Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Deildarstjórinn kærir stuðningsfulltrúann: „Ég tel skjólstæðing minn vera fórnarlamb eineltis“

Sandgerðisskóli
Sand­gerð­is­skóli Mynd: sandgerdisskoli.is

Deildar­stjóri í Sand­gerðisskóla, sem sakaður var um kynferðis­lega áreitni gagnvart nítján ára karlkyns stuðnings­fulltrúa við skólann, hyggst kæra manninn fyrir upplognar ásakanir.

Málið hefur verið mikið í fréttum undan­farið en deildar­stjórinn, sem er kona um fertugt, var sökuð um að hafa áreitt hinn unga stuðnings­fulltrúa í veislu utan skólans. Maðurinn kærði málið til lögreglu í mars en málið var fellt niður vegna skorts á sönnunum.

Fyrst sneru ásakanir stuðnings­fulltrúans um meint kynferðislegt ofbeldi á tilgreindum stað og tilgreindum tíma. Kæra þar að lútandi til lögreglunnar var dregin til baka en ávirðingar breyttust í meintar tilraunir deildar­stjórans til ástar­atlota sem stuðnings­fulltrúinn hafi vikið sér undan. Var það atvik látið liggja á milli hluta eftir að þeim var boðið að mæta til sátta­fundar ásamt lögfræðingum sínum. Náðust þar fullar sættir. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Mannlífs fól sáttar­meðferðin meðal annars í sér afdráttar­lausa viðurkenningu stuðnings­fulltrúans á því að hið meinta kynferðis­lega ofbeldi hefði aldrei átt sér stað. Á móti viðurkenndi deildar­stjórinn að hafa hagað sér með óviðeigandi hætti í tilteknum gleðskap, ótengdum vinnu­staðnum og farið yfir tilhlýðileg mörk í samskiptum við stuðnings­fulltrúann.

Sú sátt, sem náðist á fundinum var rofin að mati lögfræðings deildar­stjórans, Stein­bergs Finnboga­sonar, af stuðnings­fulltrúanum er trúnaðar­maður hans og móður­systir, fór með þær nýju ásakanir í fjölmiðla að stuðnings­fulltrúinn hefði orðið fyrir kynferðis­legu áreiti af hálfu deildar­stjórans í marga mánuði. Ekki voru tilgreind sérstök atvik í þeim efnum. Segir lögfræðingur deildar­stjórans að enginn fótur sé fyrir þeim ásökunum.

Af þessum sökum hefur deildar­stjórinn ákveðið að kæra stuðnings­fulltrúann fyrir rangar sakar­giftir. „Sú kæra er í vinnslu og verður send lögreglunni á næstu dögum,“ sagði Steinberg í samtali við Mannlíf. Bætti hann við: „Ég tel skjólstæðing minn vera fórnar­lamb eineltis og ofbeldis á vinnustað sínum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur