Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Sólveig Anna segir hópuppsögnina málefnalega: „Strax rís upp einhver vandlætingarkór”

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar. Mynd/skjáskot RÚV
Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar. Mynd/skjá­skot RÚV

Sólveig Anna Jóns­dóttir, formaður Eflingar segir að ákvörðun stjórnar Eflingar að segja upp öllum starfs­mönnum félagsins, hafi í öllu verið byggð á málefna­legum og ítarlega skoðuðum grunni. Einnig hafnar hún algjör­lega þeim málflutningi að ákvörðunin hafi verið tekin í hefndar­skyni eða vegna annarlegra hvata.

Sólveig Anna var í Kast­ljósinu á Rúv í kvöld þar sem hún ræddi um fjölda­uppsögnina hjá Eflingu.

„Mér finnst algjör­lega sturlað að verða vitni af því að það sé látið eins og það að hér sé hópuppsögn að eiga sér stað sé einhver stórkostleg nýlunda í íslensku samfélagi. Það er augljós­lega ekki svo. Ég get ekki annað en undrast þá aðför að ákvörðunar­rétti okkar, þá aðför að því að við sannarlega megum taka ákvarðanir sem þessa,”

Segist Sólveig furða það sem hún telur vera aðför að ákvörðunar­rétti stjórnar félagsins og telur að umræðan um uppsagnirnar sé gott dæmi um þá litlu virðingu sem borin sé fyrir verka og láglaunafólki í íslensku samfélagi.

„Svo þegar kemur sterk forysta fram sem vill sannarlega taka málin í sínar eigin hendur, sem vill sannarlega gera sitt stéttar­félag að því allra besta þá strax rís upp einhver vandlætingarkór í þeim tilgangi að grafa öllu því sem við gerum. Svo ég hlýt að spyrja er í alvöru ekki komið nóg, og er ekki kominn tími til að við fáum þann vinnufrið sem við eigum skilið sem þær manneskjur sem hlutu umboð félags­fólks í lýðræðis­legum kosningum,“ sagði Sólveig Anna í kvöld.

Aukreitist sagðist Sólveig vera undrandi yfir því að Drífa Snædal forseti ASÍ skuli „ráðast að dreng­lyndi, hollustu, skynsemi, greind og færni til þess að taka ákvarðanir hjá meirihluta stjórnar Eflingar.” Segir hún það þó ekki koma sér á óvart að formaður BHM skuli „vega að forystu Eflingar” með „pólitískum leikjum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá