Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Leifur áður verið rekinn – Sagður hafa varið sjálfan sig með fölsuðum aðgangi á Facebook

Mynd / KKÍ.
Mynd / KKÍ.

Leifur S. Garðarsson, skóla­stjóri Áslands­skóla í Hafnar­firði, hefur þrívegis verið rekinn úr starfi sínu fyrir íþrótta­hreyfingar hérlendis. Tvisvar var hann rekinn sem knattspyrnu­þjálfari, annars vegar hjá Fylki og hins vegar Víkingi Reykjavík, og nú síðast sem körfubolta­dómari á vegum KKÍ, líkt og Mannlíf greindi fyrst frá.

Leifur hefur verið settur af sem körfubolta­dómari hjá Körfu­knattleiks­sambandi Íslands, KKÍ. Ástæðan eru ósæmileg samskipti hans við kvenkyns leikmann sem áttu sér stað á samskipta­miðlum snemma árs í fyrra. Samskipti Leifs við leik­manninn voru á þann veg að stíga í vænginn við viðkomandi sem síðan kvartaði undan því við KKÍ. Samkvæmt óyggjandi heimildum Mannlífs hefur hann verið settur af sem dómari hjá sambandinu og þar hefur hann ekki dæmt leik frá því málið kom upp.

Hannes S. Jónsson, formaður Körfu­knattleiks­sambands Íslands, KKÍ, hvetur alla þá innan hreyfingarinnar sem telja sig hafa orðið fyrir kynferðislegri áreitni af einhverjum toga til að leita til sambandsins eða lögreglu. „Við líðum enga svona hegðun,“ segir Hannes.

Hannes S. Jónsson, for­maður KKÍ.

Árið 2008 var Leifur rekinn sem knattspyrnu­þjálfari hjá Fylkis­mönnum eftir lélegan árangur í efstu deild það árið þar sem liðið endaði rétt ofan við fallsæti. Fimm árum síðar var hann svo rekinn sem þjálfari Víkinga eftir mikinn trúnaðar­brest milli hans og leikmanna liðsins þegar excel-skal Leifs lak á netið. Í því var stöðumat hans á öllum leik­mönnum liðsins en skjalið hafði verið sent leik­mönnunum fyrir slysni.

Þegar lekamálið hjá Víkingum var í hámæli var Leifur þjálfari síðan sakaður um að fara huldu höfði í netheimum í þeirri von að verja sjálfan sig. Þannig er hann sagður hafa stofnað falsaðan aðgang, undir nafninu Albert Örn Jónsson, og tjáð sig undir því nafni á spjallsvæði Víkinga. Vefsíðan Fótbolti.net kannaði á sínum tíma hvort Albert Örn þessi væri til:

„Hver er hann, maðurinn sem kemur alltaf til varnar Leifi Garðars­syni þjálfara Víkings á spjall­borði félagsins? Á Facebook heitir hann Albert Örn og er sagður fæddur 4. ágúst 1969. Myndin af honum vekur athygli enda bara stæltur karlmanns magi. Albert Örn Jónsson heitir maðurinn samkvæmt því sem hann stað­festir sjálfur. Nafnið Albert Örn Jónsson er ekki til í þjóðskrá og þegar litið er yfir alla einstaklinga fædda 4. ágúst 1969 er engan Albert að finna. Á Facebook á Albert Örn 16 vini og hægt er að sjá þrjá þræði þar sem hann hefur sent inn ummæli. Í öllum tjáir hann sig um Leif.“

Veistu meira um málið? Fullum trúnaði er heitið. Mannlíf tekur við ábendingum, mynd­böndum og myndum á [email protected].

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá