Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Ósk opnar einkasýningu: „Sem bjargi væri létt af brjósti hennar?“

Myndlistar­konan Ósk Gunnlaugs­dóttir mun opna einka­sýningu á málverkum sínum í SÍM Gallerý í Hafnar­stræti 16, næst­komandi fimmtudag, þann 7.apríl. Sýningin ber titilinn „Sem bjargi væri létt af brjósti hennar?“.

„Verkin á sýningunni takast á við þrívídd viðfangs­efnis sem gæti verið tekið úr nátt­úrunni,“ segir í lýsingu á sýningunni. „Form skapað úr flötum, hornum og bogum sem eiga sér sinn stað í marglaga tilvistum huga og samfélags. Bjarg, klettur, steinvala og sandkorn í senn. Bjarg, farg, þungi og samfélagsleg pressa á að passa í form, fara ekki út fyrir línur skapaðar af mönnum.

Viðfangs­efni verkanna byggir á hugmyndum heimspeki og fagur­fræði kenningar um hlut­miðaða verufræði (e. Object Oriented Ontology) sem gengur út á að allt sé hlutur og að ekki sé gerður mikill greinar­munur hugveru og hlutveru. Að munurinn á sköpuðum steini lista­mannsins, þeim sem ollu örlögum kvenna sem voru grýttar til dauða eða þeirra sem sagðir voru börn í maga Rauðsokka sé ekki sá að einhverjir séu skapaðir úr efni og aðrir ímyndaðir heldur að form þeirra sé mismun­andi.“

Sýning Óskar verður opin á opnunar­tíma skrif­stofu SÍM á virkum dögum og um helgar frá 13:00 til 17:00. Sýningin stendur til 28. apríl.

Ósk Gunnlaugs­dóttir (1979) lauk BA gráðu í myndlist frá Lista­háskóla Íslands árið 2019 og varði einni önn í silki­prenti við Académie Royale des Beaux-Arts í Brussel.

„Ósk vinnur við ýmsa miðla en sækist jafnan í jarð­tenginguna sem fæst í hinu hefð­bundna málverki. Hún sækir innblástur í náttúruna og eru hugleikin áhrif manna og atburða af þeirra völdum á ásjón og upplifun fólks af lands­laginu hvort sem er úti í nátt­úrunni eða í lista­verkinu þar sem það er statt.“

Opnun sýningarinnar verður eins og fyrr segir næst­komandi fimmtudag, 7. apríl, klukkan 17:00 – 20:00.

Verk eftir Ósk. Mynd úr einka­safni.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt