Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Skotmaðurinn á Egilsstöðum dæmdur í átta ára fangelsi – Mun áfrýja dómnum

Þórður Már Jónsson og Árnmar Jóhannes Guðmundsson
Þórður Már Jónsson og Árnmar Jóhannes Guð­munds­son Mynd: Gunnar Gunnarsson – Austurfrétt

Í dag var Árnmar Jóhannes Guðmundsson dæmdur í átta ára fangelsi fyrir skotárás á Egils­stöðum í ágúst í fyrra. Var hann sakfelldur fyrir alla ákæruliði. Ætlar Árnmar að áfrýja dómnum.

Rúv segir að Árnmar hafi verið sakfelldur fyrir alla ákæruliði; tvær tilraunir til manndráps, húsbrot, eingnaspjöll, vopna­lagabrot, brot í nánu sambandi og brot gegn vald­stjórninni. Voru skotvopn Árnmars gerð upptæk og hann dæmdur til að greiða skaða­bætur og miska­bætur.

Sjá einnig: Áfalla­miðstöð opnuð á Egils­stöðum eftir skotárás – Maðurinn liggur þungt haldinn

Eins og Mannlíf fjallaði um ítarlega síðasta sumar, hótaði Árnmar þáverandi sambýlis­konu sinni með skamm­byssu á heimili þeirra í Fellabæ. Eftir það fór Árnmar til Egils­staða, að húsi barns­föður sambýlis­konunnar og hugðist, samkvæmt dómnum, að bana barns­föðurnum. Hann var ekki heima en tveir synir hans og sambýlis­konu Árnmars voru það. Beindi hann hlaðinni hagla­byssu að sonunum en þeim tókst að flýja út. Árnmar skaut þá á muni innandyra og á tvo bíla fyrir utan húsið. Að lokum skaut hann að tveimur lögreglu­mönnum og högl úr byssu hans lentu á vegg og rúðum húss á móti. Lauk atburða­rásinni á þann hátt að lögreglan skaut Árnmar í kviðinn eftir að hann hafði beint hagla­byssu að lögreglu­manninum og ekki hlýtt ítrekuðum skipunum lögreglunnar um að leggja niður vopn.

Var hann fluttur með sjúkra­flugi til Reykja­víkur þar sem tókst að bjarga lífi hans.

Mannlíf ræddi við verjanda Árnmars, Þórð Má Jónsson og spurði hvað honum fyndist um dóminn. „Ég vil ekki tjá mig um hann að öðru leiti en að segja að honum verði áfrýjað. Er ekki sáttur við að hann hafi verið dæmdur fyrir alla ákæru­liðina, tel hann hafa átt að vera sýknaður af ákveðnum ákærulið.“

Aðspurður um það hvaða ákæru­liður það væri svaraði Þórður: „Tilraun til manndráps.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá