Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Guðmundur Árni blæs til sóknar í Hafnarfirði: Skjálfti í Sjálfstæðismönnum

Guðmundur Árni Stefánsson
Guð­mundur Árni Stef­áns­son Mynd: Sigurjon Ragnar tel +35489799667

Allt lítur út fyrir að Samfylkingin og Sjálfstæðis­flokkurinn muni berjast um sigurinn í í Hafnar­firði í komandi sveita­stjórnar­kosningum, en Sjálfstæðis­flokkurinn hefur verið við völd í Hafnar­firði síðustu átta árin.Samkvæmt heimildum Mannlífs innan stjórn­kerfis Hafnar­fjarðar­bæjar er kominn talsverður skjálfti í Sjálfstæðis­menn vegna góðs gengis Samfylkingarinnar í nokkrum skoðana­könnunum sem flokkarnir í Hafnar­firði hafa keypt; í könnunum er að sjá að Samfylkingin hefur stóraukið við fylgi sitt en að Sjálfstæðis­flokkurinn tapi talsverðu fylgi, en framsókn haldi sínum eina manni. Viðreisn og Píratar virðast einnig á blaði, en aðrir flokkar, Bæjar­listi, Miðflokkur og VG langt frá kjörnum bæjar­fulltrúa.Svakaleg endurkoma Guðmundar Árna úr sendiherra­störfum úti í heimi í  bæjar­pólitíkina í Hafnar­firði gjör­breytti lands­laginu þar í bæ. Eða eins og einn viðmælandi Mannlífs orðaði það:„Gamli (Guðmundur Árni) er í fanta­formi og út um allan bæ í heim­sóknum til félaga­samtaka og fyrir­tækja. Svaka­legur kraftur í honum – hann er eins og unglamb; alveg á útopnu og greinilegt að mikill hugur er í honum og öllu Samfylkingar­fólki sem og mörgum öðrum í Hafnar­firði sem heillast hafa af Guðmundi Árna, enda er hann mikill leiðtogi.“Margir innan stjórn­kerfis Hafnar­fjarðar­bæjar sem og hinn almenni Hafnfirðingur hafa nefnt það við blaðamann Mannlífs að þeim finnist vera komin mikil þreyta í bæjar­stjórnina og að þeim hugnist vel breytingar:„Rósa er í erfiðri stöðu og hún hefur ekki verið sann­færandi í kosninga­baráttunni hingað til. Rósa gerði sér enga grein fyrir hversu gríðarleg mistök hún væri að gera með því að selja hlut Hafnar­fjarðar­bæjar í HS Veitum, upp á tæpa 4 milljarða króna. Af nógu öðru er svo sem að taka, en þetta mál, þessi sala, hún mun líklegast reynast Rósu mjög erfið, eða verður jafnvel bara banabiti hennar í kosningunum nú, enda margir Hafnfirðingar mjög reiðir yfir áður­nefndri sölu,“ segir einn heimildar­maður Mannlífs innan Sjálfstæðis­flokksins í Hafnar­firði.Þeir fjöldamörgu sem Mannlíf hefur rætt við varðandi kosningarnar segja flestir að þeir búist við að baráttan um Hafnar­fjörð munu snúast um tvo turna, Samfylkinguna og Sjálfstæðis­flokk og þá um leið forystu­fólk þessara flokka, Guðmund Árna Stef­ánsson og Rósu Guðbjarts­dóttur. Hvort þeirra mun verða í öndvegi við stjórn bæjarins?Eins og staðan er í dag þurfa Sjálfstæðis­menn að hysja upp um sig buxurnar svo ekki fari illa fyrir þeim – Samfylkingin með Guðmund Árna í toppformi er komin vel fram úr Sjálfstæðis­flokknum, það sýna vel kannanir sem flokkarnir sjálfir hafa látið gera; þá hvítnuðu mörg andlit Sjálfstæðis­manna í Hafnar­firði.Ljóst er að baráttan um Hafnar­fjörð verður hörð þar sem Samfylking og Sjálfstæðis­flokkur virðast ætla að berjast um sigurinn; þó má ekki útiloka aðra flokka sem munu væntanlega hafa mikið að segja um skipan í nýjum meirihluta í vor, en ekki er talið líklegt að einhver einn flokkur fái hreinan meirihluta:  Það gerði Samfylkingin 2002 og 2006 . En það gerðist líka 1990 – þá vann Alþýðu­flokkurinn undir stjórn Guðmundar Árna stóran sigur í Hafnar­firði, hlaut 6 menn kjörna af 11 mögulegum. Og nú er hann kominn aftur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá