Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Au pair vistfjölskyldan rekur þekkta veitingastaði: „Ég er fórnarlambið!“

Mannlíf birti á dögunum skjáskot af verkefna­lista sem ætlaður var ,,au pair’’ á Íslandi. Listinn vakti hörð viðbrögð en sýndi hann dæmi um reglur og verkefni sem au pair hérlends hefur þurft að fylgja. Verkefni og vinnutími sem komu fram á listanum eru á skjön við þær reglur sem gilda hér á landi en var au pair gert að vinna ellefu og hálfan tíma á sólar­hring.

Vert er að taka fram að samkvæmt reglum á vef Útlendinga­stofnunnar má vinnutími au pair vera að hámarki 30 tímar á viku eða 5 tímar á dag.

Samkvæmt heimildum Mannlífs hefur vist­fjölskyldan verið í veitinga- og verslunar­rekstri síðast liðin ár og eru tveir veitinga­staðanna töluvert þekktir. Þá hefur fólk ítrekað kallað eftir nafn­greiningu þar sem það vilji forðast viðskipti við fyrir­tækin. Mannlíf hafði samband við móðurina innan vist­fjöl­skyldunnar. Sagði hún að um misskilning væri að ræða og að hún væri í raun fórnar­lambið í aðstæðunum.

„Ég er fórnar­lambið, eftir að au pair fór, ég og börnin mín!“

Bauðst hún til þess að senda blaða­manni gögn til þess að sanna að um misskilning væri að ræða, enn hafa engin gögn borist. Þá hefur konan hvorki svarað skila­boðum, né síma þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir blaða­manns að ná aftur af henni tali.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá