Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Vigdís hitti Sigurð Inga: „Áttum hreinskilið, heiðarlegt og opið samtal“

Vigdís Häsler
Vigdís Häsler

Þau Vigdís Häsler og Sigurður Ingi hittust í morgun og ræddu saman um þau ummæli sem ráðherrann lét falla um Vigdísi í gleðskap sem haldinn var í framhaldi af Búnaðar­þingi í síðustu viku.

Vigdís segir Sigurð Inga hafa beðið sig afsökunar í heiðar­legu samtali og að hún hafi meðtekið afsökunar­beiðnina. Þetta kemur fram í færslu sem Vigdís birti á Facebook-síðu sinni.

Færsla Vigdísar í heild sinni:

„Í dag hittumst við Sigurður Ingi og áttum hrein­skilið, heiðarlegt og opið samtal. Ástæður fundarins þarf vart að tíunda en á fundinum bar Sigurður fram að mínu mati einlæga afsökunar­beiðni sem ég hef meðtekið. Ég lít svo á að með þessum fundi okkar sé komið að málalokum og sannanlega er þessu lokið af minni hálfu.“

Sigurður Ingi er sagður hafa viðhaft rasísk ummæli um Vigdísi í gleðskapnum. Samkvæmt heimildum vísaði hann til hennar sem „þeirrar svörtu“. Vigdís birti síðar færslu á Facebook þar sem hún talaði um ummælin sem særandi en tilgreindi ekki nákvæmlega hver þau voru. Hún gaf þó í skyn að þau tengdust kyni hennar eða kynþætti. Sama dag sendi Sigurður Ingi frá sér afsökunar­beiðni á Facebook-síðu sinni.

Sigurður Ingi hefur ekki viljað svara því með skýrum hætti hver ummælin voru en sagðist harma þau. Hann sagðist vonast til þess að fá tækifæri til þess að biðja Vigdísi afsökunar í persónu. Nú hefur sá fundur átt sér stað og Vigdís að því er virðist tekið afsökunar­beiðnina gilda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá