Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Bjartmar Guðlaugsson tónlistarmaður: „Hef ekki lent í neinu, en hef komið mér í alls konar drullu“

Gestur Reynis í Mann­lífinu að þessu sinni er einn okkar ástsælasti texta- og laga­höfundur, Bjartmar Guðlaugsson. Bjartmar segist ekki getað skrifað ævisögu sína því þetta hafi allt verið svo einfalt. Hann ólst upp á Fáskrúðs­firði í algeru mæðra­veldi að eigin sögn, en pabbi hans var ekkert fyrir brennivín og var ástfanginn af mömmu hans í sextíu ár – sem var víst gagnkvæmt.

Spurður út í það hvernig það kom til, að eftir að hafa slegið í gegn með lögum eins og „Sumarliði er fullur“ var hann skyndi­lega orðinn glys­poppari í samfestingi, segist hann ekkert hafa vitað hvað var í gangi: „Þetta var aldrei neitt það sem ég ætlaði mér, sko. Ég var búinn að vera að yrkja síðan ég var barn og mér fannst svona að búa til texta við dægurlög, mér fannst það ekkert spennandi þótt ég væri í bullandi músík alltaf. Nema hvað að Siggi Bjóla sagði að þetta væri bull í mér og skömmu síðar var ég kominn í Hljóðrita að semja texta og lög. Og ég samdi bara fyrir aðra þangað til ég fór til Rúnars Júlíussonar. Ég kem af vertíð í Eyjum og þá var ég með þrjátíu lög sem ég hafði safnað upp á tíma. Ég kem til Rúnars og bið hann að útvega mér söngvara á þetta og hafði ákveðna menn í huga eins og Sigga Kjötsúpu og þessa gæja sem voru flottir rokk­söngvarar. Hann hverfur eitthvað á bak við með Þóri Baldurs­syni inn í eldhús og eru þeir eitthvað að spjalla og segja við mig: „Heyrðu þú átt  að syngja þetta sjálfur“. Ég sagði bara: „Ég er ekki söngvari, ég hef ekkert sungið nema sem unglingur kannski!“, en þeir sögðu að það væri ekkert hægt að bakka með það, það væri búið að ákveða þetta. Og þar með var ég farinn að syngja eigið efni og það var ekkert sem ég ætlaði.“

Bjartmar á langan og fjöl­breyttan feril að baki sem hann stiklar yfir. Bjartmar hvarf svo af sjónar­sviðinu á sínum tíma og fluttist til Danmerkur til að einbeita sér alfarið að mynd­listinni, en kom svo aftur og álpaðist þá aftur inn í tónlistina.

Bjartmar segist aldrei hafa verið tengdur pólitískum flokki og hefur til dæmis aldrei viljað spila á samkomum einhverra flokka, en hins vegar sé hann gagn­rýninn áhorfandi. Í viðtalinu segir hann skoðun sína á íslenskum stjórn­málum í dag.

Þrátt fyrir skoðanir sínar segist Bjartmar ekki tjá sig mikið almennt; þurfi hann að skjóta eitthvað geri hann það í sínum textum!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt