Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Vildi komast að því hverjir skoðuðu sjúkraskrána

Samkvæmt lögum hefur Persónu­vernd heimild til að meta hvort kvartanir sem henni berast gefi tilefni til rann­sóknar

Landspítalinn í Fossvogi
Land­spít­al­inn í Fossvogi Mynd: Víkingur

Umboðs­maður Alþingis taldi ekki tilefni til að gera athuga­semdir við ákvarðanir Persónu­verndar um að taka tvær kvartanir einstaklings ekki til frekari rann­sóknar. Málunum var lokið með bréfi 15. september.

Einstaklingurinn hafði kvartað til Persónu­verndar annars vegar vegna afgreiðslu Íslands­banka og Reikni­stofu bankanna á beiðni hans um aðgang að persónu­upplýsingum og hins vegar vegna uppflettinga í sjúkra­skrá hans.

Persónu­vernd ákvað að taka hvoruga kvörtunina til frekari rann­sóknar þar sem stofnunin taldi þær ekki gefa nægar ástæður til þess. Samkvæmt lögum hefur Persónu­vernd heimild til að meta hvort kvartanir sem henni berast gefi tilefni til rann­sóknar.

Í fyrra málinu taldi Persónu­vernd fyrir­liggjandi gögn benda til þess að aðgangs­beiðni mannsins hefði að öllum líkindum verið afgreidd með lögmætum hætti. Í síðara málinu var honum meðal annars bent á að leita til persónu­verndar­fulltrúa Land­spítala og óska eftir upplýsingum og skýringum á uppflettingum í sjúkra­skrá sinni.

Umboðs­maður benti á að Persónu­vernd hefði víðtækt svigrúm við mat á því hvort kvörtun gæfi tilefni til frekari rann­sóknar. Athugun hans beindist því meðal annars að því hvort mat stofnunarinnar hefði byggst á málefna­legum sjónar­miðum og hvort fullnægjandi grund­völlur hefði verið lagður að ákvörðununum.

Niður­staðan var að ekki væru forsendur til að telja mat Persónu­verndar bersýni­lega óforsvaranlegt eða í ósamræmi við lög.

Umboðs­maður benti þó manninum á að bera ný gögn, sem komið hefðu fram eftir fyrri ákvörðun Persónu­verndar, undir stofnunina svo hún gæti metið hvort þau hefðu áhrif á niður­stöðu málsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá