Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Hannes formaður KKÍ hvetur leikmenn til að stíga fram: „Við líðum enga svona hegðun“

Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ.
Hannes S. Jónsson, for­maður KKÍ.

Hannes S. Jónsson, formaður Körfu­knattleiks­sambands Íslands, KKÍ, hvetur alla þá innan hreyfingarinnar sem telja sig hafa orðið fyrir kynferðislegri áreitni af einhverjum toga til að leita til sambandsins eða lögreglu. „Við líðum enga svona hegðun,“ segir Hannes.

Leifur S. Garðarsson skóla­stjóri hefur verið settur af sem körfubolta­dómari hjá Körfu­knattleiks­sambandi Íslands, KKÍ. Ástæðan eru ósæmileg samskipti hans við kvenkyns leikmann sem áttu sér stað á samskipta­miðlum snemma árs í fyrra.

Mynd / Skjáskot RÚV.

Samskipti Leifs við leik­manninn voru á þann veg að stíga í vænginn við viðkomandi sem síðan kvartaði undan því við KKÍ. Samkvæmt óyggjandi heimildum Mannlífs hefur hann verið settur af sem dómari hjá sambandinu og þar hefur hann ekki dæmt leik frá því málið kom upp.

Í samtali við Mannlíf segist Hannes hvorki getað staðfest að Leifur sé dómarinn sem um ræðir né rætt málið í smáatriðum. „Ég get staðfest að þetta mál varðandi dómara kom upp og viðkomandi var tekinn af leikja­niður­röðuninni um leið og þetta mál kom upp og við sáum hvernig þetta var. Viðkomandi hefur í kjölfarið ekki dæmt í rúmt ár á vegum KKÍ. Um leið og það kom upp dæmdi viðkomandi ekki fleiri leiki á vegum sambandsins,“ segir Hannes. Aðspurður hvort um sé að ræða einangrað tilvik eða fleiri hefur formaðurinn þetta að segja:

„Þetta er einangrað tilvik sem við höfum staðfest. Við höfum verið að heyra meira og það þykir mér mjög alvarlegt. Þau mál myndum við vilja fá inn á borð til okkar eða þá til lögreglu. Svona mál eru það alvarleg að allir sem lenda í svona eiga að leita beint til okkar. Við tókum á þessu eina máli strax og svona athæfi er ekki liðið innan KKÍ, hvort sem það er dómari, þjálfari, leika­maður eða sama hver það er. En við getum illa tekið á svona málum nema við fáum upplýsingar um þau.“

Veistu meira um málið? Fullum trúnaði er heitið. Mannlíf tekur við ábendingum, mynd­böndum og myndum á [email protected]. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá