Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Logi vill endurnýja aðildarumsókn að ESB: „Um er að ræða grundvallarhagsmuni þjóðarinnar“

Logi Einarsson. Mynd/Hallur Karlsson.
Logi Ein­ars­son. Mynd/Hallur Karlsson.

„Það verður að endurnýja samfélags­lega umræðu um aðild að sambandinu en einnig skerpa málflutning innan okkar eigin raða. Um er að ræða grundvallar­hagsmuni þjóðarinnar og það er tími til kominn að setja aðildar­umsókn að Evrópu­sambandi aftur rækilega á dagskrá.“

Þetta sagði Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar í ræðu sinni á flokk­stjórnar­fundi flokksins sem hófst í morgun. Þessu er greint frá á RÚV.

Félagshyggjufólk þurfi að sameinast

Logi sagði meðal annars að til þess að ná fram umbótum og jöfnuði fyrir almenning þurfi félags­hyggju­fólk að sameinast og hætta að stofna nýja og nýja flokka. Hann sagði það mjög umhugsunar­verða stöðu ef félags­hyggju­flokkarnir yrðu til lengri tíma áfram sitt hvorum megin víglínu íslenskra stjórn­mála. Á hann þar sennilega við veru Vinstri grænna í ríkis­stjórn með Sjálfstæðis­flokknum og Framsóknar­flokknum allt frá síðasta kjör­tímabili.

„Þá verður erfiðara að ná fram nauðsyn­legum réttlætis- og umbóta­málum fyrir almenning í landinu. Og afleiðingin í reynd; nær alltaf hægri stjórn áfram í landinu,“ sagði Logi í ræðu sinni.

Hann telur að flokkarnir sem staðsetji sig frá miðju til vinstri á hinu pólitíska rófi verði að koma sér upp nýju leik­skipulagi. Að vinna þurfi þvert á flokka þar sem markmiðin séu sameiginleg. Þetta sagði Logi að væri lærdómur sem draga ætti af síðustu kosningum.

Varast beri bergmálshella

Logi tók fram að varast beri bergmáls­hella samfélags­miðla og að frekar beri að fagna ólíkri sýn fólks. Hann telur að umburðar­lyndi sé lykil­atriði til þess að hægt sé að þjappa félags­hyggju­fólki í færri flokka. Hann sagði hugsanlegt að umburðar­lyndi hafi verið af skornum skammti undan­farin misseri.

„Vegna þess að við munum ekki ná árangri með því að stofna nýja og nýja flokka, oft utan um áhugamál einstakra stjórn­málamanna,“ sagði hann í ræðu sinni.

Logi undir­strikaði mikilvægi þess að leggja aftur í aðildar­umsókn að Evrópu­sambandinu. Hann sagði að hægt væri að sammælast um mikilvæg málefni á borð við réttlátan arð af sjávar­auðlindinni og aðgerðir í loftslags­málum. Logi telur ekki nægja að tilheyra NATO og benti í því samhengi á hlutverk Evrópu­sambandsins í varnar- og öryggis­málum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá