Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Gyrðir segir umhverfið skipta máli: „Ég sæki oftast bein áhrif út fyrir þéttbýlið“

Gyrðir Elíasson
Gyrðir Elíasson Mynd: Johannes Jansson

Afmælis­barn dagsins er rithöfundurinn, ljóð­skáldið og þýðandinn Gyrðir Elíasson. Fæddist hann á þessum degi árið 1961, sem gerir hann 61 árs.

Gyrðir gaf út fyrstu ljóðabók sína, Svarthvít axlarbönd árið 1983 og hefur síðan gefið út um 20 ljóða­bækur. Það var hins vegar þegar fyrsta skáldsaga hans, Gangandi íkorni kom út árið 1987, sem Gyrðir sló rækilega í gegn. Er hann með duglegri höfundum landsins en eftir hann liggja tugir bóka, bæði þýddar og frum­samdar. Þykir Gyrðir góður stílisti og skáldsögur hans ljóðrænar en margar þeirra hafa verið gefnar út í öðrum löndum. Hafa verk hans hlotið fjöldi verðlauna í gegnum árin og er hann í flokki allra virtustu rithöfunda landsins.

Á heimasíðu Miðstöðvar íslenskra bókmennta má finna viðtal sem Sagenhaftes Island tók við Gyrði. Þar er hann meðal annars spurður út í það hvort umhverfið skipti máli við skrifin en spyrlinum þótti skrítið að Gyrðir gæti samið í borgar­niðnum í Grafar­voginum.

„Já, það hefur nú gert það. Yfirleitt er kveikjan eða frum­hugmyndin komin til annars staðar frá, utan borgar­marka. Grunn­hugmynd að sögu eða ljóði getur orðið til að sumarlagi í nátt­úrunni eða einhvers staðar fjarri, þó maður svo fullvinni hlutina heima hjá sér í borginni. Það hefur einhvern veginn alltaf verið þannig með mig að umhverfið hefur skipt mig máli á þennan hátt. Ég sæki oftast bein áhrif út fyrir þéttbýlið. Þó að vísu það gerist að ég skrifi um borgar­landslagið, þá er það annars eðlis, önnur nálgun,“ svaraði Gyrðir.

Mannlíf óskar Gyrði innilega til lukku með daginn!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá