Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Karen segist hafa sent gögnin frá Creditinfo í trúnaði: „Mér finnst búið að snúa út úr þessu“

Karen Elísabet Halldórsdóttir
Karen Elísabet Hall­dórs­dóttir

Karen Elísabet Halldórs­dóttir, sem sækist eftir því að leiða Sjálfstæðis­flokkinn í Kópavogi, segist ekkert erindi hafa fengið frá Persónu­vernd vegna dreifingar á upplýsingum frá Creditinfo, um skulda­stöðu trúnaðar­manns innan flokksins. Hún telur sérstakt að málið sé dregið fram á þessum tíma­punkti, rétt fyrir prófkjör.

Vísir greindi frá málinu í morgun. Þar segir að Karen hafi verið kærð til Persónu­verndar af téðum trúnaðar­manni vegna dreifingar á gögnum um hann. Á Vísi er það reifað hvernig Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður, hafi flett viðkomandi trúnaðar­manni upp hjá Credit Info, að beiðni Halldórs Jónssonar, umbjóðanda Sveins Andra og föður Karenar. Halldór hafi síðan komið gögnunum til Karenar sem hafi því næst dreift þeim áfram.

Segir rangt að tala um dreifingu

Karen segir í samtali við Mannlíf ákveðna rang­færslu felast í því að tala um dreifingu gagnanna. „Þetta lýtur að hluthöfum og stjórn í félagi og ég er sjálf hluthafi. Ég sendi í rauninni upplýsingar á þeim grund­velli, á trúnaðar­menn. Svo er, að mér finnst, svolítið búið að snúa út úr þessu. Enda sjáum við að tíma­setningin er dálítið áhugaverð, eins og lögmaðurinn minn bendir á.“

Lögmaður Karenar er Ómar R. Valdimarsson. Hann sagði í samtali við Vísi að því væri „alfarið hafnað að Karen hafi brotið gegn réttindum þessa tiltekna einstaklings.“ Hann vakti athygli á því að verið væri að draga málið fram á þessum tíma­punkti, rétt fyrir prófkjör Sjálfstæðis­flokksins í Kópavogi, en málið kom upp í ágúst á síðasta ári.

Trúnaðar­maðurinn sem um ræðir var á vanskila­skrá og á Vísi segir að málið hafi snúist um það hvort hann væri hæfur til þess að sitja í stjórn félags sem hefur ákveðin umráð yfir eignum Sjálfstæðis­flokksins í Kópavogi.

Creditinfo telur brotið gegn skilmálum

Creditinfo hefur nú sent Persónu­vernd bréf vegna málsins. Fyrir­tækið telur Svein Andra hafa brotið gegn áskriftar­skilmálum fyrir­tækisins og hefur aðgangi hans nú verið lokað vegna misnotkunar. Er það vegna þess að Sveinn Andri hafi ekki getað gefið fullnægjandi skýringar á þeim meintu lögvörðu hagsmunum sem lágu að baki uppflettingunni og afhendingu gagnanna til Halldórs Jónssonar.

Halldór, faðir Karenar, er verk­fræðingur og bæði meðstjórnandi og eigandi Þorra ehf. fasteigna­félags. Hann hefur löngum verið áhrifa­maður í stjórn­málum í Kópavogi. Hann er gjarnan kenndur við Mogga­blogg, en þar hefur hann birt hina ýmsu umdeildu pistla. Sveinn Andri kom gögnunum frá Creditinfo til Halldórs, umbjóðanda síns, að beiðni þess síðarnefnda, á þeim grund­velli að gögnin ættu erindi við almenning.

Karen er í hörðum slag um oddvita­sæti Sjálfstæðis­manna í Kópavogi við mótherja sinn, Ásdísi Kristjáns­dóttur. Sú síðarnefnda er aðstoðar­framkvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífsins. Á Vísi er sagt frá því að einstaklingurinn sem telur Kareni hafa brotið á sér með dreifingu gagnanna frá Creditinfo sé í stuðnings­manna­liði Ásdísar og hafi gegnt hinum ýmsu trúnaðar­störfum innan Sjálfstæðis­félagsins í Kópavogi.

Sveinn Andri Sveins­son lög­maður. Mynd/ Rakel Ósk Sig­urð­ar­dóttir

Hefur ekki fengið tilkynningu frá Persónuvernd

Karen segist í samtali við Mannlíf ekki viss um að það sé rétti tíminn til þess að tjá sig efnislega um málið á þessum tíma­punkti, rétt fyrir prófkjör. „Ég mun kannski frekar stíga fram þegar því er lokið, með þá feril málsins og söguna af því öllu.“

„Ég er hluthafi og sendi í trúnaði upplýsingar á stjórn. Við mig er þá augljós­lega ekki haldinn trúnaður. Ég tel mig vera ábyrgan hluthafa. Svo er þessu snúið upp í þetta núna, korter í kosningar. Mér finnst það sérstakt. Ég tel að það sé ekki rétt að vera að fara í málið í heild sinni á þessum tíma­punkti,“ segir hún.

Karen heldur áfram. „Ég tel það mikilvægt, í ljósi fyrir­sagnar á Vísi, að taka það fram að ég hef ekki fengið neina tilkynningu frá Persónu­vernd.“

Aðspurð hvort hún hafi sannarlega talið upplýsingarnar um trúnaðar­manninn eiga erindi við almenning áréttar Karen að hún hafi sent þær á trúnaðar­menn. „Bara í trúnaði. Síðan fer þetta svona.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá