Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Um 211 hafa fallið fyrir eigin hendi síðan gerð myndarinnar hófst: „Umlukið dulúð og þrúgandi þögn“

Ný kvikmynd sem hverfist um sjálfsvíg og þá þöggun og skömm sem hefur umlukið slík mál í gegnum árin, verður frumsýnd þann 20. apríl næst­komandi. Kvik­myndin ber nafnið „Út úr myrkrinu“ og er ætlað að vekja athygli á málefninu og hvetja til opinnar umræðu um það samfélags­mein sem um ræðir. Myndin er eftir þá Helga Felixson og Titti Johnson, sem hafa getið sér gott orð í kvikmynda­iðnaðinum og áður gert myndir sem sýndar hafa verið um allan heim.

Í upplýsingum frá aðstand­endum kvik­myndarinnar segir að frá því gerð myndarinnar hófst árið 2017 hafi í það minnsta 211 einstaklingar fallið fyrir eigin hendi á Íslandi.

„Þagnar­hjúpur og skömm hefur umlukið sjálfsvíg og sjálfsvígs­hugsanir í gegnum aldirnar. Það skýrist eflaust af þeirri staðreynd að litið var á sjálfsvíg sem glæp, samanber tungu­takið þar sem sumir tala um að „fremja sjálfs­morð“ en sögnin að fremja vísar í glæpsamlegt athæfi og það sama á við orðið morð. Fyrr á öldum var hægt að gera eigur þeirra sem tóku eigið líf upptækar og greftrun þeirra í kirkju­görðum var bönnuð og Ísland var þar engin undan­tekning,“ segir í tilkynningu frá þeim Helga Felixsyni og Titti Johnson.

„Talið er að 500 til 600 sjálfsvígs­tilraunir séu gerðar á Íslandi árlega og að á milli 30 til 50 manns deyi á ári vegna sjálfs­vígs. Hvað er að, hvað veldur? Það er greini­lega eitthvað verulega mikið að í samfélagi sem sættir sig við þessa staðreynd.

Þessi kvikmynd miðlar reynslu aðstand­enda sem hafa misst ástvin, sem tekið hefur eigið líf og hvernig þeir hafa komist út úr myrkri og þöggun. Myndinni er ætlað að hvetja til opinnar umræðu um efni sem hingað til hefur verið umlukið dulúð og þrúgandi þögn.“

Helgi Felixson og Titti Johnson eiga að baki langan feril í kvik­myndagerð og hafa áður gert myndir eins og Guð blessi Ísland, Vive la France og Undir stjörnu­himni, sem allar hafa verið sýndar víða um heim og hlotið umtals­verða athygli. Kvik­myndirnar hafa verið sýndar í sjónvarpi og á fjölda kvikmynda­hátíða.

Tónlistin í kvik­myndinni „Út úr myrkrinu“ er eftir tónskáldið og Óskars­verðlauna­hafann Hildi Guðna­dóttur. Frum­sýning verður þann 20. apríl næst­komandi í Bíó Paradís.

Hér má horfa á stiklu úr kvik­myndinni:

https://bioparadis.is/kvikmyndir/ut-ur-myrkrinu/

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá