Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Svavar í óvissuferð með frúnni: „Ætlar að gera mér þann grikk að leiða mig út í einhverja óvissu“

Svavar Pétur
Svavar Pétur Mynd: Facebook

Afmælis­barn dagsins er enginn annar en Prins Póló sjálfur eða Svavar Pétur Eysteinsson eins og hann heitir í alvörunni. Er hann nákvæmlega 45 ára í dag.

Svavar Pétur hefur gefið út nokkrar plötur sem Prins Póló þar sem hann syngur um hversdagsleg vandamál en með frægari lögum með honum má nefna Niðrá strönd, París Norðursins og Líf, ertu að grínast? Þá hefur hann einnig spilað með böndum á borð við Létt á bárunni, Rúnk, Emmet, Blimpt, Skakkamanage og Múldýrið.  Hefur hann einnig komið að ýmsum öðrum þáttum tónlistar eins og plötu­útgáfu, tónsmíðum og textagerð.

Í fyrra sagði Svavar Pétur frá því að hann hefði greinst með ólæknandi krabba­mein í vélinda en segist í viðtölum ekki lifa í óttanum og má segja með sanni að hann tekst á við veikindin með fádæma auðmýkt og þokka.

Mannlíf hringdi í afmælis­barnið og spurði hann út í daginn, hvort og þá hvernig hann hyggðist fagna deginum.

„Þetta hefur verið frekar hefð­bundinn dagur fram að þessu en ég er nú á leið í óvissu­ferð með frúnni. Hún ætlar að gera mér þann grikk að leiða mig út í einhverja óvissu seinni partinn þanng að ég er svona að kúka í buxurnar með það.“ Aðspurður hvort hann fengi enga köku í tilefni dagsins sagðist hann ekki viss með það. „En ég fékk pönnu­kökur hjá tengda­mömmu í dag.“

En hvað er framundan hjá Svavari Pétri?

„Ég er á fullu að vinna verk fyrir sýningu sem opnar í Gerðu­bergi 28. maí. Og svo er ég að reyna að koma mér í sauðburð fyrir austan, einhverntíman í maí líka. Við eigum frændfólk í Beru­firðinum þar sem við höfum alltaf reynt að taka átt í sauðburði.“

Mannlíf óskar Svavari Pétri innilega til hamingju með daginn!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá