Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Árásarmaðurinn ók til Þingvalla – Myrti elskhuga fyrrum konu sinnar

Valur Grettisson. 31. Júlí. 2007. Tómas Björnsson myrti Stefán Jónsson í Reykjavík í gær: Myrti mann og skaut sig. Dagblaðið Vísir – DV.
Valur Grett­is­son. 31. Júlí. 2007. Tómas Björns­son myrti Stefán Jónsson í Reykja­vík í gær: Myrti mann og skaut sig. Dag­blaðið Vísir – DV.

Stefán var skotinn til bana á Sæbraut í Reykjavík, 29. júlí árið 2007. Árásar­maðurinn, Tómas, notaði tuttugu og tveggja kalibera tékkneskan riffill til verksins. Stefán náði að forða sér áður en árásar­maðurinn skyti aftur og var honum hleypt inn í sendi­ferðabíl, sem var á leið framhjá skotstað.

Þegar Stefán var kominn upp í sendi­ferðabílinn tók ökumaður sendi­ferða­bílsins eftir því að Stefán hreyfði sig ekki. Hann keyrði að Laugar­dalslaug þar sem hann og starfs­menn laugarinnar reyndu að koma Stefáni aftur til lífs meðan beðið var eftir sjúkrabíl. Stefán var úrskurðaður látinn á Land­spítalanum stuttu síðar.

Árásar­maðurinn ók til Þingvalla þar sem hann svipti sig lífi með sama skotvopni. Skildi hann eftir bréf þar sem hann útskýrði gjörðir sínar. Tómas hafði myrt elskhuga fyrrum konu sinnar.

Skilnaðurinn þungbær

Skilnaður eftir 10 ára hjónaband lagðist svo þungt á Tómas að hann sökk niður í þunglyndi og afbrýðisemi. Hann var vistaður á geðdeild um tíma eftir skilnaðinn. Tómas ofsótti fyrr­verandi eiginkonu sína og njósnaði um heimili hennar.

Fréttirnar komu þeim sem var rætt við mjög á óvart. Tómas hafði virst vera sléttur og felldur í samskiptum sínum við annað fólk. Einn viðmælanda lýsti honum sem týpískum banka­strák og kom þetta verulega á óvart.

Geðslag Tómasar mun hafa verið orðið svo þungt undir lokin að móðir hans mun hafa hringt til æskuvinar hans í Danmörku rétt fyrir morðið. Það gerði hún til að fá útskýringar á undarlegri hegðun hans sem var úr öllum takti við það jafnaðargeð sem áður hafði einkennt hann. Hann var meðal annars illa haldinn af svefn­leysi og djúpu þunglyndi vegna skilnaðarins.

Áreitti fyrrum konu sína ítrekað

Tómas og konan hans höfðu verið gift í 10 ár þegar þau skildu rétt upp úr 2000. Saman áttu þau eitt barn. Stuttu eftir skilnaðinn munu Stefán og fyrrum kona Tómasar hafa tekið saman. Þau voru æskuvinir frá Sauðár­króki. Þá mun Tómas hafa byrjað að áreita fyrrum konu sína ítrekað. Þetta gerði hann hvort tveggja með því að hringja í tíma og ótíma sem og njósna um hús hennar. Ofsóknir Tómasar voru aldrei kærðar til lögreglunnar en ljóst er að þær urðu meiri með hverri vikunni.

Grunur lék á því að Tómas hafi beðið fyrir utan hús fyrrum eiginkonu sinnar aðfara­nótt sunnudags. Óstaðfestar heimildir hermdu að hann hafi stungið á dekk bifreiðar Stefáns. Ekki var ljóst hvert Stefán var að fara þennan morgun, en hann var menntaður lífefna­fræðingur og starfaði hjá Íslenskri Erfða­greiningu.

Talið er að Tómas hafi veitt Stefáni eftirför þennan örlaga­ríka dag. Tómas hafði með sér tékkneskan Winchester riffil. Svo virtist sem Tómas hafi endanlega misst vitið þennan morgun því hann skaut Stefán í brjóstið og endaði á að svipta sig lífi.

Heimildir:

Innlent. 29. júlí 2007. Myrti elskhuga fyrr­verandi konu sinnar og svipti sig svo lífi. Vísir.

Valur Grettisson. 31. júlí. 2007. Tómas myrti Stefán í Reykjavík í gær: Myrti mann og skaut sig. Dagblaðið Vísir – DV.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá