Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Ofbeldi á skemmtistöðum – Kynbundið, kynferðislegt, fordómar og hatur

Ásgeir Guðmundsson frá Röntgen, Geoffrey Huntingdon – Williams frá Prikinu, Húrra o.fl., Birgitta Líf Björnsdóttir frá Bankastræti club og Ólafur Alexander frá Auto. Mynd/Reykjavíkurborg
Ásgeir Guð­munds­son frá Röntgen, Geoffrey Hunt­ingdon – Williams frá Prikinu, Húrra o.fl., Birgitta Líf Björns­dóttir frá Banka­stræti club og Ólafur Alex­ander frá Auto. Mynd/Reykja­vík­ur­borg

Nýr samningur um ofbeldis­lausa og örugga skemmtistaði til ársins 2024 var undir­ritaður í dag, föstu­daginn 8. apríl. Er þetta í fjórða sinn sem samkomulag um verkefnið er undir­ritað en stefnt er á aukinn sýnileika verk­efnisins í þetta sinn samhliða fjölgun aðila að samkomu­laginu, en þetta kemur fram í frétt Reykja­víkurborgar.

Aðilar að samkomu­laginu eru Reykja­víkurborg, Lögreglan á höfuð­borgar­svæðinu, Slökkvilið höfuð­borgar­svæðisins, Samtök ferða­þjónustunnar, Ríkis­lögreglu­stjóri, Neyðar­línan og ný Samtök reykvískra skemmtistaða.

Markmið samkomu­lagsins er að standa að vitundar­vakningu og tryggja öryggi gesta og starfs­fólks á skemmtistöðum í Reykjavík en með því er stefnt á að fyrir­byggja allt mögulegt ofbeldi á skemmtistöðum, þ.m.t. kynbundna og kynferðis­lega áreitni, vændi og mansal, sem og ofbeldi sem byggist t.d. á fordómum eða hatri, svo sem í garð innflytjenda eða hinsegin fólks.

Ný samtök skemmtistaða voru stofnuð samhliða undirrituog og bera þau heitið Samtök reykvískra skemmtistaða. Í forsvari fyrir samtökin eru þau Birgitta Líf Björns­dóttir frá Banka­stræti club, Geoffrey Þ. Huntingdon – Williams frá Prikinu, Húrra o.fl. og Ásgeir Guðmundsson frá Röntgen. Auk þeirra skrifuðu 26 fulltrúar frá reykvískum skemmtistöðum undir stofn­skjal samtak­anna og viðbúið að þeir verði fleiri strax á næstu dögum.

Í frétt Reykja­víkurborgar segir að rekstrar­aðilum skemmtistaða í borginni séu boðnir velkomnir að samkomu­lagi um ofbeldis­lausa og örugga skemmtistaði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá