Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Nauðlending Dakota-vélar Bandaríkjahers – Ísing olli óstöðuleika í hreyflunum

Flugbrakið á Sólheimasandi
Flug­brakið á Sól­heima­sandi Mynd: Þráinn Kolbeinsson

Rétt fyrir hádegi þann 21. nóvember árið 1973 voru sjö áhafnar­meðlimir Douglas Dakota flugvélar af gerðinni C-117 í loftinu fyrir ofan Mýrdal­sand. Voru hermennirnir á leið frá Höfn í Horna­firði eftir að hafa flutt vistir til ratsjár­stöðvarinnar á Stokknesi. Flugvélin var hátt á lofti er hún lenti í mikilli ísingu og tóku hreyflarnir að ganga óstöðugt. Nú voru góð ráð dýr fyrir sjömenningana ef ekki átti illa að fara. Í fyrstu var talið að flugvélin myndi brotlenda í sjónum en svo varð ekki. Flugvélin nauðlenti á Sólheima­sandi.

Morgun­blaðið sagði frá nauð­lendingunni daginn eftir:

Dakota-vél nauðlenti á Sólheima­sandi í gærdag

DOUGLAS Dakota-vél af gerðinni C-117 nauðlenti skömmu eftir hádegi í gær á Sólheima­sandi. Sjö menn voru með vélinui, sem var frá varnar­liðinu, og sluppu þeir allir ómeiddir. Vélin var að koma frá Höfn í Horna­firði, en þangað hafði hún flutt vistir til ratsjár­stöðvarinnar á Stokksnesi.

Sigþór Sigurðsson frétta­ritari Morgun­blaðsins í Litla-Hvammi sagði, að það hefði verið um kl.14, sem vélin nauðlenti í minni Hólsá á Sólheima­sandi. Ís var yfir ármynninu og brotnaði hann undan vélinni. Hékk hún þó á ísskörinni. Björgunar­sveit Slysavarnafélagssins í Vík í Mýrdal og menn frá sveita­bæjum fyrir vestan Vík fóru strax að svipast um eftir vélinni. Um svipað leyti og þeir komu að henni, kom þyrla frá varnar­liðinu á staðinn og tók hún mennina, sem i vélinni voru.

Eins og fyrr segir, var vélin að koma frá Höfn í Horna­firði. Flaug hún nokkuð hátt, og þegar hún var yfir Mýrdals­sandi lenti hún í mjög mikilli ísingu og hreyflar gengu óstöðugt. Hún
byrjaði því að missa hæð og sendi út neyðar­kall, sem önnur varnarliðsvél heyrði. Þegar voru sendar þrjár Phanthom-þotur og tvær þyrlur á móti vélinni, en talið var, að hún myndi jafnvel nauðlenda á sjónum. Er Dakota-vélin var svo komin vestur á Sólheima­sand hélzt hún ekki lengur á lofti og varð því að nauðlenda í minni Hólsá.

Hannes Hafstein hjá Slysavarna­félagi Íslands sagði, að flug­stjórn hefði strax haft samband
við Tilkynninga­skylduna. Talið hefði verið, að vélin myndi nauðlenda á sjónum nokkuð fyrir austan Vik. Því hefði Vestmanna­eyja­radíó haft samband við öll skip, sem voru út af Vík. Síðan hefði verið látið uppi að vélin gæti lent í sjónum á öllu svæðinu frá Vík að Þjórs­árósum. Þá hefði verið haft samband við báta á Stokks­eyri og Eyrar­bakka og þeir beðnir að fara af stað, en þeir hefðu ekki getað farið út úr höfnunum vegna brims. Leitað hefði verið til Þorláks­hafnar og voru fyrstu bátarnir farnir af stað, er frétt kom um, að vélin hefði nauðlent á landi.

Sagði Hannes, að menn frá björgunar­sveit Slysavarna­félagsins í Vík væru nú á vakt við
vélina ásamt tveimur Bandarikjamönnum. Flokkur viðgerðar­manna frá varnar­liðinu væri á
leiðinni austur og ætluðu austan­menn að leiðbeina þeim niður sandinn að vélinni. Til ferða upp og niður sandinn hafa björgunar­sveitamenn jeppa og beltabíl.

Síðan eru liðin mörg ár en enn er flugvélin á sínum stað. Bandaríkjaher lét sér nægja að strípa vélina alveg en skilja grindina eftir í sandinum. Segja má að subbu­skapur Bandaríkja­hers hafi í þessu tilfelli komið sér afar vel fyrir Ísland því í dag er flugvélin á Sólheima­sandi þekktur viðkomu­staður ferða­manna allsstaðar að frá heiminum. Justin Bieber tók upp myndband á Sólheima­sandi við lagið „I´ll show you“ fyrir fáeinum árum en flugvélar­flakið spilar stóra rullu í mynd­bandinu.

En svæðið getur reynst víðsjár­vert enda lítið skjól að fá ef óveður skyldi skella á. Fyrir tveimur árum varð kínverskt par úti nálægt flakinu en óveður hafði verið á svæðinu um tíma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá