Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Byrjaði átta ára á sjónum: „Ég kom ekki heim fyrr en að hausti“

Hannes Oddssson var skip­stjóri á vélbátnum Mumma sem fórst á Vestfjarða­miðum. Tveir komust af. Fjórir drukknuðu. Hann og hinn sem komst af biðu lengi í björgunar­báti í brjáluðu veðrinu. „Hann var alltaf slöngu­fullur af sjó; fengum alltaf þakið yfir okkur í hvert skipti. Ég sagði við Óla „nú bíðum við og heyrum þegar brotið kemur“. Um leið og við heyrðum það skella á bátnum þá hentum við okkur út í síðuna og veltum honum svoleiðis.“ Hannes segir að slysið komi endalaust upp í hugann. Hann hélt þó áfram á sjónum en hafið togaði snemma í hann. Átta ára gamall byrjaði hann á sjónum og tæplega sextugur hætti hann. Hér er brot úr viðtalinu:

Það ólgaði blóðið

Hann sem hélt áfram á sjónum eftir að hafa staðið andspænis dauðanum á hafinu fæddist á Akureyri en var ársgamall þegar flutt var til Siglu­fjarðar. Og hann segist hafa byrjað í sjómennsku átta ára gamall. „Þetta var þannig að ég hafði verið í sveit inni í Fljótum. Það var nátt­úrlega moldar­gólf í bænum.“

Hannes talar um hafra­grautinn sem hann fékk í sveitinni. „Það var eldað upp á vikuna. Grauturinn var orðinn þannig að þú gast bara skorið hann niður með hnífi. Maður sat yfir þessu í einn og hálfan til tvo tíma þar til maður var rekinn frá borðinu. Síðan hef ég ekki getað litið á þetta.

Mér hund­leiddist þarna og strauk og fannst niðri við Ketilás. Það var farið með mig á Siglu­fjörð. Svo var bróðir pabba í heimsókn; hann var vélstjóri á báti frá Reykjavík. Á síld. 30 tonna bátur ef hann náði því. Með tvo nótabáta. Og ég fékk að vera með; ég var allt sumarið á síldinni.“

Og kunni vel við það?

„Alveg rosalega, maður.“

Þannig að sjómennskan var í blóðinu.

„Bara átta ára polli.

Ég kom ekki heim fyrr en að hausti.

Sumarið eftir var ég alveg óður að reyna að fá pláss á einhverju síldar­skipi. Það ólgaði blóðið. Og Stebbi, bróðir mömmu, fékk pláss fyrir mig á Skaftfellingi frá Vestmanna­eyjum með topp­skipstjóra. Helgi Bergvins hét hann. Frægur aflamaður í Vestmanna­eyjum. Og síldin var fyrir utan Siglu­fjörð. Þannig að það þurfti að taka út og kasta og taka síldina inn aftur. Ég var svo heppinn að hún var horfin, síldin fyrir utan Siglu­fjörð. Ég kom ekki heim fyrr en að hausti.“

Níu ára gamall. Polli.

Þegar ég kom niður á bryggju þá var bát­ur­inn far­inn.

Hvernig var hægt að notast við stráklinginn um borð?

„Ég var ekkert að vinna að öðru leyti nema að þvo galla niðri í stíu. Þeir létu mig hafa skrubb og smíðuðu borð fyrir mig og svo skrubbaði ég og fékk einhvern tíkall fyrir eða eitthvað. Svo var það einu sinni á Húsavík að við fórum að landa. Þetta var á laugar­degi og ég fór upp í búð að kaupa nammi. Það var þvaga og opið til klukkan 12. Svo loksins komst ég að að kaupa brjóst­sykurs­poka. Svo kom ég niður á bryggju og ég bauð nátt­úrlega skip­stjóranum mola. Honum fannst hann svo góður brjóst­sykurinn að hann sendi mig upp í búð til að kaupa fyrir sig. Svo gerði ég það og ég komst loksins að eftir dúk og disk og þegar ég kom niður á bryggju þá var báturinn farinn.“

Hannes litli var eitthvað að væflast á bryggjunni með brjóst­sykurs­pokann þegar sjómaður á öðrum báti sem lá við bryggju kallaði í hann og spurði hvort hann hafi ekki verið á Skaftfellingi. „Jú,“ sagði níu ára pollinn sem var svo spurður hvort hann vildi ekki fara með þeim báti. Og það gerði hann. „Við vorum rétt komnir út í miðjan flóann þegar við sáum reykjar­mökk. Þá var það Skaft­fellingur á fullri leið til baka að ná í guttann. Ég var svo hífður á milli.“

Hannes var á Dagnýju sumarið eftir. Aðstoðar­kokkur. „Það var þriggja hæða lúkar á þessu skipi. Þetta var tréskip stórt og mikið. Og ég var þarna aðstoðar­kokkur 10 ára.“ Hann hlær. „Alltaf þegar átti að fara að vaska upp þá faldi ég mig. „Hvar er helvítis guttinn,“ sagði karlinn alltaf.“

Svo var það Frigg í tvö sumur. „Þá var ég full­gildur háseti 13 ára gamall. Þá kunni ég öll handtök og allt.“

Horfa má á viðtalið í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur