Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Karlkyns álft skotin í Fellum: „Hefur gerst frekar snemma í morgun, hann var á lífi um sjöleytið“

Skelfileg aðkoma.
Skelfi­leg aðkoma. Mynd: Einar Guttormsson

Álft fannst dauð í vegkanti austur á Héraði, nálægt Fremstavatni. Talið er að hún hafi verið skotin í höfðuð með riffli.

Svona gerir maður ekki.

Ófögur sjón blasti við Einar Guttorms­syni bónda á Krossi í Fella­sveit í morgun. Karlkyns álft lá skotinn í vegkantinum en kven­fuglinn synti ein á Fremravatni. Álftaparið hefur komið ár eftir ár og komið upp ungum og hafa þau verið vinsæl meðal vegfaranda á svæðinu. Lögreglan kom á vettvang og óskar eftir frekari upplýsingum.

Samkvæmt frétt Rúv um málið er talið að álftin hafi verið drepin með 22 kalibera riffli en um er að ræða ólöglegt dráp enda álftin friðaður fugl.

Skelfi­leg aðkoma.

Taldi Einar möguleika á því að keyrt hafi verið á álftina og hún svo aflífuð en fannst það ekki líklegt. Sagðist Einar í samtali við Mannlíf, að hann vildi ekki fullyrða um að þetta hafi borið að með saknæmum hætti „en þetta lítur bara þannig út klárlega, að hann hafi verið skotinn í hausinn. Þetta hefur gerst frekar snemma í morgun en hann var á lífi um sjöleytið.“ Segir hann parið hafa komið árlega um langt skeið og verpt við Fremstavatn. „Fullt af fólki hefur komið hingað til að horfa á þau, sér til ánægju.“

Viðurlög við drápi á friðuðum fugli má finna í 21. gr. laga nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum:

[21. gr.]1)

Brot gegn lögum þessum og reglum, sem settar verða samkvæmt þeim, varða sektum [eða fangelsi allt að 2 árum] 2) og sviptingu skotvopna- og veiði­leyfis. Virða skal það refsingu til þyngingar ef um sjaldgæfar eða fágætar fugla­tegundir er að ræða, sbr. 7. gr. Sama gildir um æðarfugl og æðaregg, svo og stór­felldar ólögmætar fugla­veiðar og spjöll á frið­lýstum varp­stöðvum.

[Gera má lögaðila sekt fyrir brot gegn 17. gr. a. Um refsiábyrgðina fer eftir II. kafla A almennra hegningar­laga.] 3)

Tilraun til brota gegn lögum þessum og reglu­gerðum, sem settar eru á grund­velli þeirra, varða refsingu sem full­framið brot, sbr. III. kafla almennra hegningar­laga. Hið sama gildir um hlutdeild í brotum.

Gera má upptækt til ríkis­sjóðs: Ólöglegt veiðifang, egg eða eggja­skurn, veiðitæki og annan búnað sem notaður hefur verið við framkvæmd brots, [veiðifang sem boðið er til sölu eða selt í bága við sölubann skv. 17. gr. a], 3) svo og hagnað af ólöglegri veiði og sölu framan­greindra verðmæta. Ekki er það upptöku til fyrir­stöðu þótt annar sé eigandi veiði­tækis eða annars sem upptaka er heimil á en sá sem sekur hefur reynst um brot á lögum þessum eða reglum settum á grund­velli þeirra. Að öðru leyti skal fara um eigna­upptöku samkvæmt ákvæðum 69. gr. laga nr. 19/1940.

Lögreglan fer með rannsókn í málinu en ekki er vitað hver þarna var að verki. Lögreglan hvetur alla þá sem kunna að hafa upplýsingar um það eru hvattir til að hafa samband við lögregluna á Austur­landi í síma 444 0600 eða með tölvu­pósti á netfangið [email protected]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Annars staðar má víða búast við skúrum eða slydduéljum

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ