Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Sigurður banaði manni með hníf: „Pabbi er félagi minn – Fíkillinn er hins vegar ekki pabbi minn“

Bragi fannst látinn í íbúð á Hverfis­götu að morgni menningar­nætur árið 2005. Bragi var gest­komandi í íbúðinni, en þar bjó Sigurður, ásamt hjónum sem áttu íbúðina. Sigurður, Bragi og húsbóndinn sátu og töluðu saman við eldhús­borðið. Sigurður segist hafa gripið 14 cm flökunar­hníf sem þarna var til þess að leggja áherslu á orð sín, en hann kvaðst ekki muna um hvað var rætt. Sigurður segir að hann og Bragi hafi staðið upp samtímis og hnífurinn í kjölfarið stungist í Braga.

Vitni segja hins vegar að Bragi hafi setið kyrr og aðeins Sigurður hafi staðið upp. Einnig sagði finnskur réttar­meina­fræðingur að töluverðu afli hefði þurft að beita til að stinga Braga á þennan hátt, en hnífurinn gekk í gegnum rússkinnsjakka Braga, skinn, brjósk, lifur og hjarta.

Reynt var að bjarga Braga en honum blæddi út. Sigurður flúði vettvang en sneri fljótt aftur og var þá hand­tekinn af lögreglu. Í blóði hans fannst bæði amfetamín og kókaín, en Sigurður hafði neytt eitur­lyfja marga daga í röð fyrir morðið, sem og drukkið áfengi. Héraðs­dómur Reykja­víkur dæmdi Sigurð sakhæfan og til 14 ára og 6 mánaða fangelsis­vistar fyrir morðið í febrúar 2006.

Sigurður sonur Kristmundar sem framdi morð á Guðjóni 1976

Snemma morguns þann 6. júlí 1976 barst lögreglunni í Reykjavík tilkynning um að maður lægi í malar­gryfju við Fífu­hvammsveg í Kópavogi og virtist látinn. Þegar fyrstu lögreglu­mennirnir komu á vettvang var ljóst að dauða hans hafði borið að með afar ofbeldis­fullum hætti. Líkið lá í blóðpolli og vantaði tennur í neðri góm þess. Sá látni hét Guðjón og hafði komið við sögu lögreglu, en lögreglan átti fingraför hans á skrá. Niður­staða krufningar var sú að dánar­orsök hans hafi verið mörg þung höfuðhögg en að auki bentu rifjabrot og blæðingar í lungum til þess að hann hefði orðið fyrir ítrekuðum barsmíðum á brjóst­kassa.

Síðdegis sama dag fannst yfir­gefinn Moskvitch-sendi­bifreið í eigu hins látna við Kaplaskjólsveg. Var bíllinn útataður blóði að innan og þótti augljóst að vettvangur glæpsins væri fundinn. Á hliðar­rúðu bílsins fundust fingraför sem voru til á skrá lögreglu.

Daginn eftir voru tveir ungir menn hand­teknir, þeir Kristmundur og Albert Ragnarsson. Við yfirheyrslur viðurkenndu þeir nokkuð greiðlega að hafa banað Guðjóni Atla.

Málsatvik voru þau að piltarnir höfðu hitt Guðjón á Umferðar­miðstöðinni og voru allir þrír vel við skál. Ákváðu þeir að keyra um höfuð­borgar­svæðið á bifreið Guðjóns og var markmiðið að útvega með einhverjum hætti meira áfengi. Dren­girnir fóru fljótlega að leggja á ráðin um að ræna Guðjóni og loks báðu þeir hann um að nema staðar við áður­nefndar malar­gryfjur. Þegar bifreiðin var við það að nema staðar réðust piltarnir á fórnar­lamb sitt. Meðal annars brutu þeir pilsner­flösku á höfði mannsins. Átökin bárust út úr bifreiðinni og þar börðu piltarnir fórnar­lamb sitt með hnefum og stálu loks peninga­veskinu.

Að því stöddu tók annar drengjanna við stjórn bifreiðarinnar og eigandanum var komið fyrir hálf­rænulausum í aftursæti bílsins. Eftir að hafa ekið ögn lengra inn í malar­gryfjurnar ákváðu dren­girnir að úr því sem komið væri þá væri besti kosturinn að koma manninum fyrir kattarnef. Þeir stöðvuðu því bílinn og hleyptu Guðjóni út úr honum. Þegar hann steig út um dyrnar keyrði annar drengurinn stóran stein í höfuð hans og féll hann þá til jarðar án þess að gefa frá sér hljóð. Síðan börðu þeir hann með spýtu sem þeir fundu í grenndinni þar til þeir voru þess full­vissir að Guðjón Atli væri allur.

Neitaði því að um ásetning hafi verið að ræða

Héraðs­dómur Reykja­víkur dæmdi Sigurð, sem var þá 23 ára, í 14 1/2 árs fangelsi fyrir að hafa ráðið Braga bana, auk annarra afbrota. Hann var einnig dæmdur til að greiða samtals tæpar 7 milljónir króna í skaða­bætur og kostnað.

Sigurður játað fyrir dómi að hafa orðið piltinum að bana, en neitaði því að um ásetning hafi verið að ræða.

Sveinn Andri Sveinsson, lög­maður Sigurðar, sagði að: „hann hefði játað brotin sem hann hafi verið ákærður fyrir. Aðal­meðferð í málinu hafi því að mestu snúast um „stig ásetnings“ í manndráps­málinu.“

Þegar atburðurinn átti sér stað var Sigurður þegar úrskurðaður í gæslu­varðhald, en ástand hans var að sögn lögreglu með þeim hætti að erfitt var að yfirheyra hann.Lögregla var kvödd að íbúðinni snemma á laugardags­morni með tilkynningu um að maður hefði verið stunginn. Þegar hún kom á vettvang hófust þegar lífgunar­tilraunir, en þær báru ekki árangur og maðurinn lést skömmu síðar. Í íbúðinni var lagt hald á hnífinn sem talið var að hefði verið notaður. Fleira fólk sem var í íbúðinni, tveir karlmenn og ein kona, var einnig handtekið og yfirheyrt en sleppt fljótlega. Öll voru þau sögð í annarlegu ástandi.

„Rappa ekki um dóp og pening því hvorugt er kúl“

Árið 2018 var rapparinn Kristmundur Axel Krist­mundsson ákærður af Héraðs­saksóknara fyrir að hafa þann 11. mars 2017 hótað að taka lögreglu­kylfu af lögreglu­manni og „valda honum líkams­meiðingum,“ líkt og það er orðað í ákæru.

Kristmundur vakti fyrst athygli árið 2010 þegar hann sigraði Söng­keppni framhalds­skólanna ásamt Júlí Heiðari með lagið Komdu til baka. Hann hefur undan­farin ár gefið út nokkur lög svo sem Deyja fyrir hópinn minn og Spartacus (Alltaf eitur).

Síðarnefnda lagið kom út stuttu fyrir atvikið sem hann var ákærður fyrir en í því lagi segir hann meðal annars:

„Hleyptu mér inn annars brýt ég fokking hurðina […] Það er alltaf snjóflóð“.

Hann vakti svo athygli um svipað leyti þegar hann birti myndbönd af fíkniefna­neyslu sinni á Snapchat.

„Rappa ekki um dóp og pening því hvorugt er kúl.“

Samkvæmt heimildum DV ákvað Kristmundur að taka sig á og fór í meðferð. Undan­farið hefur Kristmundi gengið allt í haginn en hann eignaðist dóttur sama ár.

Pabbi er ekki morðingi

Nokkrum árum áður, árið 2012 ræddi Kristmundur Axel við DV um fíknina sem hafði orðið nær allri fjöl­skyldu hans að bráð. Tveir bræður hans voru þá í fangelsi. Sigurður sat inni fyrir að drepa Braga og hinn bróðir hans sat inni fyrir ýmsa smáglæpi.

Faðir hans, Kristmundur var yfirleitt kallaður Mundi morðingi en hann myrti Guðjón eins og fyrr kemur fram. Hann var í vímu þegar hann framdi morðið og náði sér að einhverju leyti á strik eftir að hafa tekið út dóminn.

Kristmundur Axel lýsti föður sínum sem miklum og nánum félaga. „Við bjuggum saman bara við tveir, pabbi og ég. Ég hafði búið hjá honum í ellefu ár. Flutti til hans ungur meðan mamma var að koma undir sig fótunum vegna eigin drykkju­vanda. Mamma var að standa sig vel, en það æxlaðist samt þannig að ég bjó hjá honum. Ég átti gott líf með honum. Hann er alúðlegur maður, fullur af kærleika. Hann er enginn morðingi. Hann er bara manneskja eins og ég og þú sem á erfiða lífs­reynslu að baki. Hann vann sig í gegnum martröðina og var sterkari og betri maður fyrir vikið. Pabbi minn er félagi minn. Fíkillinn er hins vegar ekki pabbi minn og alls enginn félagi. Hann þekki ég ekki og vil ekki þekkja.“


Heimildir:
Björn Þorfinnsson. 26. febrúar 2017. Morðin sem vöktu óhug árið 1976: Þrír átján ára gamlir drengir, í tveimur aðskildum málum, urðu mönnum að bana. DV.

Hjálmar Friðriksson. 17. október 2018. Kristmundur Axel ákærður: Birti myndbönd af neyslu og fór í meðferð. DV.

Innlendar fréttir. 18. febrúar 2006. Sigurður Freyr Krist­mundsson dæmdur fyrir að hafa ráðið Braga Halldórs­syni bana og fleiri brot: Dæmdur til 14 1/2 árs fangelsis­vistar. Morgun­blaðið.

 Óli Kristján Ármannsson. 23. desember 2005. Játaði manndráp en neitaði ásetningi. Visir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá