Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Jón Ólafs eyðir stórafmælinu með fjölskyldunni: „Svona einfalt og náið og gott“

Jón Ólafsson bassa­leikari á stór­afmæli í dag en eru áratugirnir nú orðnir 7 talsins. Varla finnst sá hljóðfæra­leikari sem hefur spilað með fleiri hljómsveitum á Íslandi, þótt víðar yrði leitað. Samkvæmt glatkistan.is hefur Jón leikið með á þriðja tug banda um ævina. Þær þekktustu eru Sonet, Start, Tatarar, Ástar­kveðja, Drýsill, Póker, Pops og Pelican.

Mannlíf bjallaði á stórafmælis­barnið og heyrði í honum hljóðið. Var hann fyrst spurður út í afmælis­daginn.

„Ég ætla bara að vera með börnum og barna­börnum, svona allra innsta hring. Svona einfalt og náið og gott.“

Aðspurður hvort hann sé að bardúsa við eitthvað á næstunni sagði Jón að það væri allt að fara í gang aftur eftir Covid. „Það er allt að fara í gang aftur eftir Covid, sem hægði á öllu. Ég var að spila á Blús­hátíðinni sem var bara eitt kvöld, núna 13. apríl. Ég spilaði þar með nýrri hljómsveit sem ég stofnaði í haust. Hún heitir Bláa höndin.“

Blaða­maður Mannlífs fanns sig knúinn af einhverri ástæðu, að spyrja Jón hvort hann hyggðist fara til útlanda á næstunni eins og meirihluti þjóðarinnar virðist ætla að gera. „Já mig langar að fara til London í september, mér finnst það svo góður tími.“

Að lokum var Jón spurður út í fjölda hljómsveita sem hann hefur verið með en nákvæm tala er nokkuð á reiki eins og gefur að skilja. „Ég hef nú ekki tölu á því en ætli það séu ekki svona 10-20, held ég. Þetta er auðvitað orðinn svolítið langur tími. Í sumum var ég nokkuð lengi eða í nokkur ár. En nú er þetta orðið þannig að menn eru í mörgum hljómsveitum á sama tíma. Þetta er mjög breytt, í gamla daga voru menn bara í sínu bandi, í sínu liði, með sína áhangendur. Þetta er mjög breytt allt saman.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá