Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Bjarni fær fullan stuðning innan ríkisstjórnarflokkanna

Tíu mótmælendur stóðu fyrir utan Ráðherra­bústaðinn á meðan á ríkis­stjórnar­fundi stóð fyrir hádegi og hrópuðu um leið og ráðherrar gengu út. Bjarni sagðist ekki geta talað í þessum hávaða:

Bjarna burt, Bjarna burt, hrópuðu mótmælendur og Bjarni sagði við frétta­menn: „Ég ætla ekki að tala við ykkur. Það er alltof mikill hávaði hérna.“Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra segir í samtali við

frétta­stofu RÚV

að samstaða sé innan ríkis­stjórnar­flokkanna um fullan stuðning við Bjarna Benediktsson fjármála­ráðherra í Íslands­bankamálinu. Ekki var rætti um banka­söluna á ríkis­stjórnar­fundi. Hún segir að skoða þurfi tiltekna hluti eins og aðkomu söluaðila sjálfra að útboðinu, meðferð innherja­upplýsinga, skilgreiningar á hæfum fjár­festum og svo gagnsæi en um það síðarnefnda hafi hún gert athuga­semdir við.

Nú er þetta mál farið að lita allt ykkar stjórnar­samstarf er einhver leið út úr þessu?

„Sko málið er í alveg skýrt skilgreindu ferli og það liggur algerlega fyrir að bæði ríkis­endurskoðun og Seðla­bankinn eru að rannsaka málið,“ sagði Katrín Jakobs­dóttir við frétta­menn fyrir utan Ráðherra­bústaðinn, „ég hef sagt það mjög skýrt bæði í fjöl­miðlum og þinginu að það er eðlilegt og vönduð stjórn­sýsla að við bíðum eftir niður­stöðum þeirra til að við getum metið hvort við teljum að eitthvað hafi í raun farið úrskeiðis í þessu útboði.“

Ríkir sama traust nú eftir banka­söluna eins og fyrir?

„Já, það ríkir fullt traust á milli okkar. Hvað var rætt um þetta á þessum fundi? Það var ekki rætt um þessi mál á þessum fundi. Það er verið að skoða tiltekna hluti og ég hef nefnt þá hluti.“

„Ég meina við getum rætt til að mynda aðkomu söluaðila sjálfra að útboðinu. Við getum nefnt meðferð innherja­upplýsinga. Við getum nefnt skilgreiningar á hæfum fjár­festum. Fyrir utan þetta með gagnsæið sem að ég hef haldið til haga allan tímann.“

Er samstaða um fullan stuðning við Bjarna eftir banka­sölumálið?

„Innan ríkis­stjórnarinnar, stjórnar­flokkanna?“

Já.

„Já ég tel svo vera“ segir Katrín í samtali við frétta­stofu RÚV.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá