Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Löng röð myndaðist fyrir utan Blush: „Þetta er geggjað!“

Viðskiptavinirnir titruðu af spenningi
Við­skipta­vin­irnir titr­uðu af spenn­ingi

Það eru ekki bara súkkulaðiegg sem gleðja um páskana en löng röð myndaðist meðfram hjálpa­tækja­versluninni Blush á Dalvegi í Kópavogi fyrir klukkan 11 í morgun. Ástæðan fyrir röðinni var páska­eggjaleit Blush en verslunin fagnar með þessu 11 ára afmæli verslunarinnar. Fyrir einskæra tilviljun var blaða­maður Mannlífs á staðnum. Og fangaði stemmninguna.

Eftir­vænting fólks fyrir utan Blush var rafmögnuð þegar klukkan sló 11 í morgun. Fólk á öllum aldri og kynjum ætti þá inn í verslunina og hófst við að leita að páska­eggjum í von um eggjandi vinninga. Fljótlega tók einn og einn að týnast að afgreiðslu­borðinu með egg sem það fann falið á bak við gervilimi, rassa­innstungur, múffur,  handjárn, sleypiefni og fleira skemmtilegt sem hægt er að finna í kynlífs­tækja­verslun. Ekki voru allir jafn fundvísir en það er enn von því það verður opið til 21:00 í kvöld og það er eggjum bætt við reglulega.

En hvað er í eggjunum? Nammi? Máls­hættir? Titrarar? Nei, það er miði með númeri á. Vinningarnir sem hægt er að fá á þessi númer eru allskonar, frá sleipiefnum og spilum til sogtækja og gjafabréf fyrir allt að 100.000 kr. Já og ýmislegt þar á milli

Og úr því að blaða­maður Mannlífs var alveg óvart staddur fyrir utan Blush þegar lætin byrjuðu ákvað hann að taka eiganda Blush, Gerði Huld Arin­bjarnar­dóttur, tali.

Gerður í Blush

Blaða­maður: „Ertu ekki ánægð með byrjunina?“
Gerður: „Jú, ekkert smá! Þetta er geggjað! Það var röð meðfram öllu húsinu klukkan 11.“
Blaða­maður: „Frábært, og þetta er bara rétt að byrja ekki satt?“
Gerður: „Jú, við erum með opið til kl. 21:00 en frá klukkan 18:00 bjóðum við upp á Dj og fljótandi veitingar og svo verðum við með sérstakan leynigest.“

Þó að blaða­maður Mannlífs hafi ekki haft heppnina með sér í þetta skiptið voru margir sem fóru heim með bros á vör og vinning sem hjálpar til að gera páskana gleðilega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá