Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Falun Gong-uppþotið: Íslensk stjórnvöld héldu fólki af „svörtum lista“ föngnu

Í júní árið 2002 kom Jiang Zemin, þáverandi forseti Kína, í opinbera heimsókn til Íslands. Þegar áform um heim­sóknina voru kunngerð ákváðu einhverjir meðlimir Falun Gong-hreyfingarinnar að koma til landsins á sama tíma, í þeim tilgangi að mótmæla meðferð kínverskra stjórn­valda á andófs­mönnum í Kína.

Davíð Oddsson var forsætis­ráðherra á þessum tíma og ákvað að setja hömlur á komu fólks sem grunað var um að tilheyra hreyfingunni. Stjórn­völd lokuðu hóp fólks inni dögum saman á tómum skóla á Suðurnesjum við komuna til landsins, svo öruggt væri að mótmælendur skyggðu ekki á komu kínverska ráða­mannsins. Jiang Zemin bar meðal annars ábyrgð á ofsóknum á hendur meðlimum Falun Gong.

Á meðan fólkinu var haldið föngnu af lögreglu var hátíðleg móttaka haldin til heiðurs kínverska forsetanum, hvort tveggja í boði íslenskra stjórn­valda.

Samkvæmt grein sem birtist í Grapevine árið 2005 var farþegum sem báru kínversk nöfn bannað að fara um borð í flugvélar Icelandair í Danmörku á leið til Íslands. Þarna hafði fólki því bæði verið mismunað vegna trúar sinnar og nafna, allt samkvæmt fyrir­skipun íslenskra stjórn­valda.

Borgarstjórn ósammála ríkisstjórninni

Ekki virðist borgar­stjórn í Reykjavík hafa verið sammála afstöðu ríkis­stjórnarinnar þegar kom að meðlimum Falun Gong. Í tilkynningu frá Reykja­víkurborg í tengslum við heimsókn forsetans sagði meðal annars:

„Að gefnu tilefni vill borgarráð árétta að það samræmist ekki stefnu Reykjavíkurborgar að takmarka fjölda friðsamra mótmælenda í borginni. Ljóst er að tryggja verður öryggi erlendra gesta sem koma í opinberum erindagjörðum hingað til lands. Ríkar ástæður þurfa hins vegar að vera fyrir því að takmarka lýðræðislegan rétt fólks til að lýsa skoðun sinni eða afstöðu í tengslum við opinberar heimsóknir.“ (Morgun­blaðið)

Í samþykkt borgar­ráðs kom einnig fram að ekki stafaði hætta af frið­samlegum mótmælum. Þvert á móti væru þau eitt megin­einkenni lýðræðislegs stjórnarfars sem byggðist á virðingu fyrir mannréttindum. Í Reykjavík væri baráttufólki fyrir mannréttindum því alltaf velkomið að koma málstað sínum á framfæri með friði.

Átti aldrei að sjá mótmælendur

Joel Chipkar var einn af helstu tals­mönnum Falun Gong hér á landi. Hann tók þátt í friðsælum mótmælum hreyfingarinnar vegna komu forsetans.

„„Falun Dafa ho“ hrópaði Joel Chipkar frá horni Ingólfsstrætis og Hverfisgötu þegar forseti Kína gekk frá bíl sínum en það mun þýða „Falun Dafa er gott“. Skömmu áður hafði hann gert sig líklegan til að draga upp gulan borða með merki Falun Gong en afhenti hann lögreglu eftir að hún hafði rætt við hann. Þegar Chipkar hrópaði að forsetanum færðu nokkrir lögreglumenn sig að honum en héldu sig þó innan við afmarkað öryggissvæði. Nokkrir kínverskir öryggisverðir hlupu til og stilltu sumir sér upp við hlið Chipkars. “ (Morgun­blaðið)

Miklu púðri var eytt í að kínverski forsetinn sæi aldrei mótmælendur og að mótmælendur héldu sig á afmörkuðum svæðum. Forsetinn sótti til dæmis fund með þeim Davíð Oddssyni og Halldóri Ásgríms­syni í Þjóð­menningar­húsinu á allt öðrum tíma en auglýstur hafði verið, til þess að koma mætti í veg fyrir að forsetinn yrði mótmælendanna var, sem sennilega ætluðu sér að mæta að Þjóð­menningar­húsinu á sama tíma og Jiang Zemin.

Chipkar sagði það ósann­gjarnt að krefjast þess að fólkið væri á svæðum þar sem kínverski forsetinn sæi það ekki. Tilgangur Falun Gong-iðkenda væri einmitt að vekja athygli á mann­réttinda­brotum í Kína. Chipkar sagðist sjálfur eiga vini sem hefðu verið pyntaðir fyrir það eitt að leggja stund á Falun Gong.

Falun Gong

En hvað er Falun Gong? Auðvelt væri að gera sér í hugarlund að um væri að ræða hóp mótmælenda, hugsjóna­fólks sem vildi rísa til valda í Kína; fólks sem ætlaði sér að gera usla í heima­landinu og ógna stjórn­völdum. Það væri afar auðvelt að gera sér það í hugarlund, miðað við meðferð kínverskra stjórn­valda á fólkinu og framkomu íslenskra stjórn­valda í þeirra garð.

Falun Gong er hins vegar andleg iðkun sem byggir á kerfi hugleiðslu og andlegrar uppljómunar. Um er að ræða endur­vakningu á fornri kínverskri orku­leikfimi. Kerfið inni­heldur fimm íhugunar­æfingar og leggur áherslu á siðferði. Forsprakkar hreyfingarinnar vildu meina að með iðkun Falun Gong mætti bæta heilsu sína til muna, svo mjög að lyf of hefð­bundnar lækningar yrðu jafnvel óþarfar. Árið 1999 bannaði kínverski kommúnista­flokkurinn hreyfinguna. Grunn­gildi iðkunarinnar eru sann­leikur, samkennd og umburðar­lyndi. Þeir sem muna eftir komu hreyfingarinnar til landsins, eða þeirra fáu sem komust í gegn, muna ef til vill eftir sérkenni­legum hreyfingum, einskonar æfingum, sem meðlimirnir gerðu. Um er að ræða sérstakar hreyfingar sem iðkendur nota í þeim tilgangi að styrkja andlega þátt iðkunarinnar.

Meðlimur í fylgdarliði forsetans tók myndir af mótmælendum

„Um tylft Falun Gong-iðkenda var við Höfða í gærmorgun þegar forsetafrú Kína, frú Wang Yeping, kom þangað í skoðunar­ferð. Fólkið hélt sig á grasflöt, alllangt frá húsinu, og gerði æfingar og stundaði hugleiðslu.

Maður í fylgdar­liði kínverska forsetans gekk frá Höfða og tók nokkrar myndir af hópnum.

Eins og kunnugt er gerðu talsmenn Falun Gong samkomulag við lögreglu um að stunda æfingarnar á þremur afmörkuðum svæðum, á Austur­velli, Arnarhóli og í Hallar­garðinum. Joel Chipkar, einn talsmanna Falun Gong-iðkenda hér á landi, sagði við Morgun­blaðið að þau hefðu komið með flugvél seint í gærkvöldi og ekki verið í sambandi við aðra iðkendur. Þau hefðu því ekki vitað af samkomu­laginu við lögregluna. Um leið og hann frétti af fólkinu við Höfða hafi hann rætt við fólkið og fengið það til að færa sig.“ (Morgun­blaðið)

Meðlimir í stjórnar­andstöðu á Alþingi gerðu margir alvarlegar athuga­semdir við aðgerðir stórnvalda vegna heim­sóknar kínverska forsetans. Þannig fóru fulltrúar Samfylkingarinnar í allsherjar­nefnd Alþingis fram á að nefndin kæmi saman til fundar vegna málsins.

Frétta­blaðið fullyrti á sínum tíma að íslensk stjórn­völd hefðu fengið „svartan lista“ kínverskra stjórn­valda í hendurnar sem innihélt nöfn fólks sem iðkaði Falun Gong og tilheyrði hreyfingunni. Þennan lista hafi stjórn­völd stuðst við þegar fólki var meinuð innganga í landið. Íslensk stjórn­völd viðurkenndu á sínum tíma tilvist listans en hvorki staðfestu né neituðu því að hann kæmi úr höndum kínverskra stjórn­valda.

„Síðan bann var lagt við Falun Gong hafa yfir 50.000 manns verið hand­teknir, meira en 10.000 hafa verið sendir í þrælkunar­búðir án dóms og laga, 200 hafa verið dæmdir í fangelsi og 1.000 manns hafa verið vistaðir á geðsjúkrahúsum. Það versta er að yfir 200 manns hafa svo verið drepnir fyrir það eitt að leggja stund á æfingarnar,“ sagði Kevin Yang, Falun Gong-iðkandi í viðtali við DV þann 10. júní árið 2002.

Um sjötíu iðkendum Falun Gong var meinuð innganga í landið. 26 þessara einstaklinga komu til landsins með flugvélum frá Banda­ríkjunum. Þeir aðilar voru fluttir í Njarðvíkur­skóla við komuna til landsins, þar sem þeir voru í haldi lögreglu. Á fimmta tug einstaklinga sem komu með flugvélum frá Kaupmanna­höfn og nokkrum með flugi frá öðrum Evrópu­löndum var synjað um inngöngu.

Peter Rechnagel, þýskur námsmaður og meðlimur Falun Gong-hreyfingarinnar, sem haldið var í Flugstöð Leif Eiríks­sonar, sagðist hafa verið í yfirheyrslum í sex klukku­stundir. Hann sagði í samtali við DV að lögreglan hefði þjarmað að sér og ekki gefið honum skýringar á hand­tökunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá