Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Johnny Depp vann málið gegn Heard: „Það besta á enn eftir að koma og nýr kafli hefur loks hafist“

Amber Heard og Johnny Depp í réttarsalnum.
Amber Heard og Johnny Depp í rétt­ar­salnum.

Dómur féll í dag í meiðyrða­máli leikarans Johnny Depp gegn fyrr­verandi eiginkonu sinni, leik­konunni Amber Heard.

Alls tók það kvið­dóminn um það bil 14 klukku­stundir að komast að þeirri niður­stöðu að Amber Heard hefði gerst sek um meiðyrði er hún skrifaði grein í Washington Post árið 2018 þar sem hún sagði frá ofbeldis­sambandi sem hún hafi átt í. Aldrei minntist hún á Depp en duldist það engum að átt var við hann.

Var kvið­dómurinn sammála Depp að greinin hafi falið í sér meiðandi ásakanir í hans garð og að Heard hefði skrifað greinina af slæmum ásetningi. Voru honum greiddar 15 milljónir Bandaríkja­dala í bætur eða tæpir tveir milljarðar króna en hann hafði krafist 50 milljóna.

Johnny fylgdist með úrskurðinum í gengum tölvuskjá en hann var staddur í Bretlandi við störf. Amber var í réttar­salnum og átti erfitt með að halda aftur af tárunum að því er virtist.

Mikil fagnaðar­læti brutust út fyrir utan dómshúsið er úrskurðurinn var lesinn upp en þar höfðu aðdáendur Depp safnast saman.

Heard stefndi Depp á móti í gangsök og fór fram á 100 milljón dollara skaða­bætur fyrir rógs­herferð sem hún segir að Depp hafi háð gegn henni. Féllst kvið­dómurinn á part af kröfum Heard og var henni greiddar tvær milljónir í bætur eða 258 milljónir króna.

Heard fær 2 milljónir

Depp fór fram á 50 milljónir dollara í skaða­bætur, en Heard stefndi svo Depp á móti í gagnsök þar sem hún fór fram á 100 milljón dollara skaða­bætur fyrir óhróðurs­herferð sem hún sagði Depp hafa háð gegn sér.

Kviðdómur féllst eins á hluta af kröfum Heard. Voru henni dæmdar annars vegar 2 milljónir Bandaríkja­dala í bætur og hins vegar 0 krónur í það sem í banda­ríkjunum kallast refsikenndar bætur (e. punitive), sem eru eins konar miska­bætur sem eru dæmdar þegar um sérstak­lega meiðandi háttsemi er að ræða. Til að setja það í samhengi skiptust bæturnar til Depp þannig að 10 milljónir Bandaríkja­dala voru skaða­bætur en 5 milljónir voru þessar svokölluðu refsikenndu bætur.

Johnny Depp birti yfir­lýsingu á Instagram-reikningi sínum eftir að dómurinn var kveðinn upp. Hér má lesa þýðingu Vísis:

„Fyrir sex árum síðan breyttist líf mitt, líf barnanna minna, líf þeirra sem standa mér næst og líf þeirra sem hafa staðið við bakið á mér og haft trú á mér. Allt á örskots­stundu

Rangar, alvarlegar og glæpsamlegar ásakanir voru bornar á mig í gegn um fjölmiðla, sem hrinti af stað hræðilegri atburðarrás, þó svo að ég hafi aldrei verið ákærður fyrir neitt. Þessar ásakanir fóru um heiminn allan á örskots­stundu og höfðu rosaleg áhrif á líf mitt og feril minn.

Sex árum síðar hefur kvið­dómurinn gefið mér líf mitt aftur. Ég er mjög þakklátur.

Ákvörðun mín um að höfða þetta mál, þrátt fyrir að vita hve erfitt það yrði, var tekin eftir mikla íhugun.

Frá upphafi var markmiðið að varpa ljósi á sann­leikann, sama hver niður­staðan yrði. Ég skuldaði börnunum mínum, sem hafa staðið þétt við bakið á mér, það að segja sann­leikann. Ég finn frið í hjarta mínu nú þegar mér hefur loks tekist þetta ætlunar­verk.

Ég á engin orð yfir þann stuðning og ást sem fjöldi fólks um allan heim hefur sýnt mér. Ég vona að þessi vegferð mín muni hjálpa öðrum, karl­mönnum og konum, sem hafa upplifað það sama og ég. Og ég vona að þau gefist aldrei upp. Ég vona líka að fólk líti nú svo á að fólk sé saklaust uns sekt sé sönnuð, bæði innan réttar­kerfisins og í fjöl­miðlum.

Ég vil þakka dómaranum fyrir hans mögnuðu vinnu, þakka kvið­dómendunum, starfs­mönnum dómsins og lögreglu­mönnunum sem hafa unnið að málinu. Ég vil sérstak­lega þakka mínu frábæra lögmanna­teymi sem hefur staðið sig frábærlega og hjálpað mér að varpa ljósi á sann­leikann.

Það besta á enn eftir að koma og nýr kafli hefur loks hafist.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt