Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Ómar miðill segist geta opnað og lokað að vild: „Mjög óhollt að vinna í þessari orku allan daginn“

Ómar Pétursson.
Ómar Pét­urs­son. Mynd: Helgi Jónsson.

Ómar Pétursson er miðill og heilari. Hann segist vera í sambandi við leið­beinendur að handan og hjálpar fólki til að líða betur og aðstoðar fólk sem heyrir, sér eða skynjar eitthvað óeðlilegt á heimilum sínum. Ómar er í helgar­viðtali Mannlífs sem má í heild sinni lesa hér. 

Ómar segist geta lokað fyrir hæfi­leikann þegar hann vill. Og opnað. Hann fékk á sínum tíma kennslu eða þjálfun til að geta gert það.

„Það er mjög óhollt fyrir líkamann að vinna í þessari orku allan daginn.“

Orkan. Það er þessi orka. Það er sagt að það sé sérstök orka hjá heilurum. Miðlum.

„Orkan getur farið svolítið eftir því hvað viðkomandi þarf á að halda. Orkan hjá mér getur oft verið mjög köld en hún getur líka verið heit. Ég hef þrisvar farið á námskeið hjá Arthur Findlay College í Stansted í Bretlandi og eitt kvöldið var kennarinn með sýni­kennslu uppi á sviði. Ég settist tiltölu­lega framarlega. Sá sem var á sviðinu hafði aðgang að orku allra í salnum og fann ég eins og það væru reknir pólar í gegnum mig; ég var í Sahara-eyði­mörkinni öðrum megin og norður­pólnum hinum megin.“ Ómar hlær. „Þetta er rosalega misjafnt, sérstak­lega þegar ég fer í trans sem ég hef svolítið gert sem er bara hluti af þróuninni eða þroskanum en þá verð ég mjög kaldur. Það er bara hluti af því að mínir leið­beinendur eru að passa mig.“

En það er mik­il­vægt að passa upp á kær­leik­ann og einnig trúna.

Hvað með þægilega orku sem sumir finna fyrir hjá miðlum?

„Það er ekki hægt að vinna við að hjálpa öðrum nema með kærleika og það er þessi þægilega orka sem fólk finnur. Það er mikil­vægasti þátturinn. Og ef fólk ætlar að fara að vinna við þetta þá þarf það að sinna sjálfu sér. Viðkomandi byrjar alltaf á því að taka sjálfan sig aðeins í gegn til þess að það sé ekkert hjá honum sem mögulega truflar þegar hann fer að hjálpa einhverjum öðrum. Þannig að það er heilmikil sjálfs­vinna sem felst í því að fara þessa leið. Þetta er nátt­úrlega mjög gott fyrir mann sjálfan því maður hreinsar til og maður á alltaf að horfa meira fram á við en í baksýnis­spegilinn.

En það er mikilvægt að passa upp á kærleikann og einnig trúna. Ég segi oft að það skipti ekki öllu máli á hvað fólk trúir; það getur trúað á álfa og tröll og notað þau til að hjálpa sér eða það getur trúað á Jesú. Mér er sama hvað það er. Það er bara svo mikilvægt að viðkomandi trúi og hafi þannig trúna og kærleikann með sér í því sem verið er að gera. Þannig næst miklu betri árangur.“

Ómar talar um verndara sína. Ingibjörg, dóttir hans, teiknaði mynd af einum þeirra og hangir hún á vegg á heimilinu. Ómar segir að dóttir sín hafi séð verndarann vel. Hann kallar hann Valdimar, því hans rétta nafn sé svo erfitt og óþjált í framburði, og segir að hann hafi verið uppi í Bretlandi í kringum 1300-1400. „Ég kalla hann seið­skratta; honum finnst það ekki skemmtilegt. Hann var uppi á sama tíma og Merlin og þessir; þessar þjóðsögur sem voru í Bretlandi. Hann er seiðkarl eða galdra­karl, svolítið líkur Gandalf.“

„Valdimar.“ „Valdimar er annar af mínum tveimur aðal­leið­bein­endum sem eru búnir að vera með mér frá upp­hafi og í sjálfu sér miklu lengur en þennan tíma hérna en það er önnur saga.“ (Mynd: Helgi Jónsson.)

Ómar segir að öllu fólki fylgi tveir verndarar eða leið­beinendur. „Þó þeir kallist verndarar þá mega þeir ekkert gera nema að maður biðji þá um aðstoð. Þeir mega ekki grípa fram fyrir hendurnar á manni; ef maður talar ekki við þá eða skynjar þá ekki þá mega þeir það ekki. Valdimar er annar af mínum tveimur aðal­leið­beinendum sem eru búnir að vera með mér frá upphafi og í sjálfu sér miklu lengur en þennan tíma hérna en það er önnur saga.“

Hér má lesa allt viðtalið við Ómar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá