Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Ellert óttaðist um son sinn: „Ég opna hurðina og kolsvartur reykjarmökkurinn kemur á móti mér“

„Að vakna upp um miðja nótt við það að heimili manns stendur í ljósum logum er skelfileg lífs­reynsla. Eins og að vera fastur í hræðilegri martröð sem þú getur ekki vaknað upp af,“ skrifar Ellert Grétarsson, íbúi í Keflavík, sem vaknaði upp í fyrrinátt við það að íbúð hans stóð í ljósum logum.Ellert, sem er þekktur ljós­myndari, skrifar sláandi færslu á Facebook um þessa lífs­reynslu sína. Það var sem krafrtaverk hefði vakið hann.„Það sem vakti mig var svefn­herbergis­hurðin sem glamraði í hurðar­falsinu, líkt og hún gerði alltaf í jarð­skjálftunum síðasta vetur því hún er örlítið laus í faginu. Þess vegna hélt ég í svefn­rofanum að það hefði komið skjálfti. En glamrið varð að þungum höggum, ég hrökk upp og spratt fram úr rúminu. Þá fann ég bruna­lyktina. Ég opna hurðina og kolsvartur reykjar­mökkurinn kemur á móti mér,“ skrifar Ellert.Hann býr ásamt syni sínum. Fyrsta hugsunin var sú að að hann væri í lífsháska.

Hrópaði á son sinn

„Ég hrópa af öllum lífs og sálar kröftum á strákinn minn en fékk ekkert svar. Náði að komast inn í herbergið hans en hann var ekki í rúminu sínu. Þetta var það skelfilegasta af öllu – að vita ekki um hann,“ skrifar hann.Ellert sá ekki handa sinna skil í kolsvörtu reykjar­kófinu. Hann reyndi að halda niðrí í sér andanum og fetaði sig meðfram veggnum að útidyra­hurðinni og náði að komast fram á stigagang.„Ég hafði gripið með mér símann af nátt­borðinu til að geta hringt á hjálp. Stuttu síðar er slökkviliðið komið og Neyðar­línan slítur samtalinu. Ég hringi þá í strákinn minn og til allrar Guðs blessunar svaraði hann. Hann hafði ekki verið heima. Allir komust út úr húsinu heilir á húfi,“ skrifar Ellert.Hann þakkar nágrönnum sínum fyrir þá hugulsemi að hlúa að sér þar sem hann stóð hálf­nakinn fyrir utan heimili sitt.

Hrikaleg aðkoma í íbúð­inni.

Íbúðin og innbúið eru gjörónýt, eins og sjá má af myndum. Elds­upptök munu hafa verið í fjöltengi í stofunni.„Það dýrmætasta sem ég á var ekki það sem brann og eyði­lagðist heldur fólkið mitt, fjöl­skylda og vinir sem hafa umvafið mig hlýju og kærleik og hjálpað mér að komast yfir versta áfallið. Þetta er ekki fyrsta áfallið sem ég tekst á við í lífinu og þá hefur fólkið mitt alltaf verið til staðar. Það er ómetanlegt að eiga góða að og það er alls ekki sjálfsagt. Ekkert er sjálfsagt í hver­fugleika lífsins, hvort það sem eru ástvinir, heilsan eða bara lífið sjálft. Það er ekkert víst að það sem þú átt og hefur í dag verði á sínum stað á morgun. Það er engin trygging fyrir því. Verið þess vegna þakklát fyrir það sem þið hafið, hugsið minna um það sem þið teljið ykkur vanta. Ræktið þakklætið því þakklætið er nátengt hamingjunni,“ skrifar Ellert.

Hann segir í samtali við Mannlíf að nú sé hann að jafna sig eftir áfallið. Næsta vika fer svo í að huga að tryggingum vegna tjónsins og koma lífinu í fastar skorður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá