Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Hafþór Júlíus og Eddie Hall hræktu hvor á annan: „Ég ríf af þér fokking hausinn“

Mynd/skjáskot Twitter
Mynd/skjá­skot Twitter

Það kastaðist vægast sagt í kekki milli kraft­lyftinga­mannanna Hafþórs Júlíusar Björns­sonar og Eddie Hall á dögunum. Í myndbandi sem hefur farið eins og eldur í sinu um netheima má sjá mennina tvo nánast lenda saman eftir að hafa látið ýmis fúkyrðin fljúga. Að endingu sést Eddie Hall hrækja á Hafþór Júlíus, sem svarar í sömu mynt.

Mennirnir tveir munu mætast í bardaga um helgina en svo virðist sem þeir séu einnig andstæðingar utan hringsins og hafi komist nálægt því að fá forskot á sæluna.

Í mynd­bandinu standa mennirnir hvor ofan í öðrum og Eddie segir: „Ef þú fokking snertir mig þá bít ég af þér nefið. Komdu út fyrir og ég ríf af þér fokking hausinn. Fokking ræfill.“

Eftir einhver óp þeirra á milli þar sem Hafþór svarar fúkyrðum Eddie á svipaðan hátt, heyrist hann öskra: „Fokkaðu þér.“

Því næst hrækir Eddie á Hafþór og Hafþór hrækir til baka í kjölfarið.

Var augljóslega að skipuleggja þetta

Hafþór hefur tekið málið upp á Youtube-rás sinni. Hann segir Eddie hafa mætt óvænt á æfinga­svæði sitt. „Ég var að búa mig undir að byrja að æfa þegar ég fæ skilaboð um að Eddie væri fimm mínútur í burtu,“ segir Hafþór. „Ég hafði ekki hugmynd um að þetta væri að fara að gerast. Eddie var augljós­lega að skipuleggja þetta.“

Hafþór segir mikinn æsing hafa verið í þessu og að fúkyrðum hafi verið hreytt fram og til baka. Að lokum hafi þurft að draga Eddie út úr byggingunni og vill Hafþór meina að einhver hafi slasast í havaríinu.

„Ég hrækti vissulega til baka og ég er ekki stoltur af því, en ég var uppfullur af adrenalíni og var mjög brugðið yfir því að hann skyldi gera eitthvað svona ógeðslegt.“

Hann segir að þrátt fyrir allt hafi honum tekist að halda sér þokkalega rólegum.

„Ég hlakka til að stíga inn í hringinn með Eddie á laugar­daginn svo við getum útkljáð þetta í eitt skipti fyrir öll, án þess að það breytist í ógeðs­legan götuslag, sem er greini­lega það sem Eddie var að falast eftir, miðað við augljósan skort hans á aga í atviki gærdagsins.“

Eddie Hall hefur nú viðurkennt að uppákoman hafi verið skipulögð fyrirfram. „Ég var beðinn um að fara þangað og hrista upp í hlutunum, svo ég gerði það,“ segir hann.

Mynd­bandið má sjá hér fyrir neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá