Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Kristinn bæjarstjóri segir styttuna skemmda: „Hugmyndafræði sem ríkti þá og ríkir enn í dag“

Krist­inn Jónas­son, bæj­ar­stjóri Snæ­fells­bæj­ar, furðar sig á máli brons­styttunnar Fyrsta móðirin í Ameríku. Í samtali við Mbl.is greinir Kristinn frá því að hann hafi þurfti að skila inn gögnum fyr­ir hönd Guðríðar- og Langa­brekku­hóps­ins til sönn­un­ar á eign­ar­haldi á stytt­unni.

Styttan, sem er eftir Ásmund Sveinsson, var numin á brott af stöpli sínum á Laugar­brekku á Snæfellsnesi í apríl. Síðar kom í ljós að lista­konurnar Bryndís Björns­dóttir og Steinunn Gunnlaugs­dóttir hefðu tekið verkið ófrjálsri hendi og komið því fyrir inn í nýju verki, geimflaug sem sett var upp fyrir framan Mars­hallhúsið á Granda og nefnist Farangurs­heimild.

Kristinn kærði málið til lögreglu sem fjarlægði verkin tvö 22. apríl en enn hefur ekki tekist að aðskilja þau. Hann seg­ir málið vera óskilj­an­legt, enda hafi verk­inu verið stolið af lista­mönnunum og sé skemmt: „Ef ég kæmi heim til þín, stæli bíln­um þínum og málaði á hann rós­ir og segði að þetta væri lista­verk, á ég þá bara að eiga bíl­inn?“

Í yfir­lýsingu Bryndísar Björns­dóttur og Stein­unnar Gunnlaugs­dóttur frá 27. apríl síðastliðnum segjast þær ekki hafa játað þjófnað og skora á lögregluna að skila verkinu Farangurs­heimild aftur fyrir framan Mars­hallhúsið. Þær bera því fyrir sig að verk þeirra hafi verið ádeila á innbyggðan rasisma í verki Ásmundar.

„Verkið Fyrsta hvíta móðirin í Ameríku kjarnar í okkar huga hugmynda­fræði sem ríkti í íslensku samfélagi þegar styttan var gerð – og ríkir enn í dag. Sú hugmynda­fræði heitir rasismi og á sér djúp­stæðar, menningarlegar og kerfis­lægar rætur. Þegar athöfn, orði eða verki er lýst sem rasísku er því ekki sjálf­krafa átt við að þar að baki búi meðvitaður rasískur ásetningur einstaklings,“ segir í yfir­lýsingu þeirra.

Styttan Fyrsta hvíta móðirin í Ameríku er af Guðríði Þor­bjarn­ar­dótt­ur sem var fædd á Laugar­brekku og um tíma talin vera víðförlasta kona heims. Kristinn segir að verið sé að gera lítið úr þeirri vinnu sem Guðríðar-og Laug­ar­brekku­hóp­ur­inn hef­ur lagt í við að upp­hefja sögu Guðríðar sem og kvenna al­mennt.

„Það sem við vor­um að gera á þess­um tíma var að upp­hefja þessa sögu þess­ar­ar konu. Svo vor­um við að hugsa hvernig get­um við gert þetta. Þá datt okk­ur í hug að fá að nota stytt­una sem tákn­ræna mynd fyr­ir það sem við vor­um að gera, því það var búið að gera styttu um henn­ar sögu. Svo för­um við líka til páfans með stytt­una 2011 til að und­ir­strika henn­ar ferðir. Og alltaf erum við að ýta und­ir sögu kvenna,“ segir Kristinn í samtali við Mbl.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur