Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Hamingjan á erfiðum tímum!

Anna Lóa Ólafs­dóttir er eigandi Hamingju­hornsins, kennari og náms- og starfs­ráðgjafi með diplóma í sálgæslu. Hún hefur skrifað pistla í rúm 10 ár og gefið út eina bók; Það sem ég hef lært. Hún er móðir, tengda­móðir og amma, starfar hjá VIRK starfs­endur­hæfingar­sjóði og var að klára jóga­kennaranám hjá Yogavin sem hún segir að hafi gefið henni ótrúlega mikið. Anna Lóa kom í spjall við Mannlíf um erfiða reynslu, sorg, sigra og áskoranir. Hún segir okkur að hún vilji landsátak í tengsla­vinnu.

Einfaldir þættir sem geta aukið hamingju okkar

„Hamingju­hornið varð til fyrir rúmum 10 árum þegar ég byrjaði að skrifa pistla í Víkur­fréttir í Reykja­nesbæ. Í kjölfarið fór ég að skrifa á Facebook og lesenda­hópurinn hefur vaxið og dafnað í gegnum árin. Tilgangurinn frá upphafi hefur alltaf verið sá að hvetja lesendur til að líta inn á við til að auka hamingjuna, í stað þess að bíða eftir því að einhverjir aðrir eða eitthvað annað færi okkur hana á silfur­fati. Rann­sóknir hafa sýnt að það eru frekar einfaldir þættir sem geta aukið hamingju okkar, eins og að iðka þakklæti, vinna í sjálfs­traustinu, eiga góða vini, finna tilgang með lífi okkar og upplifa að við séum við stjórn en séum ekki að lifa lífi sem aðrir velja fyrir okkur.“

Þurfum að minnka streit­una í lífi okkar eins og við getum, því lík­am­inn er í mik­illi streitu fyrir og við þurfum að virða það

Anna finnur að margir hafi verið að glíma við „Covid-þreytu“. „Þegar við höfum farið í gegnum óvissu­tíma myndast spenna í líkamanum. Svo þegar það sér fyrir endann á óvissu­tímanum og við slökum á, er rétt eins og líkaminn taki af okkur ráðin og segir; hei, ég er búin að vera til staðar fyrir þig í gegnum þetta tímabil, nú þarf ég að fá smá hleðslu! Ráðið sem ég mundi gefa ÖLLUM í dag, er að fólk hugi að því hvernig það ætlar að hlaða batteríin eftir þetta erfiða tímabil. Við þurfum að vanda okkur og velja það sem við vitum að geri okkur gott, þurfum að minnka streitu í lífi okkar eins og við getum, því líkaminn er í mikilli streitu fyrir og við þurfum að virða það. Svo skilaboð mín eru; njótum þess á heil­brigðan hátt að jafna okkur eftir síðustu tvö ár. Því skiptir svo miklu máli að við skoðum hvert og eitt okkar, hvernig við getum tekið að móti vetri og vori á góðan en nærandi hátt, og að við bíðum með að taka stórar ákvarðanir þar til við erum komin í gott jafnvægi.“

Ráð til að feta veginn áfram og forvarnarpunktar

Anna talar um að það vanti efni þar sem fjallað er um sjálfs­traust og samskipti, andlega og líkamlega líðan, áföll og erfið­leika og hvernig best sé að takast á við áskoranir. „Þegar ég bjó í Reykja­nesbæ voru Suðurnesin að takast á við erfiða tíma. Varnar­liðið fór árið 2006 og mörg hundruð manns misstu vinnuna og tveimur árum síðar fylgdi banka­hrunið með þeim afleiðingum sem allir þekkja.

Ég starfaði sem ráðgjafi á þessum tíma og fékk vanlíðan og vonleysi fólksins beint í æð. Mig langaði að leggja eitthvað af mörkum og skrifa frá hjartanu um leiðir til að takast á við áskoranir lífsins. Það sem gerist þegar maður skrifar eða talar frá hjartanu, er að maður áttar sig á því, að það eru allir að fást við eitthvað og fólk fagnar því að geta tengt við sögur annarra og sjá að það eru fleiri að upplifa það sama.

Þá er ég ekk­ert síður að skrifa til mín þegar ég er að skrifa pistl­ana mína

Það er ekki nóg að birta áfalla­sögur einstaklinga, við þurfum líka að vera með einhver ráð til þeirra um að feta veginn áfram og forvarnar­punkta um hvernig sé hægt að auka seigluna og sáttina í lífinu svo einstaklingar séu betur undir­búnir þegar þeir mæta áskorunum. Þar fyrir utan, þá er ég ekkert síður að skrifa til mín þegar ég er að skrifa pistlana mína, en ég hef sjálf þurft á því að halda að skoða bjarg­ráðin mín í gegnum erfið tímabil og deili með með öðrum því sem ég hef lært.“

Líkaminn geymir erfiðar upplifanir

„Þegar ég varð 29 ára var mér ráðlagt að eignast ekki fleiri börn eftir endur­tekin fósturlát og því fylgdi ákveðin sorg sem ég kunni ekki að takast á við. En þar sem líkaminn geymir vel allar erfiðar upplifanir hef ég þurft að fara til baka, skoða áhrifin sem þetta hafði á mig og leyfa mér að finna til, án þess að dæma það. Þetta gerði ég með aðstoð fagmanneskju sem bjó til rými þar sem ég viðurkenndi að hafa upplifað bæði vanmátt og skömm á þessum tíma og þessa óþægilegu tilfinningu að ég væri eitthvað gölluð, en líka að ég hefði ekki leyfi til að syrgja þar sem ég átti tvo heilbrigða drengi.“

Anna útskýrir að þegar við upplifum skömm gefum við ekki rými fyrir samkennd og kærleika, sem er einmitt það sem við þurfum á erfiðum tímum. „Það tók mig tíma að huga að því hvernig mér leið og hvaða áhrif þetta hafði á mig, í stað þess að vera föst í því að aðrir hefðu nú lent í því verra og ég ætti því bara að harka af mér. Mín reynsla skiptir hins vegar ekki minna máli vegna þess.“

Ég er ör og lausn­a­miðuð að eðl­is­fari og munstur mitt í líf­inu hefur svo­lítið verið að breyta aðstæðum mínum og gera eitt­hvað þegar ég upp­lifi van­líðan

Þegar Anna var rúmlega þrítug missti hún föður sinn skyndi­lega og hún var rúmlega fertug þegar mamma hennar dó. „Ég skrifaði mikið á þessum tíma, en bara fyrir mig. Dagbókar­skrif hafa reynst mér vel í gegnum erfiðustu áföllin og þá er það ekki það sem maður skrifar sem skiptir máli, heldur það sem gerist innra með manni þegar maður skrifar. Mér fannst erfitt að sitja í sorginni og geta ekki breytt neinu. Ég er ör og lausna­miðuð að eðlisfari og munstur mitt í lífinu hefur svolítið verið að breyta aðstæðum mínum og gera eitthvað þegar ég upplifi vanlíðan. En svo þegar maður missir einhvern sem er manni kær þá getur maður engu breytt og ekki getur maður flúið sorgina. En maður getur verið góður við sjálfan sig, stigið varlega til jarðar, beðið um stuðning og reynt að halda áfram án þess að deyfa líðan sína.

Ég mun aldrei halda því fram að mér hafi alltaf tekist að fara eftir þessu, en ég gerði mitt besta til að vera til staðar fyrir mig, syni mína og fjöl­skyldu og nota þau bjargráð sem ég hafði á þeim tíma.“

Sleppa takinu og byrja upp á nýtt

Hennar helstu áskoranir hafa verið að taka U-beygjur í lífinu þar sem hún hefur sleppt takinu og byrjað upp á nýtt. Hún hefur farið gegnum þetta ferli nokkrum sinnum og síðast þegar hún varð fimmtug. Hún upplifir sig enn í því ferli. „Þá fylgir maður því sem maður telur vera rétt fyrir sig og þau gildi sem maður vill lifa eftir, án þess að hafa nokkra vissu um hvernig það komi til með að ganga. Þetta hefur oft tekið mikinn toll af mér og ég man að síðast þegar ég tók U-beygju, leit ég í spegil og sagði við sjálfa mig; Anna Lóa, í alvöru, ertu tilbúin í þetta einu sinni enn! Ég hef lifað fjöl­breyttu lífi, en hef líka verið dugleg að taka ábyrgð á því að breyta þegar mér hefur þótt ástæða til. Við getum haft áhrif á fólkið og aðstæður í kringum okkur, en þurfum sjálf að taka ábyrgð á því að velja hvernig lífi við viljum lifa.“

Hugrekkið og hennar helstu sigrar

Anna segir að hennar helstu sigrar tengist líka áskorunum hennar; „og því, segi ég, að hafa hugrekki til að taka U-beygjur. Ég sagði t.d. upp ágætlega launuðu starfi, flutti á stúdenta­garðana með syni mína til að fara að mennta mig sem kennari. Það voru margir óvissu­þættir og miklar breytingar fyrir okkur öll, en klárlega sigur fyrir mig. Að hafa kjark til að birta opinber­lega það sem ég skrifa og seiglu til að skrifa pistla í hverri einustu viku í rúm 10 ár þrátt fyrir að fjöl­miðlar landsins (nema Víkur­fréttir) hafi sagt við mig á sínum tíma að það væri ekki eftir­spurn eftir „svona“ efni.

Það var ákveðinn sigur að gefa sjálf út bók án þess að vita nokkuð um bóka­útgáfu og selja hana svo í stóru upplagi í miðjum Covid-stormi, án þess að hafa dreifingar­aðila eða auglýsendur á bak við mig. Að hafa vit á að kveðja verkefni sem eiga ekki lengur við mig og standa með sjálfri mér þegar á brattann hefur verið að sækja. Svo er auðvitað stærsti sigurinn að eiga syni, tengda­dóttur og barnabarn sem ég elska út af lífinu, svo ég tali nú ekki um yndis­legan systkinahóp, fjöl­skyldur þeirra og góða vini sem gera líf mitt svo innihalds­ríkt.“

Við deyfum okkur með því að beina reiði fyrir utan okkur

„Ég held að við gætum verið duglegri að skoða okkur sjálf þegar okkur líður illa, í stað þess að benda á umhverfið eða fólkið í kringum okkur. Þurfum að þora að segja hvernig okkur líður og byggja þannig upp tengsl við aðra, í stað þess að vera svona dómhörð á allt og alla. Þegar við erum að fara í gegnum krefjandi tíma erum við meira að hugsa um okkur sjálf og minna að huga að heildinni og þá byrjum við að gliðna í sundur. Við deyfum okkur jafnvel með því að beina reiði okkar gagnvart einhverju eða einhverjum fyrir utan okkur. Ekkert samtal á sér stað, engin tengsl, bara ásakanir eða ofbeldi. Öskrum mikið – hlustum lítið. Ég vel að lifa ekki þannig. Með því að viðurkenna að líðan okkar er alls konar og við séum oft að upplifa vanmátt og óöryggi, aukum við líkur á tengslum sem við þurfum svo sannarlega á að halda í dag.

Það er erfitt að viðurkenna vanmátt sinn, sérstak­lega þegar dómstóll götunnar gerir lítið úr honum. Þess vegna eru margir í dag farnir að hugsa sig tvisvar um áður en þeir gefa færi á sér opinber­lega. Þeir sem hafa hugrekki til að deila erfiðum sögum, þurfa umfram allt að upplifa öryggi og tengsl. Við deilum með þeim sem geta veitt okkur öryggis­tilfinningu og hafa burði til að tengjast okkur á heil­brigðan hátt.

Ég held að eitt af mik­il­væg­ari „bólu­efn­unum“ í dag sé heil­brigð, jákvæð og upp­byggi­leg tengsl

Ég vildi óska þess að við tækjum okkur saman og værum meira til staðar fyrir hvert annað. Við erum lítið land og höfum alla burði til að hlúa vel að fólkinu sem hér býr. En við þurfum að gera það saman, það er enginn sem gerir þetta fyrir okkur. Ég held að eitt af mikil­vægari „bólu­efnunum“ í dag sé heilbrigð, jákvæð og uppbyggileg tengsl. Við þurfum landsátak í tengsla­vinnu segi ég! Þarf ekki að vera flókið að efla tengslin, en það sem ég geri er:“

Góð ráð til að huga að andlegu hliðinni:

  • Minni sjálfa mig á að þegar mig langar ekki að hitta neinn þá þarf ég mest á því að halda.
  • Stunda útivist en 15 mínútur í nátt­úrunni duga t.d. til að fá fram heilunar­áhrif. Göngutúr með vini getur gert krafta­verk.
  • Iðka þakklæti fyrir það sem lífið hefur fært mér – skrifa það jafnvel í dagbókina.
  • Deili líðan minni með einhverjum sem ég treysti og er til í að hlusta og gerir ekki lítið úr því sem ég er að upplifa.
  • Afmarka frétta­inntöku og samfélags­miðla­notkun. Heilinn hefur neikvæða slagsíðu og eftir hálftíma þar, finnst mér allt vera að fara fjandans til.
  • Hlusta á uppbyggilegar bækur. Er núna að hlusta á Love Your Enemies eftir Albert C. Brooks, en hann deilir áhyggjum mínum um tengsla­leysi og fyrir­litningar­menninguna sem er í gangi í heiminum í dag.
  • Er í kringum fólk sem lifir heilt í sér og hefur hugrekki til að vera það sjálft með kostum og göllum.
  • Skrifa og deili með öðrum, sem hefur verið mikilvægt bjargráð fyrir mig síðustu ár.
  • Svo hvet ég lesendur til að kíkja í Hamingju­hornið mitt en ég hef svo oft sagt, að lesenda­hópurinn minn er einstakur, sýnir mér og öðrum bæði virðingu og þakklæti sem skiptir ekki litlu máli í dag.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá