Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Bjarni Ben – Æsingur á fundi fjárlaganefndar: „Heldurðu að þú komist upp með þetta?“

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahags­ráðherra, mætti á fund fjár­laganefndar Alþingis ásamt fjórum starfs­mönnum ráðuneytisins til að ræða sölu ríkisins á 22,5 prósenta hlut í Íslands­banka. Fundurinn hófst klukkan hálf níu í morgun.

Þing­mönn­um nefnd­ar­inn­ar og ráðherra var heitt í hamsi og gripu ít­rekað fram í fyr­ir hvor­um öðrum. Bjarni sakaði Eyj­ólf Ármanns­son, þing­mann Flokks fólks­ins, m.a. um að hafa ekki stjórn á sér. Þing­menn spurðu ráðherra oft um mögu­legt van­hæfi hans þegar kom að söl­unni þar sem að fé­lag í eigu föður hans, Hafsilf­ur, var meðal þeirra sem keyptu hluti í bank­an­um.

Heldurðu að þú komist upp með þetta?

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata spyr Bjarna: „Bjarni, bara held­urðu í al­vör­unni að þú kom­ist upp með að selja pabba þínum banka eft­ir allt sem að hef­ur gengið á und­an,“ spurði Björn Leví Gunn­ars­son, þingmaður Pírata, fjár­mála­ráðherra á fundi fjár­laga­nefnd­ar í morg­un.

„Vafn­ing­inn, sjóð 9, sendi­herra kap­al­inn, Fal­son og skýrslu­dótið, bara eft­ir allt þetta vesen sem að þú og flokk­ur­inn er bú­inn að láta sko þjóðina ganga í gegn­um á und­an­förn­um ára­tug,“ taldi Björn Leví upp og var þá að vísa til alls þess sem gengið hafði á und­an sölu rík­is­ins á Íslands­banka.

Bjarni taldi ein­fald­lega aldrei neitt til­efni hafa gef­ist til að fara ofan í hæfn­ismatið.

Þá sagði hann að all­ir aðrir stjórn­mála­menn, sem hafa snef­il af virðingu fyr­ir siðmenntuðu sam­fé­lagi, væru bún­ir að segja af sér út af hverju ein­asta máli.

„Held­urðu í al­vör­unni að þú kom­ist upp með þetta,“ spurði hann Bjarna Bene­dikts­son fjár­mála­ráðherra aft­ur.

Bjarni tók ekki vel í þessi orð og sakaði Björn Leví um að halda uppi áróðri gegn sér.

„Ég hef bara aldrei átt í vand­ræðum með það að mæta kjós­end­um í þessu landi, ganga í gegn­um kosn­ing­ar, mæta þér og öðrum mót­fram­bjóðend­um, svara fyr­ir mig og mín mál. Uppi­staðan af öllu því sem þú ert að telja er áróður.

Og nú gegn­um við til kosn­inga í sept­em­ber síðastliðinn og það var einn þingmaður sem fór með fleiri at­kvæði á bakvið sig held­ur en nokk­ur ann­ar sem að fékk kosn­ingu í þeim Alþing­is­kosn­ing­um, og það er sá sem þú ert að tala við núna,“ svaraði Bjarni.

Björn Leví spurði þá aft­ur hvort ráðherra teldi hollt fyr­ir ís­lenskt sam­fé­lag að upp­lýs­ing­ar um að fjár­mála­ráðherra hafi selt faðir sín­um banka, skyldu koma upp eins og gerðist.

Bjarni sakaði Björn Leví enn og aft­ur um áróður og sagði hann það ekki stand­ast skoðun.

Sala bankans undir rannsókn

Salan hefur sætt mikilli gagnrýni og hafa bæði fjármála­eftirlit Seðla­banka Íslands og Ríkis­endurskoðun hafið rannsókn á henni. Þá hefur verið kallað eftir því að Alþingi skipi rann­sóknarnefnd í málinu en því hafa stjórnar­flokkarnir hafnað, í það minnsta þar til niður­staða í rann­sóknum fjármála­eftirlits og Ríkis­endur­skoðunar liggur fyrir.

Lárus Blöndal, stjórnar­formaður Banka­sýslu ríkisins, og Jón Gunnar Jónsson, forstjóri Banka­sýslunnar, mættu  á fund fjár­laganefndar á miðvikudag þar sem þeir fóru yfir söluna og svöruðu spurningum nefndar­manna.

Lög um peningaþvætti verið broti

Þá sagði Björn Leví það vera stjarn­fræðilega ólík­legt að for­stjóri og stjórn­ar­formaður Banka­sýsl­unn­ar hafi ekki gert sér grein fyr­ir að Hafsilf­ur, fé­lagið sem keypti hluti í Íslands­banka 22. mars síðastliðinn, hafi verið í eigu faðir fjár­mála­ráðherra, Bene­dikts Sveins­son­ar.

Velti hann upp hvort það væri ekki skylda ráðherra að spyrja spurn­inga um hvort hann væri van­hæf­ur að taka ákvörðun í ferli sem er ekki al­mennt.

„Við vor­um ekki í beinni sölu, við vor­um að fram­kvæma útboð. Útboð þar sem við vor­um með skil­grein­ing­ar á því hverj­ir gætu tal­ist hæf­ir til þess að taka þátt. En ef að þingmaður er svona sann­færður um að stjórn­sýslu­lög hafi verið brot­in, hér hafi lög um pen­inga­þvætti verið brot­in, hér hafi lög um marg­ar aðrar laga­grein­ar verið brotn­ar, þá hlýt­ur hann bara að vera ró­leg­ur því allt er þetta til skoðunar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá