Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Húsfrú fékk nærri taugaáfall er hún sá Mick Jagger í eldhúsglugganum: „Hélt ég væri orðin brjáluð“

Mick Jagger ásamt sínum stærsta aðdáanda, Ólafi Helga Kjartanssyni, bæjarstjóra Ísafjarðar á þeim tíma.
Mick Jagger ásamt sínum stærsta aðdá­anda, Ólafi Helga Kjart­ans­syni, bæj­ar­stjóra Ísa­fjarðar á þeim tíma. Mynd: Árný Herbertsdóttir

Einn góðan ágúst­morgun árið 1999 vaknaði ísfirska húsmóðirin Halla Margrét Ólafs­dóttir, nuddaði úr sér stírunum og gekk að eldhús­glugganum og gerði sig líkalega til að gá til veðurs. Ekkert veður sá hún en andlitið á Mick Jagger, söngvara Rolling Stones blasti hinsvegar við henni í staðinn. Fékk hún nærri tauga­áfall við sjónina og rak upp skaðræðis­öskur. Þegar hún hafði náð að róa sig niður fór hún út og fékk eiginhandar­áritun frá goðsögninni. Þetta var extra góður ágúst­morgun hjá Ísfirðingum.

Sagt er svo frá þessari óvæntu heimsókn Jaggers í DV:

Mick Jagger heimsótti Vestfirði um helgina:
Öskraði þegar Jagger var við eldhús­gluggann

„Ég er í fríi að hvíla mig og nota tækifærið til að líta smávegis í kringum mig,“ sagði Mick Jagger, aðal­sprauta Rolling Stones, í samtali við DV á bryggjunni við Sundahöfn á ísafirði á sunnudag. Jagger, sem um þessar mundir stendur í erfiðu skilnaðar­máli við Jerry Hall, hélt til um borð í Amazon Express, einka­snekkju ítalsks vinar síns, en brá sér í land snemma á sunnudags­morguninn og hjólaði um bæinn án þess að fólk veitti honum framan af sérstaka eftirtekt. Mick Jagger notaði daginn til að skoða sig um á Ísafirði. Hann skoðaði sjóminja­safnið í Neðstakaupstað og snæddi á veitinga­stað í Tjöru­húsinu og bragðaði á hákarli án þess að láta í ljós sérstaka velþóknun á þeim þjóðar­rétti Íslendinga. Nokkrir báru kennsl á þennan frægasta rokk­söngvara heims og þá spurðist fljótt út að hann væri á svæðinu. Það safnaðist nokkur hópur að honum og vildi ræða við kappann og fá eiginhandar­áritanir. Jagger tók öllu slíku vel og áritaði á báða bóga og ræddi við Vestfirðinga. Hann lék á als oddi og spjallaði við fólk um heima og geima.

Húsmóðir í miðbæ Ísafjarðar fékk næstum tauga­áfall þegar hún nývöknuð leit til veðurs út um eldhús­gluggann og sá þá framan í Mick Jagger. „Ég hélt ég væri orðin brjáluð þegar það fyrsta sem ég sá var andlit Micks Jaggers. Ég var að sötra teið mitt og þegar ég áttaði
mig á því hver þetta var öskraði ég svo hátt að ég fékk verk í hálsinn. Þetta var alveg ótrúlegt og raunar út i hött,“ sagði Halla Margrét Óskars­dóttir við DV. Hún nældi sér siðan í eiginhandar­áritun Jaggers og ræddi stuttlega við hann. „Ég sagði honum að sonur minn
væri gítar­leikari að reyna að fóta sig i London og hann vildi vita hvað hann héti. Það var stórkostlegt að eiga kost á að tala við hann,“ sagði Halla Margrét.

„Ó, guð, ég þvæ mér ekki um hendurnar næstu dagana,“ sagði tánings­stúlka sem rokkarinn tók í höndina á. Sveinn Þormóðsson, ijósmyndari DV, rifjaði upp fyrir Jagger að þeir hefðu hist í Liverpool árið 1964 þegar þeir gistu á sama hóteli þegar Sveinn fylgdi KR-liðinu sem keppti við Liverpool. Hann fór eitt sinn inn á herbegi til Stones í boði þeirra og spjallaði við þá drykk­langa stund. Jagger virtist hálf­undrandi að hitta Íslending sem hefði hitt hann svo mörgum áratugum fyrr. Hann heilsaði Sveini með handa­bandi og sagði skemmtilegt að þeir skyldu hittast.

Jagger gefur eig­in­hand­ar­á­rit­anir

Þegar DV innti hann eftir íslands­heimsókn Rolling Stones sem aldrei varð og benti honum á að Íslendingar hefðu beðið hans og Rollinganna í tvö ár sagðist hann vera undrandi. Hann
sagði tónleika á Íslandi aðeins hafa verið á umræðu­stigi en engin ákvörðum verið tekin um að halda þá. „Er það virkilega? Áttuð þið von á að við kæmum?“ svaraði hann og hló. Mick Jagger kom fljúgandi til Íslands á laugardag og síðan flaug hann til Hólma­víkur þangað sem snekkjan sótti hann. Hann sagðist í samtali við DV mjög ánægður með það sem hann hefði séð af Íslandi fyrir þoku sem náði niður í miðjar hlíðar í gær. „Þetta virðist hið fegursta land en þokan setur þó strik í reikninginn. Fólkið er yndislegt og þetta virðist vera yndis­legur staður,“ sagði hann og stökk um borð í bátinn sem flutti hann um borð í snekkjuna á Pollinum á Skutuls­firði. Ekki varð úr því að Jagger færi á pöbbarölt svo sem til hafði staðið og létti snekkjan akkerum um klukkan 3 aðfara­nótt mánudags.

Enn eiga öldungarnir í Rolling Stones eftir að halda tónleika hér á landi en miðað við langlífi þeirra er enn von, að minnsta kosti næstu 10-15 árin á að giska.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur