Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Refsiþyngingu beitt í sérlega grófu nauðgunarmáli – Sakborningur þarf þó aldrei að sitja í fangelsi

Í nýjasta tímariti Mannlífs er fjallað um skilorðs­bindingu nauðgunar­dóma og þá staðreynd að sakborningar í grófum kynferðis­brotum þurfa í mörgun tilfellum ekki að sitja af sér dóma sína hér á landi. Farið er yfir nýlegt mál þar sem brotið þótti svo gróft að refsiþyngingar­ákvæði var beitt, en dómurinn var þrátt fyrir það skilorðs­bundinn að fullu.

Í greininni er málið reifað og íslenska dóms­kerfið borið saman við það sænska, hvað varðar kynferðis­brotamál og refsingar. Einnig er rætt við nokkra álits­gjafa.

Löng málsmeðferð

Í frétta­skýringa­þættinum Kveik var nýverið fjallað um brota­lamir á máls­meðferð kynferðis­brota í réttar­kerfinu. Einn brota­þolinn sem steig fram með sögu sína í þættinum lýsti því hvernig meðferð á nauðgunar­máli hennar hefði tekið sex ár í heildina, á tveimur dómstigum. Málið endaði með sakfellingu – en dómurinn var skilorðs­bundinn að fullu. Ástæða þess var sögð löng máls­meðferð og að ekki væri hægt að kenna sakborningi um það. Sama skýring var gefin á skilorðs­bindingu dómsins yfir Jóni Páli Eyjólfs­syni.

Það brot átti sér stað á hótel­herbergi erlendis árið 2008. Árið 2018 hóf lögregla frumkvæðis­rannsókn á málinu, sem endaði með ákæru. Dómur Héraðs­dóms Reykja­víkur, sem féll þann 30. nóvember árið 2020, lýsir grófu ofbeldi Jóns Páls á hendur brotaþola. Þar segir meðal annars að hann hafi kastað sér á konuna þar sem hún lá í rúmi á hótel­herberginu og haldið henni fastri. Hún hafi barist um og átökin endað með því að konan féll í gólfið. Þar hafi Jón Páll komið í veg fyrir að hún gæti staðið á fætur með því að grípa í fótlegg hennar, svo hún skall harkalega með hnéð í gólfið og datt á bakið. Þá hafi hann sett hné sitt í bringu hennar með þeim afleiðingum að hún hlaut stóran marblett af.

Þar segir meðal ann­ars að hann hafi kastað sér á kon­una þar sem hún lá í rúmi á hót­el­her­berg­inu og haldið henni fastri.

Eftir þetta hafi konunni tekist að skríða aftur upp í rúm sitt en þangað hafi Jón Páll elt hana, lagst ofan á hana og haft við hana samræði án samþykkis hennar. Skýrslur frá neyðar­móttöku, sem konan leitaði til daginn eftir, við komuna til Íslands, sýna að hún hefði meðal annars hlotið marga marbletti og sár á ýmsum stöðum, rispur og núningssár auk sprungu í slímhúð við leggangaop. Allt var þetta talið samræmast sögu hennar. Myndir voru teknar af áverkunum á neyðar­móttöku.

Í niðurstöðu­kafla skýrslu læknis segir að brotaþoli hafi gefið greinar­góða sögu þegar hún leitaði á neyðar­móttöku og gekkst undir skoðun. Hún hafi verið dofin, tætt og aum um allan líkama og í kynfærum.

Meðal gagna í málinu voru skrifleg samskipti Jóns Páls og brotaþola þar sem Jón Páll gekkst afdráttar­laust við brotinu. Fram­burðir vitna fyrir dómi voru taldir auka trúverðug­leika fram­burðar brotaþola en draga úr trúverðug­leika fram­burðar Jóns Páls. Brotaþoli var sagður hafa verið samkvæmur sjálfum sér um megin­atriði málsins frá upphafi og fram­burður því talinn trúverðugur.

Hún hafi verið dofin, tætt og aum um allan lík­ama og í kyn­færum.
Jón Páll Eyj­ólfs­son.

Skilorðsbinding jafnar refsiþyngingarákvæði við jörðu

Jón Páll var sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 194. gr. almennra hegningar­laga nr. 19/1940 með því að hafa án samþykkis haft samræði við brotaþola, með því að beita hana nánar tilgreindu ofbeldi og ólögmætri nauðung svo að hún hlaut áverka af.

Í héraðs­dómi beitti héraðs­dómarinn Barbara Björns­dóttir refsiþyngingar­ákvæðinu (195. gr. almennra hegningar­laga), sem er einungis beitt þegar ofbeldið er „stórfellt og sérlega sársauka­fullt og meiðandi“. Þannig er ákvæðið almennt einungis notað í tilfelli nauðgana sem taldar eru sérlega ofbeldis­fullar og alvarlegar. Þrátt fyrir þetta var sú ákvörðun tekin að skilorðs­binda refsinguna, sem svo var staðfest af Lands­rétti. Með öðrum orðum; Jón Páll Eyjólfsson þarf aldrei að sitja í fangelsi fyrir brot sitt.

Í augum hins almenna leikmanns getur það ekki annað en vakið undrun að refsiþyngingar­ákvæði sé beitt í máli sem þessu, en dómurinn svo skilorðs­bundinn að fullu. Þarna má segja að skilorðs­bindingin, refsileysið, jafni refsiþyngingar­ákvæðið við jörðu.

Með öðrum orðum; Jón Páll Eyj­ólfs­son þarf aldrei að sitja í fang­elsi fyrir brot sitt.

Héraðs­dómari lagði til grund­vallar skilorðs­bindingu dómsins að langt væri liðið frá því brotið var framið og að rannsókn hefði dregist á langinn.

Þegar málið er skoðað í samhengi við þá skýringu kemur ýmislegt í ljós sem dregur úr réttmæti hennar.

Þegar málið var kært var um áratugur liðinn frá brotinu. Kynferðis­brot þar sem þyngsta refsing varðar meira en tíu ára fangelsi fyrnast á fimmtán árum. Rannsókn málsins tók um 14 mánuði, sem er ekki lengra en gengur og gerist í þessum mála­flokki. Auk þess var það ekki ákvörðun brotaþola að kæra málið, heldur hóf lögregla frumkvæðis­rannsókn á málinu, eins og fram kemur í dómnum og réttar­gæslumaður brotaþola hefur bent á. Augljós­lega þótti lögreglu því full ástæða til að rannsaka brotið og færa það svo inn á borð ákæru­valdsins, enda er um að ræða sérlega ofbeldis­fulla árás.

Greinina má í heild sinni lesa í vefútgáfu blaðsins. Einnig má nálgast ókeypis eintak af tíma­ritinu í Hagkaup, Bónus og á N1.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá