Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Segir Ísland hvorki varið fyrir innrás né hryðjuverkum – Ekki þörf á her með fasta setu á Íslandi

Samsett mynd. Jónsson, fyrrverandi sendiherra og sérfræðingur í varnarmálum. –
Samsett mynd. Jónsson, fyrr­ver­andi sendi­herra og sér­fræð­ingur í varn­ar­málum. – Mynd: Vilhjálmur Þór Guðmundsson / RÚV. Baldur Þórhallsson, stjórnmálafræðingur. Mynd. VÍSIR

Yfir milljón Úkraínu­manna eru nú land­flótta og óttast er að jafnvel nokkrar milljónir í viðbót flýji land á næstu vikum. Stríðið í Úkraínu hefur nú staðið yfir síðan 24. febrúar. Tólf dagar eru nú liðnir síðan rússnesk stjórn­völd sendu her sinn inn í landið.

Skiptar skoðanir eru um það hvernig smáríkið Ísland með land­fræðilega mikilvæga stöðu á milli stór­veldanna Banda­ríkjanna og Rússlands með einhuga stuðningi við Úkraínu staðsetji sig á alþjóða­vettvangi í ljósi aðstæðna. Þurfa Íslendingar að hafa áhyggjur að því að stríðið berist til Íslands og ef svo eru við undirbúin fyrir það eða er þess óþarfi?

Ísland hvorki varið gegn innrás né hryðjuverkjum

Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmála­fræði segir að Íslendingar verði nú að taka umræðuna um hvort sérstakar varnar­sveitir hafi viðveru á öryggis­svæðinu á Kefla­víkur­flugvelli, í ljósi stríðs í Evrópu. Ísland sé hvorki varið fyrir allsherjar­innrás né sértækum hryðjuverka­árásum.

„Ég held að það sé mjög mikilvægt núna á þessum tímum að við hugum að því hvernig við styrkjum varnir landsins. Mér finnst það hafa gleymst dálítið í umræðunni almennt í hinum vestræna heimi: Mikilvægi fælingarinnar. Að fæla óvina­sveitir frá því að ráðast á ríki,“ sagði Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmála­fræði, í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í gær.

Baldur birti í gær pistil á Facebook sem vakti talsverða athygli. Þar veltir hann upp spurningum um öryggismál smáríkja, sérstak­lega þeirra sem ekki hafa her eins og Ísland, og varnar­samninga við bandalags­ríki. Hann segir fælinguna grundvöll í varnar­stefnu og grundvöll að friði: Að tryggja að ekki verði gripið til vopna.

„Að sjálfsögðu er aðild Íslands að Atlantshafs­bandalaginu sem og varnar­samningurinn við Banda­ríkin mikil­vægasta tækið til fælingar. En það sem vantar er mikilvægi þriðji þátturinn í þetta að það eru varnar- eða öryggis­sveitir á öryggis­svæðinu í Keflavík sem eru ekki lengur til staðar,“ segir Baldur í Reykjavík síðdegis.

Albert Jónsson fyrr­verandi sendi­herra og sérfræðingur í utanríkis- í varnar­málum segir í viðtali við Spegilinn að hernaðar­áætlun Rússa virðist, litið yfir landið í heild, óbreytt.  Þeir ætli sér að sitja um höfuð­borgina Kænugarð, en hernaðurinn hafi gengið hægar en búist var við.

Ekki þörf á herliði með fasta viðveru hér á landi

„Rússar ætla sér að ná tökum á Úkraínu, hafa þar öll tögl og haldir“ segir Albert í viðtali við Kristján Sigurjónsson á RÚV.

„Þeir eru búnir að umkringja nokkrar borgir. Þeir ætla að setja Zelenskí og stjórn hans í þá stöðu að annað hvort gefist hún upp, eða að það verði barist um höfuð­borgina og hún lögð í rúst. Í grunninn hefur rússneski herinn mikla yfirburði í þessu stríði“ segir Albert.

Albert segir ekki þörf á herliði með fasta viðveru hér á landi í núverandi stöðu heimsmála. Ísland sé aðili að Atlantshafs­bandalaginu og Íslendingar eigi sameiginlega hagsmuni með Banda­ríkjunum, sem sæju hag í að verja Ísland , ef til þess kæmi að átökin í Úkraínu yrðu kveikjan að heims­styrjöld.  Albert segir að hún sé ekki á leiðinni.

Eina ógnin og eina hernaðarhlutverkið sem Ísland myndi hafa

„Það er engin hernaðarleg ógn sem steðjar að Íslandi fyrr en til stórvelda­styrjaldar kæmi, sem þá næði til Norður­hafa því Kefla­víkur­flugvöllur myndi hafa stuðnings­hlutverk við sóknar­aðgerðir gegn Rússlandi í Norður­höfum og auðvitað yrði Kefla­víkur­flugvöllur skotmark í því samhengi. En eins og ég segi, þetta er eina ógnin og eina hernaðar­hlutverkið sem Ísland myndi hafa í slíkum átökum“.

Við eigum sameiginlega hagsmuni með Bandaríkjunum

Er þá ekki þörf á herliði með fasta setu hér?

„Nei greini­lega ekki að áliti Banda­ríkjanna sjálfra sem fóru fyrir mörgum árum og eru ekki á leiðinni til baka. Menn mega ekki gleyma því að öryggis­trygging Íslendinga, ef menn skoða söguna frá 1941, hún liggur í því að við eigum sameiginlega hagsmuni með Banda­ríkjunum“.

„Um leið og Banda­ríkin telja að þeim eða vestur­hveli sé ógnað á Atlantshafi, annað hvort frá stórveldi á megin­landi Evrópu, eða eftir einhverja áratugi stórveldi frá Norðurslóðum, þá koma Banda­ríkin. Það eru þjóðar­öryggis­hagsmunir Banda­ríkjanna, þeir tengjast mjög náið Íslandi, ef það stendur ógn að þeim“ segir Albert Jónsson.

Gæslusveitir NATO-ríkjanna ekki varnarsveitir

Baldur segir hins vegar að undan­farinn einn og hálfan áratug, frá því að Banda­ríkin hættu hernaðar­viðveru sinni hér á landi, hafa bandalags­ríki NATO auk Svía og Finna skipst á að halda hér úti loftrýmis­gæslu auk þess sem kafbáta­leitar­sveitir hafa komið hingað í auknum mæli til að fylgjast með ferðum rússneskra kafbáta um landið.

„Þessar sveitir eru hér svo oft og eru svo tíðar á öryggis­svæðinu að nánast er um fasta viðveru að ræða. En það er tvískinn­ungur í því að geta ekki kallað það fasta viðveru. Það má ekki nefna það í eyrum stjórn­málamanna af einhverjum orsökum. Til viðbótar við það, sem er kannski ennþá mikil­vægara, eru þessar sveitir ekki varnar­sveitir,“ segir Baldur.

Mikil­vægur munur sé þar á.

„Þessar sveitir eru að líta eftir flugvélum og kafbátum ef það kæmi til þess, sem við svo sannarlega vonum að verði ekki, að hér yrði til dæmis lítil hryðjuverka­árás eða lítil árás á landið. Þessar sveitir, sem eru með loftrýmis­gæslu, eða kafbáta­sveitir þær koma okkur ekki til bjargar. Til þess þarf sérstaka sveit kvenna og manna til að bregðast við svona aðstæðum og það er ekki til staðar,“ segir Baldur.

Utanríkisstefna Sjálfstæðisflokksins ræður för

Hann segir að í gegn um tíðina hafi verið litið niður á umræðu um þessi mál. Fólk vilji ekki taka um þetta samtalið, sem hann segir nauðsynlegt.

„Ég hef upplifað það í gegn um tíðina að þegar maður fer að tala um að við þurfum að hugsa að því hvað gerum við ef hér verður hryðjuverka­árás þá byrja eiginlega allir að sussa á mann. Við erum viðkvæm almennt fyrir þessari umræðu vegna þess að við erum herlaus, við erum ekki vön að ræða þessi mál og lifum tiltölu­lega frið­samlega þannig að við erum óvön þessari umræðu,“ segir Baldur.

Þessi afstaða einskorðist þó ekki við almenna umræðu heldur hafi þessi mál verið viðkvæm í íslenskum stjórn­málum.

„Aðildin að NATO, varnar­samningurinn við Banda­ríkin og vera hersins var helsta deilumál hér í áratugi. Núna erum við með þessa athyglis­verðu ríkis­stjórn, samstarf Sjálfstæðis­flokksins og VG sem gerir það að verkum fyrir báða flokka að ræða þessi mál og halda fram sínum sjónar­miðum. En það er klárlega utan­ríkisstefna Sjálfstæðis­flokksins sem ræður för  í ríkis­stjórninni og samið um það í stjórnar­myndunar­viðræðum,“ segir Baldur.

Ósammála því að Ísland yrði frekar skotmark ef hér væri herstöð

Hann segist þá ekki sammála þeim sem telji að Ísland yrði frekar skotmark ef hér yrði varanleg herstöð, eins og sumir telji.

„Ég er ekki sammála því og í rauninni segja alþjóða­stjórnmálin, fræðin og stjórnmála­fræðin það að lítil ríki eins og við, við getum ekki varið okkur. Við getum ekki varist allsherjar­innrás og ekki einu sinni takmarkaðri hryðjuverka­árás.“ segir Baldur.

„Við þurfum á aðstoð utan­aðkomandi aðila að halda ef á okkur verður ráðist og það er orðið of seint að kalla til aðstoðar og gera svona samninga ef við erum lent í átökum. Það verður að gera svona samninga á friðar­tímum þegar minnst þörf er á því en þá þarf einmitt að stíga niður og gera það.“

Engin bráð hætta sé til staðar á Íslandi 

Hann telur að nú sé rétti tíminn til að ræða þessi mál og nú verði að gera það mjög opinskátt og af vilja til að hlusta á allar hliðar.

„Bæði hvort sé þörf er á þessu og það er fleira sem ég myndi vilja ræða. Við þurfum líka að ræða að bandamenn okkar komi til aðstoðar ef það verður netárás á landið, ég vil líka sjá umræðu um hvernig eigi að verja sæstrengina sem liggja hér til lands,“ segir Baldur og nefnir að ef óvina­herir myndu vilja einangra okkur á Íslandi þyrfi einungis að klippa á sæstrengina tvo sem liggi til landsins.

„Mér skilst að þá geti heimilis­tölvurnar okkar ekki einu sinni virka, þær verða þá ekki tengdar netinu. Hvernig ætlum við að verjast þessu? Hvernig ætlum við að fá aðstoð ef það er klippt á þessa strengi?“ spyr Baldur.

„Við þurfum líka að ræða hverjir geti komið okkur til aðstoðar með byrgðaflutninga og fólks­flutninga ef kæmi til átaka.“

Hann segist alls ekki vilja að Ísland dragist inn í stríð Úkraínu og Rússlands og tekur fram að engin bráð hætta sé til staðar á Íslandi.

„Það er hins vegar alla tíð mikilvægt að ræða þessi mál svo það sé hægt að fyrir­byggja að eitthvað gerist og nota fælinguna til að verjast frekar en að þufa að grípa sjálf til vopna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá