Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Aaron Ísak sakfelldur – skylt að hlýta eftirliti yfirlæknis réttargeðdeildar Landspítalans

Aaron Ísak Berry.
Aaron Ísak Berry. Mynd: Söngvakeppni sjónvarpsins/RÚV

Söngvarinn Aaron Ísak Berry hefur verið sakfelldur í Héraðs­dómi Reykja­víkur fyrir kynferðis­brot gegn þremur 12 ára drengjum auk þess að hafa í fórum sínum barnaníðs­efni. Þrátt fyrir sakfellingu er það ákvörðun dómara að gera Aaroni Ísak ekki refsingu þar sem talið er að refsing verði ekki til bóta vegna andlegs ástands hans. Er honum þess í stað gert skylt að sæta eftirliti geðlæknis og meðferðum hjá sálfræðingum.

Í frétt DV segir að Aaroni Ísak hafi verið gefið að sök að hafa átt í óviðeigandi og klám­fengnum rafrænum samskiptum við drengina auk þess að hafa gert tilraunir til að fá þá til að hafa samræði við sig. Káfaði hann meðal annars á drengjunum í klofi auk þess að kyssa þá tungu­kossum.

Dómari taldi refsingu ekki til bóta

Í texta dómsins er að finna mjög ógeð­felldar lýsingar á athæfi og tali Aarons Ísaks. Kemur meðal annars fram að hann vildi fá drengina til að sleikja á sér rassinn og notaði þar orðalagið „rimma“ en dren­girnir vissu ekki hvað hann átti við. Einnig sendi hann þeim myndir af afturenda sínum og getnaðarlim sínum. Reyndi hann að fá drengina til að senda sér nektar­myndir gegn greiðslu. Einnig sendi hann andlits­mynd af sér þar sem hann var útataður í sæði. Kemur einnig fram að Aaron gaf drengjunum tölvuleikja­áskriftir fyrir tugi þúsunda í því skyni að mýkja þá og gera meðfærilegri.

Það var niður­staða sérfræðinga sem rann­sökuðu Aaron Ísak vegna málsins að hann væri sakhæfur en refsing væri ekki líkleg til að bera árangur vegna ástands hans.

Er það niður­staða dómsins að Aaroni Ísak verði ekki gerð refsing vegna glæpa hans en honum verði skylt að hlýta eftirliti yfir­læknis réttar­geðdeildar Land­spítalans á Kleppi og meðferðar sálfræðinga.

Ennfremur var Aaron Ísak dæmdur til að greiða einum drengnum sem hann braut gegn 1 milljón króna í miska­bætur, öðrum 600 þúsund krónur og þeim þriðja 500 þúsund krónur.

Vakti mikla athygli sem söngvari

Aaron Ísak er fæddur árið 1998 og verður 24 ára síðar á þessu ári. Hann vakti mikla athygli fyrir þátttöku sína í forkeppni Eurovision-söngva­keppninnar árið 2020 en þar keppti hann undir lista­manns­nafninu Kid Isak. Árið 2019 bar hann sigur úr býtum í Söng­keppni framhalds­skólanna er hann flutti lag hljóm­sveitarinnar Queen, Love of My Life.

Árangur Aarons Ísaks í tónlist vakti áhuga barna á honum og kemur fram í dómnum að dren­girnir voru upp með sér yfir þeirri athygli sem hann sýndi þeim. Brotin gegn drengjunum stóðu yfir frá hausti 2019 og fram á vorið 2020, en Aaron Ísak var þá 21 árs á meðan þolendur hans voru aðeins 12 ára.

Í dómnum kemur fram að Aaron Ísak upplifir sig yngri en hann er og á meðan hann framdi brotin hafi hann talið sig vera í einhvers konar ástar­samböndum við drengina og ekki séð neitt rangt við framferði sitt. Hann hafi síðan séð eftir á að hann hafi gert rangt.

Töluvert á eftir í þroska og greindur með ýmsar raskanir

Aaron Ísak viðurkennir að líklega hefði hann haldið áfram að brjóta af sér ef hann hefði ekki verið stöðvaður. Lögregla var kölluð til vegna framferðis hans og var hann tekinn í yfirheyrslu. Eftir yfirheyrslu fór hann í skóla tveggja drengja sem hann hafði brotið gegn, nálgaðist þá þar og sakaði þá um að ljúga á sig. Var hann í kjölfar þess settur í nálgunar­bann á drengina.

Í dómnum kemur fram að Aaron Ísak er öryrki og býr hjá móður sinni sem veitir honum mikinn stuðning. Í niður­stöðu sálfræði­mats kemur fram að hann er með sögu um einhverfu og kvíða­röskum frá barnæsku. Hann er með átröskun og er talinn tornæmur. Ekki er hægt að finna merki um siðblindu eða barna­girnd hjá honum þrátt fyrir þessi brot sem hafa sannast á hann. Jafnframt á Aaron Ísak sögu um þunglyndi.

Talið er að Aaron Ísak sé töluvert á eftir í þroska og því sé þroska­munur á honum og þolendum hans minni en aldurs­munur þeirra en þeir voru 12 ára þegar hann braut á þeim og hann var 21 árs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá