enda veita þau einstakt tækifæri til að vinna fyrir fólk. Borgar­málin snúa að nærþjónustunni við borgarana og fjöl­breyttum leiðum til að einfalda daglegt líf.“

Hildur var formaður Stúdenta­ráðs Háskóla Íslands þegar hún var í lögfræði­náminu þannig að þetta tengist ekki bara því að aðstoða fólk við úrlausn flókinna mála. „Ég er voðaleg baráttu­kona í mér. Hef alltaf verið fljót að reka augun í það sem betur mætti fara og finn knýjandi þörf til að laga það hvort heldur sem er á heimili, vinnustað eða í samfélaginu. Ætli það sé ekki ein ástæða þess að ég elska stjórn­málin. Þau eru hið fullkomna tækifæri til að hafa jákvæð áhrif á samfélagið og leita lausna við þeim vanda­málum sem blasa við.“

Á end­anum lærir maður jafn­vel að hafa húmor fyrir umræð­unni.

Stjórn­málamenn þurfa að hafa sterkan skráp svo sem þegar kemur að gagnrýnis­röddum. Tekur Hildur gagnrýni nærri sér? „Maður er ótrúlega fljótur að byggja upp þykkan skráp gagnvart gagnrýni og umtali. Á endanum lærir maður jafnvel að hafa húmor fyrir umræðunni, enda svo ótalmargt sagt sem er í hrópandi ósamræmi við veru­leikann. Ég er hins vegar alltaf mjög opin fyrir málefnalegri gagnrýni og hef tamið mér að vera umkringd fólki sem er reiðubúið að veita uppbyggilega ráðgjöf. En starfinu fylgja líka svo mörg falleg og hvetjandi orð sem er mikilvægt að taka með sér.“

Krabbameinið

Gagnrýnin kallar á þykkan skráp en hún er kannski næstum því hjóm eitt miðað við áfallið sem Hildur gekk í gegnum á sínum tíma og breytti öllu.

Ætli ég hafi ekki orðið sjálfsör­ugg­ari og hug­rakk­ari.

„Ég greindist með eitla­krabbamein sumarið 2016, aðeins sjö dögum eftir að dóttir mín fæddist. Við tók sex mánaða ströng lyfja­meðferð sem blessunar­lega leiddi til þess að ég náði fullum bata. Það hjálpaði mér mikið á þessu tímabili að halda í jákvætt hugarfar og umkringja mig öllu því stórkost­lega fólki sem stóð mér nærri. Ég hef lært af þessari reynslu hve lífið er stutt og reyni því að lifa því til fulls. Fresta því ekki að láta drauma mína rætast og stökkva út í allar þær djúpu laugar sem freista og heilla. Ætli ég hafi ekki orðið sjálfs­öruggari og hugrakkari af þessari reynslu, sit betur í sjálfri mér og veit betur hvað ég vil. Það hefur áhrif á mig sem manneskju, hvort heldur sem er í stjórn­málum eða á öðrum vettvangi.

Ég vel hins vegar ekki að dvelja í sjálfs­vor­kunn.

Erfið­leikar og áföll móta mann sannarlega og ég hef fengið minn skerf af slíku. Ég vel hins vegar ekki að dvelja í sjálfs­vorkunn en reyni mun fremur að draga lærdóm af aðstæðum og halda svo áfram með lífið. Maður er nefnilega svo óskaplega heppinn að fá að vera lifandi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá