Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Bubbi tekur forseta Alþingis og Viðreisn á beinið

„Ertu ekki að grínast?“

Bubbi Morthens
Bubbi Morthens Þykir vænt um lax­inn Mynd: Facebook

Þórunn Svein­bjarnar­dóttir, forseti Alþingis, og Hanna Katrín Friðriksson atvinnumála­ráðherra hafa báðar lýst yfir efasemdum yfir því að útvistar­fyrirtækið Patagonia hafi hvatt fólk til að senda inn umsögn um lagareldi á Íslandi.

„Ég er ekki viss um að þetta sé fordæma­laust, við höfum áður hér á Alþingi fengið umsagnir við laga­frumvörp erlendis frá,“ sagði Þórunn við RÚV um málið. „Ég er auðvitað hugsi yfir þessu og skil vel að atvinnuvega­ráðherra hafi af þessu áhyggjur,“ hélt hún áfram.

„Við skulum ekki vera svo bláeyg að halda að erlendir aðilar hafi ekki áhuga á okkur eða reyni ekki að hafa áhrif hér á landi. Og það er okkar hlutverk, sem erum í stjórn­málum, að sjá við þeim - það má kannski orða það þannig.“

Bubbi vægast sagt ósáttur

Hafa orð Hönnu og Þórunnar farið fyrir brjóst á sumum og er tónlistar­maðurinn Bubbi Morthens einn af þeim.

„Ertu ekki að grínast?“ spyr Bubbi á samfélag­miðlum. „Forseti alþingis hefur áhyggjur yfir því að bandaríska fyrir­tækið Patagonia varar fólk við frumvarpi Viðreisnar og hvetur fólk til að senda inn athuga­semdir við það. Og hún lætur í veðri vaka að þetta sé alveg gasalega skrítið: STÓRFYRIRTÆKI REYNIR AÐ HAFA ÁHRIF. Eigið þið annan, frú forseti alþingis og atvinnumála­ráðherra?“ spyr tónlistar­maðurinn.

„Norðmenn eiga laxeldis­fyrirtækin sem eru skráð í erlendri kauphöll en hún hefur ekki áhyggjur yfir því að milljarða­fyrirtæki Norðmanna hafi yfirtekið firði Íslands undir laxeldi sitt í opnum kvíum. Og með milljarða­þung orð sín og áhrif inní stjórn­sýsluna komast þeir upp með sóðaskap sinn og endalaust tap á rekstrinum sem Viðreisn virðist ætla að bjarga þeim með,“ segir Bubbi.

„Viðreisn er gengin erlendum öflum á hönd en talar um að erlend öfl séu að reyna að hafa áhrif hér á landi. Í hvaða veröld lifir forseti alþingis og ráðherra Viðreisnar? Náttúra Íslands hefur alltaf þurft að gefa eftir í gegnum árin. Ef við værum að græða á þessu, sem við erum alls ekki að gera, væri möguleiki að skilja eitthvað í þessu ömurlega frumvarpi sem virðist hafa verið samið með laxeldis­mönnum. Ég hvet alla hvar sem er á landinu öllu: eina leið okkar er að kjósa ekki Viðreisn og beita okkar þunga gegn þessum flokki. Ef einhver vill tala um erlend stór­fyrirtæki þá er það Viðreisn sem hefur gengið þeim á hönd,“ skrifar Bubbi að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim