Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Hamfaraflóttakona úr Eyjum með ólæknandi sjúkdóm: „Bæði kerfin hafa sínar takmarkanir“

Heiða Björk við saunatunnuna sína í Grímsnesinu.
Heiða Björk við sauna­tunn­una sína í Gríms­nes­inu.

„Áskoranir mínar eru breytilegar frá einu tímabili til annars. Eitt sinn var heilsa sonarins mín helsta áskorun, en síðustu árin hefur það verið mín eigin heilsa, sem hefur verið mikil áskorun. Ég er með ólæknandi sjúkdóm, lungna­slagæðar­háþrýsting, sem hefur skert getu mína til að starfa við það sem ég hef fengist við síðustu áratugi. Ég hef starfað sem leið­sögumaður og ferðast með spænsku­mælandi ferðamenn um íslensk fjöll og firnindi auk þess að sinna kennslu í framhalds­skóla þar sem ég hef kennt sögu og umhverfis­fræði.

Ég þarf samt að sníða mér stakk eftir vexti og forð­ast mikið álag og streitu

Fyrir 15 árum fór ég að finna fyrir mikilli þreytu og mæði og gekk á milli lækna til að leita að orsökinni. Þetta ástand var sérlega óvenjulegt fyrir mig, sem alltaf hafði hreyft mig mikið, gengið á fjöll og hjólað í vinnuna. Það var ekki fyrr en fimm árum síðar sem í ljós kom hvað að mér amaði og ég sett á lyf sem hægðu á þróun sjúk­dómsins og um leið minnkaði mæðin og þreytan. Ég þarf samt að sníða mér stakk eftir vexti og forðast mikið álag og streitu.

Ég fer í rólegheita­ferðir með túristana, ekki miklar göngur eða eitthvað sem krefst mikillar áreynslu. Þar til fyrir 20 árum voru meðallífs­líkur fólks með þennan sjaldgæfa sjúkdóm aðeins þrjú ár eftir greiningu, en ný lyf hafa breytt þessum lífslíkum og nú eru 10 ár frá því að ég greindist og ég er bara ansi góð. Ég þarf að beita öllum verk­færunum í náttúru­lækninga­töskunni til að vinna með hinum vestrænu lyfjum sem halda sjúk­dómnum í skefjum og fylgja góðum siðum í næringu og lífsstíl og mjög mikilvægt er að lágmarka stress.

Ég nota jurtir, fæðu og æfingar til að vinna gegn einkennum sjúk­dómsins og óæskilegum auka­áhrifum af lyfjunum og hef tekið eftir því að andlegt og tilfinningalegt álag er verst fyrir mig. Þá hrakar mér og þarf að leggja sérlega hart að mér til að ná mér upp aftur. Það er kannski ekki skrýtið, því samkvæmt ayurveda er rót hugans í hjartanu. Hugur og hjarta eru þannig nátengd og tilfinningar hafa bein áhrif á hjarta. Ég er einmitt rétt nýkomin heim frá Spáni, þar sem ég var á heilsu­hóteli í ayurveda-lækninga­meðferð sem kallast panchakarma. Þar var ég hresst við aftur eftir dýfu niður á við síðustu tvö ár.“

Þetta segir Heiða Björk Sturlu­dóttir, jóga­kennari, næringar­þerapisti, ayurveda-ráðgjafi, sagn­fræðingur, umhverfis­fræðingur, ökuleið­sögumaður og kennari. Mannlíf heyrði í Heiðu og fékk að fræðast um náttúru­lækningarnar, lífið og jógað.

Húsið fór á bólakaf í vikur og ekki hægt að grafa það upp

Heiða segist vera hamfara­flótta­kona úr Eyjum. Hún var á sjötta ári þegar gaus þar árið 1973 og fjöl­skyldan endaði í Viðlaga­sjóðs­húsi í Mosfells­bænum þar sem myndaðist Vestmanneyinga­nýlenda. Húsið fór á bólakaf í vikur og ekki hægt að grafa það upp og lappa upp á það, eins og raunin var með mörg önnur hús. Það hefur sennilega ýtt undir að foreldrarnir fóru aldrei aftur til baka, heldur komu sér fyrir „uppi á landi“ og bjuggu sér þar til nýtt líf.

„Þar sem ég ólst upp í Mosfells­bænum fór ég að sjálfsögðu að vinna við garðyrkju að Reykjum, taka upp rófur á sumrin, vinna á Álafossi í lopanum og síðast en ekki síst að vinna við umönnun sjúkra á Reykja­lundi, sem átti sérlega vel við mig. Enda var og er Reykja­lundur einstök vin í skjóli Helga­fellsins og umvafinn skógi og með svo góðan anda innanborðs.

Á Reykja­lundi vann ég samhliða námi bæði í framhalds­skóla (Mennta­skólanum við Hamrahlíð) og síðar á háskóla­árunum. Þetta var nánast fjölskyldu­vinnustaður, því þarna vann móðir mín líka árum saman sem sjúkra­liði og annar bróðir minn vann þar lengi í söludeild.

Ég var mikil íþrótta­stelpa, þótt það hljómi ótrúlega í eyrum margra kunningja og samstarfs­manna í dag. Enda er ég þekkt fyrir það í dag að vita sjaldnast hvenær er t.d. HM, ólympíu­leikar eða Íslands­meistaramót í einhverju og þekki enga lands­liðsmenn með nafni, nema síðustu mánuði vegna me-too … öhömm. En á mínum yngri árum keppti ég mikið í frjálsum íþróttum og handbolta og náði svo langt að vera boðið að æfa með lands­liðinu í handbolta. Ég mætti á eina eða tvær æfingar, en gafst þá upp á alvörunni og hætti í íþróttum, enda orðin tvítug og áhuga­málin orðin önnur. Ég var mikið að grúska í alls kyns heimspeki og þá úr öllum áttum; grískri heimspeki, heimspeki Austur­landa, jóga-heimspeki,  að lesa um árur og fyrri líf og ég veit ekki hvað. Um leið hafði ég mikinn áhuga á öllu gömlu, að lesa um fyrri tíma í sagn­fræðiritum og klæða mig í gamaldags og skrýtin föt úr verslununum Fríðu frænku og Laura Ashley.“

Íhugaði með áttræðri vinkonu sinni

Casa Rural Ahora, heilsu­setrið í fjöll­unum vestur af Malaga. Á slök­unar- og heilsu­nám­skeiði.
Ég hef í raun alltaf haft mikla þörf fyrir ein­veru

Tvítug fór hún að læra innhverfa íhugun með vinkonu sinni áttræðri, sem hún var heimilis­hjálp hjá. Þær notuðu þessa hugleiðslu­aðferð báðar í tals­verðan tíma á eftir og fundu hvað hugleiðslan gerði þeim gott. Heiða segist alltaf hafa verið mikil ævintýra­manneskja og haft gaman af því að skondrast eitthvert ein eða reyna eitthvað nýtt. Henni datt í hug að taka sér hlé úr sagn­fræðinámi til þess að vinna eitt ár sem kennari í heimavistar­skóla í Svarfaðardal, sem hún segir að hafi verið stórkostleg reynsla. Hún hefur oft ferðast ein til Spánar í málaskóla, til að vinna við barna­pössun eða ganga Jakobs­veginn. Hann gekk hún t.d. ein sumarið 2006 og segir það hafa verið frábæra upplifun. Hún kynntist þar fjölskrúðugri flóru af fólki, en fékk um leið heil­mikinn tíma í að ganga ein og hugsa, hnusa af nátt­úrunni og fylgjast með mann­lífinu. Sumarið á eftir gekk hún sömu leið með æsku­vinkonunum og segir það hafa verið gerólíka reynslu – mikið fjör – en að hún hafi ekki kynnst jafn mörgu áhuga­verðu fólki, því að fólk nálgist mann síður ef maður er í hóp.

„Ég hef í raun alltaf haft mikla þörf fyrir einveru. Inni á milli þess sem ég baða mig í félags­skap fjöl­skyldu og góðra vina, hef ég samt mikla þörf fyrir einveru. Að draga mig í hlé og hafa næði og þögn með mér sjálfri. Þurfa ekki að halda uppi samræðum eða almennt að tala við neinn. Ég man eftir því hvað mér fannst spurningin furðuleg, þegar ég hjólaði frá heimili mínu í Hraunbæ í vinnuna á Reykja­lundi, sem var svona 45 mínútna hjólatúr fyrir mig, en vinkona spurði mig hvort mér leiddist ekki hrikalega á leiðinni! Fyrir mér var þetta bara góð stund. Svona erum við nú öll ólík.

Þess vegna á það mjög vel við mig að búa í kyrrðinni í Grímsnesinu, þangað sem ég flutti fyrir þremur árum með manni og þremur öldruðum köttum. Ég er hér ein, oft dögum saman, því maðurinn vinnur sem leið­sögumaður og fer stundum í vikulanga túra. Það á vel við mig að dunda mér hér ein heima, með köttum, fuglum og músum, og sinna hugðar­efnunum.“

Greindist með góðkynja æxli í höfði

Heiða segist alltaf hafa haft áhuga á náttúru­lækningum, hafa keypt sér bókina Íslenskar lækninga­jurtir um tvítugt og farið á sveppa­tínslu­námskeið og lært innhverfa íhugun. Þegar hún var 29 ára gömul greindist hún með góðkynja æxli í höfði og fór í kjölfarið dýpra í alls kyns náttúru­lækningar til að reyna að stöðva vöxtinn. Hún fór mikið í nudd, höfuð­beina- og spjaldhryggsjöfnun, spáði í næringu og leitaði í hugleiðslu og jóga. Allt þetta gerði að verkum að henni leið betur, en æxlið hélt áfram að vaxa og á endanum var það fjarlægt með skurð­aðgerð í Svíþjóð.

„Lof sé guði fyrir vestræn lækna­vísindi, en stundum eru þau það eina sem virkar. Ég er þannig mikil talskona samvinnu milli heilbrigðis­kerfa, eins og tíðkast t.d. í Sviss, Þýska­landi og Austur­ríki þar sem margir eru með það góðar sjúkra­tryggingar að þeir fara í panchakarma-meðferð til t.d. Indlands eða Srí Lanka og sjúkra­tryggingarnar þeirra borga. Panchakarma er læknis­meðferð ayurveda-vísindanna, sem notuð er þegar líkaminn er kominn í mikið ójafnvægi. Þessi meðferð styrkir líkamann til sjálfs­heilunar sem getur stutt mjög vel við lyfja- og geisla­meðferðirnar Vestrænu.  En stundum eru það náttúru­lækningarnar sem eru það eina sem virkar. Bæði kerfin hafa þó sínar takmarkanir.“

Sonurinn greindist með Tourette’s

Það var þó ekki fyrr en sonur hennar greindist, níu ára gamall, með ólæknandi tauga­röskun sem kallast Tourette´s sem hún fór á kaf í náttúru­lækningarnar. Þegar hann var orðinn það slæmur að það þurfti að fara að prófa lyf, brugðu hún og barns­faðir hennar á það ráð að nota leið náttúru­lækninga. Hún segir að þau hafi vitað að oft fylgi þessum lyfjum óæskilegar aukaverkanir og að árangur gæti dregist á langinn meðan verið væri að prófa stærð skammta o.s.frv.

Við breyttum matar­æði og lífs­stíl, los­uðum heim­ilið við eit­ur­efni og not­uðum bæti­efni með frá­bærum árangri

„Ég fylgdi þannig bók, sem ég uppgötvaði á netinu, bandarískra samtaka hefð­bundinna lækna og náttúru­lækna sem vinna saman að lækningu við Tourette´s. Við fylgdum bókinni í þaula og þeim ráðum sem þar voru gefin. Við breyttum mataræði og lífsstíl, losuðum heimilið við eiturefni og notuðum bætiefni með frábærum árangri. Fórum með drenginn í markvissa hreyfingu ásamt höfuð­beina- og spjaldhryggsmeðferð ásamt fleiru. Kippirnir og kækirnir sem höfðu gert honum lífið leitt voru á bak og burt eftir rúman mánuð. Ég skrifaði grein um þessa aðferð til að fleiri gætu farið þessa leið og sú grein leiddi til þess að fjöldi fólks hafði samband við mig til að leita ráða og eitthvað var um að mæður kæmu í heimsókn til mín til að fá að líta í skápana og sjá hvað ég notaði af matvælum.

Til að verða betur fær um að hjálpa fólki vildi ég mennta mig í fræðunum og fór í nám til Kanada, í skóla þar sem heitir Canadian College of Naturopathic Medicines, og fór þar í efnafræði og lífefna­fræði til að undibúa mig undir frekara nám í náttúru­lækningum. Ég lauk þessum forkröfu­áföngum, en hélt þó ekki áfram þar, því hrunið hafði gert að verkum að skóla­gjöldin ruku upp. Þess í stað fór ég í þriggja ára nám í næringar­þerapíu, Naturopathic Nutritional Therapy, í enskan skóla, Natural Healthcare College á Englandi. Þar var kennt í lotum og því þurfti ég ekki að búa á Englandi meðan á náminu stóð. Þegar ég var í náminu í Kanada, kynntist ég indverskum lækni sem stundar fornar lækningar­aðferðir Indlands.

Þegar óútskýrð veikindi herjuðu á son minn, fjórum árum eftir að hann jafnaði sig á Tourette’s, var ég stödd í Kanada og þessi indverski læknir tók hann í meðferð og setti hann á mjög einhæft, heilandi fæði og setti honum fyrir að gera vissar jóga­æfingar þrisvar á dag og hreinsa meltingar­veginn með saltvatns­aðferð. Með aðferðum indverska læknisins losnaði sonurinn loks við verkina og orku­leysið sem hafði hrjáð hann í nokkra mánuði, en læknar heima höfðu reynt margt og voru orðnir ráðþrota því ekkert dugði. Það má geta þess að síðan eru liðin 12 ár og syninum hefur varla orðið misdægurt síðan.

Hér er verið að brugga til­brigði við CCF-teið skv. ayur­veda-fræð­unum. Það örvar melt­ingu og efna­skipti.
Ayurveda-vís­indin eru svo praktísk og skemmti­leg og geta útskýrt margt

Þessi reynsla gerði að verkum að ég fór í jóga­kennaranám til að geta notað aðferðir jóga samhliða næringar­þerapíunni, enda vinnur þetta tvennt mjög vel saman. Í næringar­þerapíu­náminu var örlítið fjallað um ayurveda, indversku lífs­vísindin sem eru talin elstu heilbrigðis­vísindi mannkyns. Ég hreifst af ayurveda-vísindunum og ákvað síðan fyrir tveimur árum að mennta mig í þeim fræðum og fór alla leið og skráði mig í virtan skóla sem heitir Kerala Ayurveda Academy, þar sem fylgt er hefð Kerala-héraðs á Indlandi, en þar liggja rætur ayurveda. Þessi skóli er með höfuð­stöðvar og lækninga­stöðvar á Indlandi og rekur tvö útibú í Banda­ríkjunum. Nú er ég í framhalds­námi í ayurveda-lífs­vísindunum til að geta betur greint rætur veikleika hjá einstaklingum ásamt því að farið er dýpra í virkni jurta sem notaðar eru við heilun líkama og hugar. Ayurveda-vísindin eru svo praktísk og skemmtileg og geta útskýrt margt.

Eftir að ég lærði ayurveda horfi ég á fólk og aðstæður í kringum mig með öðrum og skilnings­ríkari augum. Ég horfi á stjórn­málamenn og finnst borð­leggjandi að þar sé kannski kapha-týpa á ferðinni eins og t.d. Sigurður Ingi, eða vata-týpa eins og hún Katrín Jakobs, eða pitta eins og hann Bjarni Ben. Mjög skemmtilegt. Sem dæmi get ég tekið sjálfa mig – ég er haldin óslökkvandi fróðleiks­fýsn og nýjunga­girni. Ég hef nánast alla ævi verið í einhverju námi – sem ég hef núna lært að stýrist að nokkru leyti af því að mín meðfædda líkams­gerð er vata – þ.e. vata-orkan er sú orka sem er ríkjandi í mínum líkama og huga. Það er glíma að halda þessari orku í skefjum, en hún stýrir einnig hreyfingu og breytingum sem hafa verið ansi einkennandi á minni ævi fram til þessa.“

Hefur búið á 31 mismunandi stað

Heiða og Þröstur, mað­ur­inn hennar, í jóga­ferð­inni til fjall­anna vestur af Malaga. „Erum við upp­sprettu­lind í Hrægammagljúfri þar sem við böð­uðum okkur í tæru vatn­inu.“

„Ég held að fáir toppi mig í fjölda heimila. Ég hef búið á 31 mismun­andi stað hingað til, sem minn ástkæri eigin­maður á erfitt með að ímynda sér, en hann er gerólíkur mér í þessum þeytingi og breytinga­gleði og hefur aðeins búið á 11 stöðum um ævina. Þessar orku­tegundir sem stýra virkni líkama okkar og huga kalla ayurveda-vísindin vata, pitta og kapha. Allir eru með allar þrjár orku­tegundirnar í sér, en í mismiklum mæli. Þær ríkja síðan í mismun­andi líkams­hlutum og líkams­starfsemi hjá hverjum og einum. Út frá þessu er síðan líkams­gerð hvers og eins skilgreind. Þannig er ayurveda-heilsu­fræðin meira einstaklingsmiðuð en önnur heilsu­vísindi, því það er ekki það sama sem hentar hverjum og einum og alls ekki í hvaða aðstæðum sem er eða á hvaða árstíð sem er, svo eitthvað sé nefnt.

Fyrir suma virkar vel að hætta að væla og byrja að kæla, en fyrir aðra er það hrein­lega veiklandi fyrir heils­una. Eins með ketó o.s.frv.

Eins meðal getur þannig verið annars eitur, eins og sagt er. Þannig er það alls ekkert sniðugt að borða mikið hrásalat og hráfæði fyrir þá sem eru mikið vata og allra síst á veturna í íslenska kuldanum. En fyrir þá sem eru mikið pitta getur það verið fínt í hitanum á sumrin. Tísku­sveiflur í heilsu­geiranum eru því missniðugar fyrir fólk. Fyrir suma virkar vel að hætta að væla og byrja að kæla, en fyrir aðra er það hreinlega veiklandi fyrir heilsuna. Eins með ketó o.s.frv.“

Núllstilla líkamann

Ayurveda-nám­skeið síð­asta sumar, þar sem legið var í gras­inu og notið Gong-tón­heil­unar í sól­inni.

Heiða segist oft vera með jóga- og djúp­slökunar­námskeið heima hjá sér í Grímsnesinu, þar sem hún er með jógatjald úti í garði, en stundum er hópurinn inni í rúmgóðri stofunni ef veður er leiðinlegt og á veturna. Hún heldur regluleg námskeið í samvinnu við Systra­samlagið og í Síðumúla þar sem hún er með skrif­stofu.

Reglulega býður hún upp á vor- og haust­hreinsun í anda ayurveda. Þá er fæði, jurtir og æfingar notaðar til að leiða eitur- og úrgangs­efni út úr líkamanum og síðan er styrkur líkamans byggður jafnt og þétt upp aftur. Þannig má segja að verið sé að núll­stilla líkamann aftur eftir það ójafnvægi sem hefur náð að safnast upp með óhollri næringu og lífsstíl. Í ayurveda er mælt með slíkum hreinsunum einu sinni til tvisvar á ári.

Ekki hægt að forðast sársaukann endalaust

Að missa það sem okkur er kært skapar sárs­auka

„Mér hefur verið hugleikið undan­farið hvernig hugar­farið getur annaðhvort styrkt okkur eða veiklað. Hvaða innréttingar við höfum valið í hugar­húsið okkar. Fyrir mér er lífið endalaust hindrunar­hlaup og ég reyni að forðast að líta á það sem sjálfsagt mál að allt leiki alltaf í lyndi hjá mér og mínum. Lífið er ekki þannig og ef svo væri myndum við sennilega verða leið á endanum. En hindrunar­hlaupið er þannig, að það er hindrun sem þú stekkur yfir og síðan er sléttur kafli þar sem þú brunar áfram án erfið­leika og síðan önnur hindrun. Maður verður að njóta sléttu kaflanna, vitandi að það mun koma önnur hindrun, því ekkert er í heiminum eilíft eins og svo mörg austræn heimspeki­kerfi benda okkur á.

Við munum aldrei vera að eilífu ung, falleg eða heilsu­hraust. Við erum sífellt að tapa einhverju, hvort sem það er æskuþokki, heilsa, æra, starf, maki, vinir, foreldrar og börn. Að missa það sem okkur er kært skapar sársauka. En við þurfum að halda áfram vitandi að þetta er eðli tilverunnar. Hlutir verða til og hlutir eyðast. Eins og hringrás nátt­úrunnar.

Við getum iðkað reglulega hugleiðslu og hreyfingu og gefið líkama og huga fæðu sem styrkir okkur frekar en veiklar okkur

Ekki er hægt að forðast sárs­aukann endalaust, en með því að vera undirbúin andlega og samþykkja að það munu verða hindranir, getum við þjálfað okkur í að stökkva yfir þær eins auðveldlega og hægt er. Við getum iðkað reglulega hugleiðslu og hreyfingu og gefið líkama og huga fæðu sem styrkir okkur frekar en veiklar okkur. Með góðri næringu, hreyfingu, reglulegri andlegri iðkun stælum við líkama og huga og erum betur í stakk búin til að takast á við hindranir og erfið­leika.“

Fólk leitar til hennar með meltingarkvilla, orkuleysi og kvíða

Þegar melt­ingu er kippt í lag, batnar orkan og and­leg líðan um leið
„Malaga, þar sem ég hef dvalið mikið síð­ustu ár, heilsu­bú­garð­ur­inn í fjöll­unum vestan við Malaga­borg“

Meltingar­kvillar er ansi algengir og leitar fólk mikið til hennar með hægða­tregðu, fæðuóþol, brjóst­sviða og slíkt. Einnig eru margir að glíma við liðabólgu, orkuleysi og andlega vanlíðan. Hún segir að það sé ótrúlegt hversu mikið sé hægt að bæta andlega líðan í gegnum betri næringu, enda hafa vestræn lækna­vísindi núna uppgötvað áhrif þarma­flórunnar á andlega líðan. Þetta vissu ayruveda-vísindin fornu fyrir 5.000 árum og lýsa litlu verunum í iðrum okkar sem hafa áhrif á heilann og tauga­kerfið. Í ayurveda er enda lögð mikil áhersla á ristil­heilsu í andlegum veikindum.

„Breyting á mataræði og lífsstíl hefur líka margoft leitt til betri andlegrar líðunar hjá þeim sem leita til mín. Oft er margt sem hrjáir manneskjuna og melting er kannski eitt vandamál af mörgum. Þegar meltingu er kippt í lag, batnar orkan og  andleg líðan um leið, því meltingin er miðstöðin í líkama okkar þar sem orka er mynduð og öll önnur starfsemi er háð því sem þar fer fram.

Ayurveda-fræðin hafa líka reynst mér mjög vel í glímunni við einkenni breytinga­skeiðs, eins og hita­bylgjur sem koma reglulega yfir landið og svefn­truflanir. Ég veit hvað ég þarf að gera þegar sú óáran byrjar og ástandið snar­lagast með því að fylgja ströngu mataræði og gera æfingar.“

Lögmálið í ayurveda til að halda heilsu og lifa góðu lífi býður okkur að flæða með hrynjanda  nátt­úrunnar. Ayurveda gengur mikið út á það. Þannig erum við hluti af nátt­úrunni og hún hefur áhrif á okkur, hvort sem það eru árstíðir, tími dagsins, matvæli, jurtir eða hugsanir. Þannig skiptir t.d. máli hvenær við gerum hlutina. Það  er ekki sama hvort þú borðar hrásalat í sumarhita eða vetrar­kulda hvenær þú ferð á fætur og að sofa. Allt hefur þetta ólík áhrif á líkamann og hugann. Ef þú ferð gegn hrynjandanum fer dýrmæt orka líkamans í það. Rétt eins og ef þú kýst að brölta upp á móti straumnum í ánni.

Það tekur tíma að brjóta upp vana

Við vitum að eitt­hvað er óhollt og veiklar okkur, en kjósum samt að gera það

„Margir telja ekkert virka þegar heilsu­brestur bankar upp á, nema vestræn lyf og í mesta lagi sálfræði­meðferð, en ekkert meira út fyrir boxið. Aðrir eru komnir það langt að sjá að næringin hefur líka heilmikil áhrif á heilsu, en finnst samt allt tal um bætiefni og slíkt öfgafullt. Síðan er þeim að fjölga mikið sem nota bætiefni markvisst, eins og steinefni, olíur og D-vítamín, en dettur ekki í hug að gefa hugleiðslu eða jurtum séns. Það finnst þeim allt of langt gengið. En nú er sem betur fer að fjölga í þeim hópi sem áttar sig á og hefur fundið það á eigin skinni að hugleiðsla, jóga­æfingar og jurtir hafa einnig heilmikil áhrif á andlega  og líkamlega heilsu og hlakka ég til að vinna með fólki sem tilbúið er að hafa áhrif á eigin heilsu með þessum aðferðum náttúru­lækninga.

Ayurveda segir að ein helsta ástæðan fyrir veikindum sé glæpur gegn gáfum. Við vitum að eitthvað er óhollt og veiklar okkur, en kjósum samt að gera það, þrátt fyrir að vita betur. Ekki nægir að taka inn pillur og vonast til þess að lækning fáist við öllu. Fólk verður sjálft að leggja sitt af mörkum, nota gáfurnar og gera það sem þarf að gera. Lagfæra mataræðið, hreyfa sig, hugleiða og gera slökunar­æfingar. Það tekur tíma að brjóta upp vana og þess vegna er gott að taka eitt skref í einu og bæta góðum siðum hægt og bítandi inn í dags­rútínuna. Það er kannski hægt að setja sér það markmið að bæta einum heilsu­eflandi vana inn í dags­rútínuna á mánuði.“

Hægt er að skoða vefsíðu Heiðu hér.

Heiða hefur tekið á móti hópum eins og sauma­klúbbum í dekur í Björkina. Oft eru þetta konur í sumar­bústaða­ferð yfir helgi.  Þá eru gerðar léttar jóga­æfingar, djúp­slökun, tónheilun og endað á kaffi, meltingarte-inu magnaða eða turmerik latte. Heim­sóknin er aðlöguð að hverjum hópi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá