Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Listi yfir kaupendur í Íslandsbanka

Íslandsbanki
Íslands­banki

Fjármála­ráðuneytið birti síðdegis lista yfir þá sem keyptu 22,5 prósent hlut ríkisins í Íslands­banka. Samtals tóku 209 fjár­festar þátt í útboðinu.

Á listanum eru lífeyris­sjóðirnir áberandi. Stærsti einstaki kaup­andinn var Gildi lífeyris­sjóður sem keypti 30 milljón hluti fyrir rúma þrjá og hálfan milljarð. Þar á eftir koma Lífeyris­sjóður starfs­manna ríkisins , Brú lífeyris­sjóður og lífeyris­sjóður verslunar­manna. Aðrir voru undir fjórum prósentum af heildar­sölunni.

Hér má sjá listann yfir kaupendur í heild sinni.

Mikil eftir­spurn var eftir hlutum í Íslands­banka. Alls buðu 430 fjár­festar í 450 milljón hluti. 50 milljón hlutir í bankanum voru seldir á genginu 117 krónur á hlut eða samtals fyrir 52,7 milljarða króna. 209 hæfir fjár­festar tóku þátt.

Óvarlegt væri að birta upplýsingar um mótaðila ríkisins í viðskiptum

Fjármála­ráðuneytið óskaði eftir listanum 30. mars og skír­skotaði til laga um sölu­meðferð eignar­hluta ríkisins í fjármála­fyrirtækjum, þar sem lögð er áhersla á gagnsæi við sölu hluta. Degi síðar fékk ráðuneytið svar frá Banka­sýslunni þess efnis að óvarlegt væri að birta upplýsingar um mótaðila ríkisins í viðskiptunum, með vísan til laga um fjármála­fyrirtæki, er varðar banka­leynd, eins og fram kemur á vef Stjórnar­ráðsins.

1. apríl óskaði fjármála­ráðuneytið þá eftir afstöðu fjármálaeftirlitis Seðla­banka Íslands til þess hvort laga­ákvæði um banka­leynd stæði því í vegi að upplýsingarnar yrðu gerðar aðgengilegar. Ráðuneytinu hefur ekki borist svar frá Seðla­bankanum.

Listinn barst fjármála­ráðuneytinu svo í dag, en þar er afstaða Banka­sýslu ríkisins ítrekuð – að óvarlegt sé að gera yfirlitið aðgengilegt almenningi.

Að mati ráðuneytisins falla upplýsingar um viðskipti á milli ríkis­sjóðs og fjárfesta aftur á móti ekki undir banka­leynd og með hliðsjón af mikilvægi þess að gagnsæi ríki um ráðstöfun opinberra hagsmuna er ákveðið að birta yfirltiið, að því er fram kemur á vef Stjórnar­ráðsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá