Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Ljóð um Úkraínustríðið – Skipun geddunnar

Kristiina Ehin, ljóðskáld
Kristi­ina Ehin, ljóð­skáld

Ljóðið Skipun geddunnar var flutt í Kiljunni á Rúv nýlega. Eistneska skáldið Kristiina Ehin samdi ljóðið en það fjallar um stríðið í Úkraínu.

Ljóðið hefur ekki enn komið út á prenti en Ehin flutti það nýverið í eistneska sjón­varpinu og vakti mikla athygli. Það voru þær Lemme Linda Saukas Ólafs­dóttir og Guðrún Hannesdóttir sem þýddu ljóðið yfir á íslensku en leikkonan Sólveig Arnars­dóttir flutti það í Kiljunni.

Ehin flutti ljóðið í eistneska sjón­varpinu nýverið og hefur það ekki enn komið út á prenti.

Ljóðið var þýtt á íslensku af Lemme Lindu S. Ólafs­dóttur og Guðrúnu Hannesdóttur og flutt í Kiljunni af Sólveigu Arnars­dóttur leikkonu.

Lesa má ljóðið á íslensku hér fyrir neðan hér má hlusta á fluttning Sólveigar á ljóðinu.

Skipun geddunnar

Venju­legir rússneskir strákar

sem helst kunna fótum sínum forráð

á fjöl­förnum stríðs­slóðum tölvu­leikja

eru skyndi­lega sendir út á vígvöllinn sjálfan

til að kremja nasismann úr óvininum

murka lífið úr mennsk­unni

Samkvæmt fyrir­mælum geddunnar

sem sagt er frá í rússnesku ævintýri

ráfa nú venju­legir menn um í blindni

skjóta á sjúkrahús og leikvelli barna

Mamma ég er hræddur. Okkur er sagt að skjóta á allt

segir rússneskur hermaður við móður sína

í langlínu­símtali sem nær fram á árbakka Ob.

Pabbi, ekki gefast upp! skrifar úkraínskt barn í símann sinn

á fimmta degi í neðan­jarðarskýli í Tjernihiv og sendir

til föður síns sem stendur vörð á brú yfir ána Dnjepr

Rússneska kona:

Á þessari stundu fremur sonur þinn morð!

Á þessari stundu úthellir maður þinn saklausu blóði!

Ég greiði stærsta framlag lífs míns til Rauða krossins

reyni að hlusta á minn innri friðar­ráðgjafa:

þetta er það eina sem þú getur gert, segir hann

andaðu að þér skamm­vinnu sólskini vetrar­dagsins

láttu ekki huga þinn breytast í vígvöll.

Geddunni er efst í huga að leggja allt í rúst

en guðir fortíðar styrkja okkur eftir megni

ég heimsæki Þjóð­minjasafnið til að sjá

hvort farið sé að loga á furu­spýtunum fornu

sem geymdar eru í glerskápum á bak við eldvegg

og eiga samkvæmt sögnum að gefa

bjarg­vætti okkar í undir­heimum merki

kalla hann til hjálpar í ítrustu neyð.

Þú og ég

þeir og við

hver erum við

sem stöndum í eilífum næðingi evrópskrar sögu?

Ekki var grasið fyrr gróið

yfir sprengju­rústirnar frá því í mars 1944…

ekki var fyrr búið að hylja leifar Tsjernobyl steypu…

ekki voru fyrr fæddir nýir synir…

ekki fyrr búið að reisa ný minnis­merki…

Hver erum við ? – kannski sandkorn?

Í sál okkar skelfur óralöng víglína góðs og ills

þar sindrar barmafull bernska okkar í blágulu hafi

en sæmd okkar og samviska í umsátri myrkurs

Í smábæ við landa­mærin

er borði stillt upp fyrir friðar­viðræður

það glamrar í vatns­flöskunum

þegar flug­skeytin falla

Í öðrum bæ lengra í burtu

stendur úkraínsk amma við bakstur

bakar litlar lummur og hálfmána

úr hömstruðum hveiti­birgðum

og síðustu eggjunum úr hænsna­húsinu

sem búið er að sprengja í tætlur

Hún hefur gluggann sem snýr að víglínunni opinn

svo mörghundruð drengir geti komið og

deilt með henni þessari blessuðu kvöld­máltíð

hætt að drepa bræður sína

og reist þakið að nýju yfir höfðum þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt