Tiramisu
Innihaldsefni:
• 5 eggjarauður
• 125gr sykur
• 400ml rjómi, kaldur
• 425gr Mascarpone ostur, við stofuhita
• 1 tsk vanilludropar • 1/2 bolli espresso
• 36-40 stykki Ladyfingers
• 2-3 matskeiðar kaffilíkjör (má sleppa)
• Kakó til að sigta yfir

Leiðbeiningar:
• 1. Búið til kaffi sírópið: blandið heitu kaffi saman
við líkjörinn, hellið í skál og látið kólna. (Má sleppa líkjörinu)
• 2. Setjið eggjarauður og sykur í skál. Þeytið stöðugt
þar til sykurinn er uppleystur og þangað til blandan þykknar.
• 3. Bætið við mascarpone ostinum og
vanilludropunum og þeytið þar til samfellt.
• 4. Þeytið kalda rjómann í anarri skál þangað til hann
hefur myndað stífann topp, án þess að ofþeyta hann samt. Blandið 1/3 af þeytta rjómanum saman við mascarpone blönduna, síðan er blandað við þeytta rjómanum sem eftir er.
Setjið til hliðar.
• 5. Dýfið hverjum og einu ladyfinger í kaffiblönduna
í nokkar sekúndur. Setjið fingurna í botninn á ca (22X33cm) fati. Það er í lagi að brjóta/skera nokkrar ladyfingers ef þess þarft til þess að þeir passi í fatið sem er notast við. Smyrjið helmingnum af kreminu yfir bleyttar ladyfingers. Endurtakið með öðru lagi af ladyfingers og dreifðu afganginum af kremið ofan á. Lokið/plastið og kælið í að minnsta kosti 6
klst.
• 6. Stráið/Sigtið kakódufti yfir rétt áður en Tiramisuið
er borið fram

Uppskrift og myndir frá Vítalíu Lazareva.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir