Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Stundin og Eigin Konur í samstarf: „Hefur þegar áorkað svo miklu“

Edda Falak.
Edda Falak.

Hlaðvarps­stjórn­andinn og baráttu­konan Edda Falak hefur hafið samstarf við frétta­miðilinn Stundina. Hlaðvarps­þættir hennar, Eigin Konur, munu framvegis birtast á frétta­miðlinum og mun ritstjórn Stundarinnar sömuleiðis veita ráðgjöf og aðstoð við heimildar­vinnu fyrir þættina.

Í tilkynningu Stundarinnar segir að allir þættir Eigin Kvenna muni birtast áskrifendum Stundarinnar jafnt á við styrkjendur hlaðvarps­þáttanna á síðunni Patreon. Jafnframt muni Stundin frumsýna þá þætti hlað­varpsins sem opnir eru öllum.

„Í Eigin Konum hefur verið lögð áhersla á að veita brota­þolum rödd og rými, sem samræmist áherslum Stundarinnar um vald­eflingu,“ segir á vef Stundarinnar.

„Fjöldi fólks hefur treyst Eigin Konum og Eddu Falak fyrir frásögnum sínum af erfiðri reynslu frá því hlaðvarps­þættirnir hófu göngu sína árið 2021 og hafa viðtölin haft afgerandi áhrif á þjóðfélags­umræðuna.“

Tekið er fram að Stundin muni fylgja eftir umfjöllunum hlað­varpsins eftir atvikum.

Jón Trausti Reynisson, framkvæmda­stjóri Stundarinnar, segir eftir­farandi á Twitter um hið nýja samstarf:

„Vald­efling fólks og opnun umræðunnar er eitt mikil­vægasta verkefni samfélags samtímans. Það er gleðiefni á Stundinni að stofna til samstarfs um það við Eddu Falak sem hefur þegar áorkað svo miklu í því hlutverki.“

Sumir fjölmiðlar afmennski baráttukonur

Edda birti nýverið pistil á Instagram-síðu sinni þar sem hún gagnrýndi fjölmiðla fyrir að „taka virkan þátt í því að afmennska baráttu­konur og vísvitandi skrifa fréttir sem mála þær upp sem reiðar, haturs­fullar, orðljótar og óþolandi.“ Hún sagði það bæði augljóst og sorglegt hvernig sumir fjöl­miðlar héldu áfram að „mála upp mynd af konum í fram­línunni og búa til enda­lausar smelli­beitur og fyrir­sagnir svo samfélagið fái alveg örugglega upp í kok af manneskjunni.“

Hún sagði mikið magn frétta hafa verið skrifaðar sem ættu ekkert erindi við almenning. Auk þess væru athugasemda­kerfi fréttanna skilin eftir opin „til þess að buga þig og brjóta“.

„Ég er bara hérna að lifa, læra, miðla því sem ég hef, standa upp fyrir sjálfri mér, yfirstíga erfið­leika, njóta mín, segja það sem mér finnst, láta ekki vaða yfir mig, láta ekki áreitið hafa áhrif á mig og minna mig á að ég ræð ferðinni minni og ég vona að þú gerir það sama. Ekki láta annað fólk brjóta þig,“ sagði Edda að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá